Haust í Gdansk 20.-23. október 2022 – Beint flug og hótel ✈️ 🏨
Hafnarbakki hlaðinn merkilegri sögu
Hafnarborgin Gdansk stendur við Eystrasaltið í norðurhluta Póllands, og er staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur þar mjúklega meðfram hinum litríku hafnarhúsum.
Saga bæjarins er afar merkileg, en þann 1. september árið 1939 hófst þar orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands, í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar. Borgin varð fyrir miklum áföllum í stríðinu, og ber ýmis söguleg ör því til sönnunar. Þrátt fyrir það er Gdansk í dag einstaklega lífleg og sjarmerandi borg, þar er ferðaþjónusta öll í miklum blóma, og samgöngur góðar í allar áttir. Hin magnþrungna saga er stór ástæða þess að milljónir gesta leggja leið sína þangað ár hvert. Auk þess státar Gdansk af öflugu menningar- og listalífi, og götur bæjarins eru fullar af skemmtilegum mörkuðum, listasýningum og iðandi mannlífi.
Reikaðu um þröngar hellulagðar götur miðbæjarins, framhjá rauðleitum múrsteinskirkjum, niður að árbakkanum þar sem þú getur sest upp í bát og siglt með honum í skemmtilega skoðunarferð. Er svo ekki kominn tími á kaffibolla? Til dæmis í gömlu enduruppgerðu húsi frá stríðinu, eða kannski viltu fyrst kíkja í heimsókn á eitt af fjölmörgum söfnum borgarinnar sem leiðir þig í gegnum áhrifaríka atburði og staðreyndir. Hljómar þetta ekki sem góð byrjun á degi í Gdansk? Kvöldið bíður þín svo með spennandi stundum á veitingahúsum og börum borgarinnar.
Hótelin:
Hausttilboð: Hotel Hilton Gdansk*****
Hilton Gdansk er staðsett við ána Motlawa í gamla bænum og býður upp á loftkæld herbergi með ókeypis WiFi. Frá innisundlauginni á efstu hæð er víðáttumikið útsýni yfir borgina. Herbergin eru með 32 tommu LCD sjónvörp og gervihnattarásum. Þau hafa einnig te/kaffiaðstöðu og minibar. Flest þeirra eru með útsýni yfir gamla bæinn eða Motlawa á. Hótelið er staðsett aðeins 200 m frá miðaldahöfninni og um 600 m frá Dlugi Targ stræti, hjarta gamla bæjarins. Lech Walesa-flugvöllurinn er 16 km frá hótelinu. Gestir geta tekið á í líkamsræktinni og slakað á í gufubaðinu, en þar er einnig heilsulind sem býður upp á ýmis konar nudd og meðferðir. Starfsfólk hótelsins er til taks allan sólarhringinn. Veitingastaðurinn Mercato framreiðir pólska og alþjóðlega rétti. High 5 Terrace Bar er með opna verönd sem býður upp á útsýni yfir Gdansk. Gestir geta einnig fengið sér drykk á F32 barnum.
Heildareinkunn 8,7 og 9,7 fyrir staðsetningu á booking.com
Mercure Gdansk Stare Miasto****
Radisson Hotel & Suites, Gdansk****
Hápunktar ferðar
- favoriteRölt um hafnarbakkann
- favoriteMannlífið á þröngum göngustígum borgarinnar
- favoriteSögulegar minjar
- favoriteÖðruvísi Pólland
Innifalið í verði
- Beint flug frá Keflavík til Gdansk og til baka
- 15 kg innritaður farangur
- Handfarangur
- Þriggja nátta gisting á 4ra eða 5 stjörnu hóteli
- Morgunverður á hóteli
Ekki innifalið
- Hádegis- og kvöldverður
- Fararstjórn
- Rúta til og frá hóteli
Pólland
Land sem vert er að skoða!
Flestir Íslendingar þekkja eitthvað til Póllands, en við hjá Tripical viljum þar bæta um betur og hvetjum fólk til að ferðast og skoða þetta fallega land, ásamt því að kynna sér magnaða sögu þess. Pólland er sjötta fjölmennasta ríki Evrópu og með landamæri að Þýskalandi, Tékklandi, Litháen og Rússlandi. Landið á strönd að Eystrasalti, þar sem árnar Odra og Visla renna í sjó.
Árið 1795 var Póllandi skipt á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Það fékk sjálfstæði að nýju sem lýðveldi árið 1918, en í september 1939 var landið hernumið af Þjóðverjum og Sovétmönnum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þar sem yfir sex milljónir Pólverja féllu í valinn. Eftir stríð lenti Pólland á áhrifasvæði Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldið Pólland var stofnað. Landamæri þess voru þá töluvert frábrugðin frá því fyrir stríð, fyrrum pólsk svæði í austri tilheyrðu nú Sovétríkjunum og í staðinn fékk Pólland stór landssvæði frá hinu fallna Þýskalandi. Stjórn kommúnista ríkti allt þar til henni var bolað frá árið 1989 og þriðja pólska lýðveldið stofnað.
Almennar upplýsingar:
- Fjöldi íbúa: 38.634.007
- Stærð að flatarmáli: 312.679 km²
- Opinbert tungumál: Pólska
- Gjaldmiðill: Pólskt Slot
- Hitastig: 19°-30° yfir sumartímann
- Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi
Þríborgin: Gdansk, Sopot og Gdynia
Gdansk
Á norðurhluta landsins, við Eystasaltið, tengjast þrjár pólskar borgir, og eru oft nefndar Þríborgin (e. Tricity). Þetta eru Sopot, Gdynia, og Gdansk sem er þeirra stærst og þekktust. Gdansk er fjórða stærsta borg landsins og staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur meðfram litríkum hafnarhúsum bæjarins. Saga Gdansk er afar merkileg, en 1. september árið 1939 hófst orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands í upphafi seinni heimstyraldarinnar. Pólland varð einnig fyrir miklum áhrifum frá Kalda stríðinu svokallaða. Einræðishyggja kommúnista varð til þess að í skipasmíðastöðvum þríborgarinnar kviknaði hin svonefnda Solidarity hreyfing, en hún átti sinn þátt í falli kommúnismans í Austurblokkinni, falli Berlínarmúrsins og endaloka Sóvétríkjanna.
Afar öflugt menningar- og listalíf er að finna í Gdansk, en götur borgarinnar bjóða upp á fjölbreytta markaði, listasýningar og aðra skemmtilega viðburði stóran hluta sumarsins.
Sopot
Sopot er vinsæll áfangastaður, ekki síst fyrir strendur sínar, en bærinn er staðsettur sunnan við Eystrasaltið, milli Gdynia og Gdansk og með íbúafjölda í kringum 40.000. Þar er mikið úrval af ýmis konar heilsulindum sem bjóða upp á fjölbreyttar spa meðferðir og dekur. Lengsta trébryggja í Evrópu er í Sopot, en hún nær um 515 metra út á haf. Borgin er einnig þekkt fyrir alþjóðlega söngvakeppni sína, Sopot International Song Festial, sem er einn stærsti söngviðburður Evrópu á eftir Júróvisjon.
Gdynia
Um aldir var Gdynia lítið þorp við Eystrasaltið, þar sem lögð var stund bæði á landbúnað og sjávarútveg. Í byrjun 20. aldar tók ferðamannastraumur þangað að aukast til muna, og íbúafjöldi jókst í kjölfarið. Þegar Pólland öðlaðist sjálfstæði 1918 var ákvörðun tekin um að byggja þar höfn og í dag hefur Gdynia þróast úr litlum sjávarbæ í mikilvæga hafnarborg, með heimsborgar yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Þessi þróun stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar hafnarsvæði og skipasmíðastöð urðu fyrir sprengingu og eyðulögðust. Í stríðslok hófst endurbygging á ný. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og lúxussnekkja. Borgin hýsir auk þess stærstu kvimyndahátíð landsins, Gdynia Film Festival.
Varsjá
Höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta þéttbýli landsins. Varsjá stendur við ánna Vistula í mið-austur Póllandi, í um 260 km fjarlægð frá Eystrasaltinu. Þar búa um 1,75 milljónir, sem gerir hana að níundu fjölmennustu borg Evrópusambandsins. Varsjá er líflegur staður og hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem menningar-, stjórnmála- og efnahagsmiðstöð í Evrópu, auk þess sem hún hefur stimplað sig inn sem menningarhöfuðborg Austur-Evrópu, með öflugu listalífi, spennandi klúbbasenu og hágæða veitingastöðum.
Vegna sögu sinnar hefur Varsjá verið nefnd Fönixarborgin, en í gegnum aldirnar hefur hún gengið í gegnum mikil átök, stríðsdeilur og innrásir. Eftir síðari heimsstyrjöldina fór borgin í gagngerar endurbætur og uppbyggingu en stríðið jafnaði um 85% hennar við jörðu. Gamli miðbæjarkjarninn er afar glæsilegur og býr yfir mikilli sögu, en hann var listaður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1980. Aðrir merkir staðir eru t.a.m. Kastalatorgið (Plac Zamkowy), dómkirkjan (St. John’s Archcathedral), markaðstorgið (Old Town Market Square – Rynek Starego Miasta), sem og aðrar litríkar hallir og kirkjur.
Kraká
Næststærsta og jafnframt elsta borg Póllands. Kraká stendur einnig við árbakka Vistula, en saga borgarinnar nær aftur til sjöundu aldar. Hún var höfuðborg landsins til ársins 1589, þegar Varsjá tók við því kefli. Kraká gegnir mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku nágrannalöndin. Íbúafjöldi er um 760.000, en u.þ.b. 8 milljónir búa í 100km radíus við borgina. Þá hefur Kraká endurheimt stöðu sína sem akademískur miðpunktur landsins, eftir stofnun nýrra háskóla og menningarmiðstöðva.
Eftir innrásina í Pólland í upphafi seinni heimstyraldarinnar varð Kraká gerð að höfuðborg þýsku nasistastjórnarinnar. Gyðingar sem þar bjuggu voru neyddir inn á svæði afgirt steinveggjum, þaðan sem þeir voru fluttir í nálægar úrýmingabúðir, þeirra þekktust er Auschwitz. Gamli bærinn í Kraká er friðlýstur af UNESCO. Borgin er oft nefnd sem ein sú fallegasta í Evrópu, og situr víða á toppi lista yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan barokk arkitektúr gerir Kraká afar sérstaka, en ólíkt Varsjá varð borgin ekki fyrir teljandi skemmdum í stríðinu. Árið 2000 var Kraká valin menningarhöfuðborg Evrópu.