Okkur er spurn, er eitthvað sem hljómar betur en þessi ferð?
Fyrst tökum við flugið beint til borgarinnar sem aldrei sefur. Líklega átt þú sjálf/ur ekkert eftir að vilja sofa þegar þangað er komið, því hér er svo mikið um að vera og margt að gera. Þú finnur varla þéttbýlli stað, hér er allt ofan í öllu á skemmtilegan hátt, og stutt í allt. Hvergi annars staðar finnurðu fjölbreyttara sýnishorn af öllum heimsins menningarstraumum en í New York. Hér býr fólk af yfir 200 þjóðernum. Því næst liggur leiðin yfir til sólríku Mexikó, nánar tiltekið Cancún, sem staðsett er í austurhluta landsins. Þar tekur á móti þér ylvolgur sjórinn, svalandi sjávargolan hressir í þægilegum hitanum, þar sem þú liggur á ströndinni og sötrar kokteila. Öðru megin við hótelið er sjórinn, hinum megin er fallegt lón. Hvort sem þú vilt bara taka því rólega á geggjuðum stað með æðislegum mat, eða skoða þig um á framandi slóðum, þá ertu á réttum stað. Hér er hvort tveggja í boði!
Með fimm sólarhringa stoppi í stóra eplinu er hægt að gera svo margt. Skoða mannlífið og setja met í að skoða ALLAR helstu byggingar borgarinnar og ferðast í ÖLLUM neðanjarðarlestunum. Hostelið sem gist er á stendur nálægt neðanjarðarlestarstöð og Central Park er skammt undan, svona til að einfalda þér hlutina ef þú hefur hug á að slá einhver met. Síðan er hægt að vera menningarlegur og skoða listir og listasöfn. Kíkja á Frelsisstyttuna, fara í leikhús, sötra kokteila á rúftopp bar eða klúbba sig í gang einhvers staðar neðanjarðar. Kasta eggjum í Trump turninn (þú heyrðir það ekki hér). Kaupa þér I♥NY bol, og fá þér kaffibolla í Central Park eða bara hvað annað sem þér dettur í hug.
Nóttin er alltaf ung í New York og þegar sólin sest í rólegheitum fyrir aftan Hudson-flóann og stórhýsin lýsa upp borgina, breytist New York í stærðarinnar leiksvið. Þá er hægt að skella sér á Broadway þar sem heimsklassa dansarar og tónlistarmenn láta ljós sín skína. Fara í Comedy kjallara og hlusta á misfyndið fólk segja misfyndna hluti. Hvort sem þú ert að leitað að hámenningu eða ,,lágmenningu”, New York býður upp á bæði og allt þar á milli. Jazz eða rapp, name it. Við skulum aðeins einfalda þetta fyrir þig. Ef þig hefur dreymt um það, þá er geturðu framkvæmt það og/eða fundið það í New York (Tripical ber ekki ábyrgð á því ef þig dreymir mjög skrýtna drauma).
Það hefur aldrei verið betri tími til að borða í New York en í dag. Borgin hefur að geyma mikið af veitingastöðum sem bjóða svo fjölbreytta matseðla, að ef þú hyggst bragða á þeim öllum þá nýtist þér tæplega öll ævin.
Velkomin á eina flottustu sólarströnd Mexíkó. 20 km af paradís, strönd öðru megin og Nichupte lónið hinum megin. Á þeim níu nóttum sem þú eyðir hér geturðu gert það sem þú vilt, nánast. Þú getur slakað á eftir góða menningarferð í New York, eða sett í næsta gír og skoðað þig um með moijito við hönd (moijito-inn á við í báðum tilfellum).
Cancún er í raun tvenns konar borg. Annars vegar höfum við glæsilegt hótelsvæði með fögrum hvítum sandströndum og frábæru partýsvæði fyrir áhugasama, ásamt því að bjóða upp á háklassa sjávarfangsveitingastaði. Skrautlegu mexíkósku byggingarnar sem þú ímyndar þér að séu þarna, þær eru á sínum stað. Hinn hluti Cancún er meira raunveruleg. Þar ertu vissulega kominn meira til ,,Mexíkó” ef svo má segja, og getur kafað dýpra í menningu hennar. Þar geturðu til dæmis fundið meira af hinum staðbundna mat eins og djúsí taco, ristaðan maís með sýrðum rjóma og paprikukryddi, en búllur sem bjóða upp á slíkt má finna víða.
Ef þú ert kominn með leið á því að liggja á lúxushótelinu dekurrófan þín, þá er minnsta mál að taka leigubíl fyrir núll og nix og skella sér í bæinn og dansa eins og einn salsa um stræti borgarinnar. Eða þú getur farið og skoðað meira af Quintana Roo svæðinu í dagsferð frá Cancún. Þá ber að nefna hinn óspillta þjóðgarð Isla Contoy sem laðar fjölda fólks til sín með sínu fjölbreytta fugla- og plöntulífi. Í norð-austur hlutanum bíður svo strandlengjan Isla Holbox, þar sem sund með gríðarstórum hvalahákörlum hefur orðið vinsælt sport.
Ef þú vilt halda þig nær hótelinu, geturðu farið og skoðað hið magnaða neðansjávar listasafn Museo Subacuático de Arte, þar sem er að finna meira en 500 skúlptúra sem liggja á sjávarbotni, á 5-7 metra dýpi. Aðstandendur hafa brugðið á það ráð að hvetja fólk til að koma frekar á safnið og kafa, frekar en að kafa niður á viðkvæm kóralrifin, sem nú eru í bráðri hættu vegna skemmda. Og það svínvirkar! Fólk elskar að skoða skúlptúrana og þetta er fullkomið svæði til að kafa fyrir byrjendur.
Flestir Íslendingar, eins og aðrir heimsbúar, telja sig vita sitthvað um Bandaríkin, siði þarlendra og menningu. Þessi stórþjóð í vestri hefur í gegnum tíðina haft sterk ítök í menningu annarra landa, sem mörg hver eru undir ákveðnum áhrifum Bandaríkjanna hvort sem það er í mat, tónlist, bíómyndum eða á öðrum sviðum menningar og mannlífs. Þau áhrif segja þó ekki alla söguna. Við hjá Tripical erum einstaklega hrifin af fjölbreytileika Bandaríkjanna og okkur grunar að fleiri deili þeim áhuga. Við viljum því bjóða upp á möguleika á að ferðast til lands tækifæranna, og upplifa nýjar hliðar sem þið hafið jafnvel aldrei séð eða heyrt um.
Bandaríkin bjóða upp á mikinn fjölbreytileika, bæði í náttúrufegurð og mannlífi. Við viljum kynna fyrir þér brot af því besta, og fara yfir það helsta sem finna má og gera í landi draumanna. Hér höfum við eyðimerkur annars vegar, og snæviþakta fjallstoppa hins vegar. Við höfum Suðurríka sveitalubba (e. rednecks) og við höfum snobbaða Upper West Side snyrtipinna. Landið hýsir ýmsa stórborgina, sem hver og ein hefur sín sérstöku einkenni: Los Angeles, San Francisco, Las Vegas, Chicago, Miami, Boston og New York svo dæmi séu tekin.
Í Bandaríkjunum má finna hvorki meira né minna en fjórar milljónir kílómetra af þjóðvegum sem leiða þig á milli frjósamra hveitiakra og stálsteyptra skýjakljúfra.
Samanstendur af níu fylkjum og er það svæði Bandaríkjanna þar sem efnahagur er talinn hvað bestur, hér er mjög þéttbýlt og mikinn menningarlegan fjölbreytileika að finna. Til að einfalda hlutina er norðausturströndinni yfirleitt skipt upp í tvo hluta, Nýja England og Mið-Atlas fylkin.
Fylkin í Nýja Englandi eru Connecticut, Maine, Massachusetts, New Hampshire, Rhode Island og Vermont. Þau eru tiltölulega lítil að stærð, en íbúafjöldi hár. Hér finnurðu m.a. borgirnar Boston, Worcester og Providence. Nýja England býður upp á fjölbreytt tónleikahald, fjörugt háskólalíf, safaríkt sjávarfang og sætt hlynsíróp. Eins og nafnið bendir til, er það hér sem Bandaríkin risu upp í byrjun, með landnemum frá Englandi og öðrum stöðum í Evrópu sem sigldu yfir hafið með drauma sína og væntingar um nýtt og betra líf. Hér býr því mikil saga sem finna má bæði á söfnum, sem og hjá fólkinu og í umhverfinu öllu. Sagan er alls staðar.
Nýja England býður upp á glæsilegar hæðir og fjöll. Þar er um 8000 km strandlengja sem er sannkallað draumasvæði fyrir vatnstengdar íþróttir. Þar bíða tækifæri til að veiða, synda, skella sér á brimbrettabrun eða í þægilega siglingu. Leyfðu bara hugmyndunum að taka flugið, og á meðan geturðu slakað á í sólbaði. Á svæðinu má einnig finna flott samtímalistasöfn, auk ótal hefðbundinna listasafna, kvikmyndahátíðir og margt fleira. Hér er menningardagatalið einfaldlega pakkað. Ef þú ert að leita að góðum mat finnurðu kræsingar á við Maine humar, Wellfleet ostrur, að ógleymdum hinum eina sanna Vermont bjór.
Vegna þess hversu fjölþjóðlegt svæðið er, eru alþjóðleg áhrif á matarmenningu mikil, og veitingarstaðirnir á svæðinu nýta sér það besta frá öllum heimshornum.
Hin svonefndu Miðju-Atlas fylki eru New Jersey, New York, Pennsylvania Delaware, Maryland, Virginía og Vestur-Virginía. Heimsþekkt fylki og margt og mikið að sjá. Athyglisverð minnismerki bíða þín hvert sem þú snýrð þér, og fjöldinn allur af söfnum og veitingastöðum með matargerð víðs vegar að úr heiminum. Hér er bókstaflega allt sem hugurinn girnist. Önnur ríki á svæðinu bjóða upp á fjölbreytt landslag og fyrir þau ykkar sem viljið ekki fara hina hefðbundnu leið og kynnast svæðinu á annan hátt en með því að skoða stórborgir, má í staðinn skoða fjöll og fyrnindi, tjalda, fara í siglingar um fljótin, leggjast á glitrandi strendur og ganga um söguleg þorp sem taka mann til upprunans, og minna okkur á fyrstu ár hvíta mannsins í þessu stórbrotna landi.
Villta vestrið! Þetta svæði Bandaríkjanna er gífurlega stórt að flatarmáli og þar eru ríkin þrettán að tölu. Þeirra þekktust eru Kalifornía, Coloradó, Nevada, Nýja-Mexíkó og Washington. Á síðari árum hefur hér gríðarleg íbúafjölgun átt sér stað, vegna fólksflutninga bæði frá miðríkjum og norð-austurströnd landsins. Á svæðinu eru ófá náttúruundur: Nevada eyðimörkin, Yosemite þjóðgarðinn, Klettafjöllin (e. Rocky Mountains) og Miklagljúfur (e. Grand Canyon), svo fátt eitt sé nefnt. Ekki má heldur gleyma hinni afar stóru strandlengju sem svæðið dregur nafn sitt af. Helstu og þekktustu borgirnar eru Los Angeles, San Francisco, Phoenix og Las Vegas, allar með sinn einstaka persónuleika og sérstöðu. Hollywood glamúrinn endurspeglast alls staðar í borg englanna, Los Angeles. Denver býður upp á fjölbreytta möguleika til hvers kyns útivistar. Hin listræna og sögufræga Santa Fe er heill heimur út af fyrir sig. Goðsagnakenndir staðir og magnað landslag gerir vesturhluta Bandaríkjanna að spennandi áfangastað fyrir ævintýrafólk, stórstjörnur, og alla aðra!
Náttúruundrin hér gera ferðina þína að mikilli veislu. Rauðir klettar, gljúfur og eyðimerkur svo langt sem augað eygir. Paradís fyrir göngu- og hjólreiðafólk. Í norðurhlutanum er svo allt annað uppi á teningnum, en þar er hægt að skella sér á skíði og snjóbretti í einum mögnuðustu skíðabrekkum heimsins.
Í matargerð er hér mikið unnið með hráefni af svæðinu, hvort sem það er úr sjó eða af landi, og vín af nærliggjandi ekrum drukkið með. Þú finnur alls konar mat, en þó má segja að sterkra áhrifa gæti frá mexíkóskri matarmenningu.
Vestrið býður kannski ekki upp á endalaust magn af söfnum, en í staðinn geturðu eytt tíma þínum hér í að skoða landslagið og náttúruna allt í kring. Þú getur auk þess sótt messu í einni af fjölmörgum kapellum í LA, grandskoðað yfirgefna draugabæi og jafnvel kíkt í heimsókn í Kísildal San Francisco, þar sem öll helstu tæknifyrirtæki heimsins hafa aðsetur. Þannig getum við sérsniðið þína persónulegu og einstöku upplifun af hinu villta vestri.
Suðurhluti Bandaríkjanna aðgreinir sig frá öðrum svæðum landsins með nokkuð afgerandi hætti, og greina má þann mun á mörgum sviðum, eins og t.d. í tónlist, matargerð, bókmenntum sem og annarri menningu. Hér talar fólk hreinlega öðruvísi, með sínum heimsþekkta Suðurríkjahreim. Og saga Suðurríkjanna er auðvitað stórbrotin og mikil, eins og í öðrum hlutum Bandaríkjanna, saga sigra og ósigra, falleg saga en einnig grimm og blóðug.
Hér eru fjöllin gróf og grýtt, skógarnir þykkir, árnar breiðar og langar. New Orleans færir þér djass og blús á heimsmælikvarða, hitabeltisloftslag Florida fylkis laðar til sín sólþyrsta gesti ár hvert. Enn austar liggja svo strandfylkin Suður- og Norður-Karólína. Ofar á kortinu finnurðu svo Tennessee fylki, sem með réttu má kalla mekka kántrýtónlistarinnar. Síðast en langt því frá síst ber svo að nefna sjálfa höfuðborg Bandaríkjanna, en heimsókn þangað má sannarlega finna á bucket listum fólks um allann heim.
Og svo er það auðvitað og að sjálfsögðu Texas! Risastór, með stórborgir og smábæi, kúrekahatta, olíukónga og íííhhaa. Flestir hafa sínar eigin hugmyndir um þetta magnaða fylki. Það er vel þess virði að taka sér ferð á hendur og kanna hversu mikið þær hugmyndir eiga við rök að styðjast. Við mönum þig!
Eina svæðið af þeim fjórum sem hér eru upptalin, sem liggur ekki að sjó. Hins vegar eru hér afar stór og mikil vötn, eins og Michigan-vatn og Superior. Stærstu borgirnar eru meðal annars Chicago, Detroit, Minneapolis og Cleveland. Þessu svæði er oft skipt í tvennt, sléttusvæðið annars vegar og vatnasvæðið hins vegar. Skiptingin snýr ekki eingöngu að ólíku landslagi, því svæðin eru auk þess mjög ólík þegar kemur að menningu og samfélögum. Ef þú vilt upplifa hinn svokallaða sanna miðvesturs lífsstíl þá eru Kansas, Iowa, Dakota og Nebraska réttu fylkin fyrir þig, en þau tilheyra sléttusvæðinu. Vatnahlutinn er svo meira í ætt við það sem þú finnur í Boston og New York. Þá má ekki gleyma einu helsta kennileiti miðríkjanna, Rushmore fjallinu, þar sem andlit fyrri tíma Bandaríkjaforseta eru meitluð í klettabeltið.
Chicago er oft nefnd sem höfuðborg miðríkjanna. Oft kölluð Borg vindanna og þekkt fyrir lestarkerfi sem er ofanjarðar og glæstum arkitektúr sem auðveldlega má gleyma sér við að skoða. Við mælum líka með því að hafa beltið ekki of þétt spennt um strenginn, því það er gott að borða í Chicaco, og endalaust magn af veitingastöðum af öllum stærðum og gerðum, þar sem kokkarnir leika sér nokkuð léttilega við bragðlaukana þína. Þeir sem vilja upplifa alvöru íþróttastemmingu eru aldeilis á réttum stað.
Þvílík paradís sem Mexíkó er, með sínar guðdómlegu strendur við ylvolgan sjó, frumskóga fulla af fjölbreyttu lífi og litríkar gleðihátíðir í borgum og bæjum. Mexíkóar kunna svo sannarlega að krydda upp á tilveruna, ekki síður en þau kunna að krydda matinn sinn. Menningin í Mexíkó er gáskafull og spennandi, og þar er alltaf stutt í dansinn, hvort sem það er djúpt ofan í taktföstum neðanjarðarklúbbum eða í dillandi gleðisveiflu á götum Mexíkóborgar.
Í Mexíkó finnurðu græna frumskóga, rjúkandi eldfjöll og kaktusskreyttar eyðimerkur. Þar finnurðu líka 10.000 km strandlengju, þar sem lónin iða af dýralífi og brimið við strendurnar kallar svo hátt á þig að þig langar mest af öllu að grípa bretti og sigla út, þrátt fyrir að hafa kannski aldrei stigið á brimbretti á ævinni! Í Mexíkó lifirðu lífinu til fulls og landið er endalaust ævintýri fyrir skynfærin.
Víða má finna aldagamlar minjar um sögu siðmenningar í Mexíkó, fornleifar sem þykja með þeim merkilegustu í heimi. Þar má meðal annars nefna píramíta Teotihuacan og hin stórkostlegu Maya-musteri í Palenque. Einnig má benda á gullfallega bæi og borgarhverfi frá spænska nýlendutímabilinu, full af einstökum skúlptúrum, steinkirkjum og glæsihúsum. Til dæmis býður borgin Guanajuato upp á þess háttar umhverfi, fyrir utan að vera eitt fallegasta þéttbýli landsins og sannarlega heimsóknarinnar virði.
Ef þú ert ekki í stemmd/ur fyrir að ferðast inn í landið til að skoða forna staði með eigin augum, má hvarvetna finna fínustu söfn þar sem saga landsins er rakin og skjalfest með hinum ýmsu minjum og gripum.
Hvernig þú ferðast um og gistir í Mexíkó er algjörlega í þínum höndum. Möguleikarnir eru margir, og auðvitað misdýrir. Meðan á dvöl þinni stendur á austurströndinni geturðu gist á glæsilegum lúxus hótelum sem fara temmilega vel með budduna þína. Þú getur einnig sparað við þig með því að gista í krúttlegum strandarskálum við Kyrrahafið. Þegar lengra inn í landið er komið, geturðu mögulega leyft þér þann munað að gista á höfðingjasetri frá nýlendutímanum – og átt það alveg skilið eftir langa og sveitta göngu um einhvern af grænum skógum landsins.
Það er auðvelt að komast frá A til B, til dæmis virðast þægilegar rútur vera nánast alls staðar og bjóða upp á ferðir hvert sem er. Einnig er umfangsmikið innanlandsflugnet í Mexíkó og hægt að bóka ódýrar ferðir hvert sem hugurinn girnist. Þegar kemur að því að næra sig, geturðu verið viss um að fá gæðamat á diskinn, hvort sem þú situr á fínum veitingastað eða bara við eldhúsborðið hjá ömmunni í næsta húsi.
Mexíkóar eru á heildina mjög jákvæðir og heillandi, og leggja sig fram við að þóknast gestum sínum. Þau eru stolt af landi sínu og vilja að þú upplifir allt það besta og merkilegasta sem Mexíkó hefur upp á að bjóða.
Hin mjög svo heillandi Mexíkóborg er að ganga í gegnum mikla endurnýjun, þar á sér stað öflug uppbygging á öllum helstu almenningsrýmum og um leið er borgin að verða einn öruggasti staður landsins.
Það er auðvelt að gleyma sér um lengri eða skemmri tíma í höfuðborginni. Þar er svo margt að sjá og í raun hægt að fylgja ákveðnum söguþræði, allt frá forn-rómverskum grunni hennar, þaðan til fallegra bygginga nýlendutímans og áfram inn í stórbrotin nútímahverfi hlaðin háhýsum og glæsibyggingum.
Cancún er í raun tveir mismunandi staðir. Annars vegar er það glæsilegt hótelsvæði með frægu hvítu sandströndunum, háklassa veitinga- og skemmtistöðum, krám og góðu partýi. Hins vegar er svo hin raunverulega Cancúnborg, þar sem þú ert meira í snertingu við menningu landsins og lífshætti. Þú ert meira í Mexíkó. Við mælum heilshugar með því að eyða tíma þar, ganga um götur borgarinnar og grípa með þér girnilegan taco á einni af fjölmörgum götubúllum á svæðinu.
Þetta er það sem gerir Cancún svo áhugaverða. Ef þér er farið að leiðast lúxuslífið á hótelinu við ströndina geturðu hæglega tekið leigubíl og fyrir fáranlega lítinn pening rúntað inn í hjarta borgarinnar þar sem þú salsadansar um stræti borgarinnar. Og þá er alls ekki allt upp talið. Hægt er að taka sér bátsferð til hinnar óspilltu eyju Isla Contoy og skoða fjölbreytt fugla- og plöntulífið þar. Í norðri bíður svo Isla Holbox strandlengjan, þar sem sund með gríðarstórum hvalahákörlum hefur orðið vinsælt sport.
Skammt frá Cancun er einnig hið magnaða Museo Subacuático de Arte, sem samanstendur af meira en 500 skúlptúrum staðsettum 5-7 metra niður á sjávarbotni. Þar geta gestir kafað og skoðað þetta einstaka styttusafn neðansjávar.
Þriggja stjörnu hostel á fullkomum stað í Manhattan í Upper West Side og er eitt það stærsta í New York. Hi hostel keðjan er ekki rekin í hagnaðarskyni heldur til þess að hjálpa ungu fólki að skoða og upplifa heiminn. Gist er í 4-6-8-10 mann herbergjum með möguleika á tvíbýli fyrir aukna þóknun.
Herbergin innihalda rúmföt, handklæði, læsta skápa, leslampa og sameiginlegt baðherberi ofan á það býður hostelið upp á frítt Wifi, 24/7 mótöku, kaffihús. Ásamt eldhús aðstöðu og stórri útiverönd.
Lúxus fjögurra stjörnu hótel. Kannski réttara satt höll, við ströndina! Þarna bíða ykkar lúxus herbergi, þegar við segjum lúxus þá meinum við lúxus. Herbergin innihalda nuddpott, vínskáp, míní bar, baðsloppa og innskó, öryggisskápa, fjarstýrða lofkælingu, kaffivél, síma og snallsjónvarps sem og hið gamla gíða WIFI.
Hótelið býður upp á fullt fæði og drykki með þrjá háklassa veitingastaði sem þú getur borðað gjaldfrjálst. Morgunmatur, hádegismatur og snakkbar allt innifalið. Síðan er einnig sundlaugarsvæði og spa á svæðinu.
Herbergisþjónusta er innifalin ásamt flestum sportum og aktivitíum. Fjölmargar kvöldskemmtanir eru á svæðinu og síðan bíður þín 2000$ inneignarnóta á hótelinu (á hvert herbergi með 16% skatt fyrir þjónustuna).