





Hópferð til Varsjá
Þú verður að sjá Varsjá!
Þeir sem hafa ferðast um Pólland segja að Varsjá standi upp úr! Ólíkt flestum pólskum borgum státar Varsjá ekki bara af einu torgi umkringdu fallegum arkitektúr, þar eru mörg svæði þar sem finna má torg af öllum stærðum og gerðum, með einstaklega fallegum byggingum allt í kring. Það er því auðvelt að gleyma sér á röltinu og njóta þess sem fyrir augu ber.
Varsjárborg hefur gengið í gegnum róstursama tíma og verið skotmark í árásum og sprengjuregni, en verst varð hún úti í seinni heimsstyrjöldinni. Þegar henni lauk var ekki mikið eftir af miðbænum, og þurftu þeir sem eftir lifðu að byggja þar allt upp frá grunni. Áhersla var lögð á að halda sömu mynd og fyrir stríð, en í raun má segja að borgin sé aðeins 70 ára gömul. Þannig er rétt að hafa í huga, að margar byggingar eru frá því rétt eftir seinna stríð, þrátt fyrir að líta út fyrir að vera aldagamlar.
Eftir uppbygginguna hefur Varsjá nútímavæðst mikið, og skemmti- og veitingaflóran þar er af mörgum talin sú besta í Póllandi. Eins og annars staðar í landinu er verðlag líka afar hagstætt, bæði á veitingum, drykkjum og fatnaði, sem og í leigubílum á milli staða.
Stalín er ekki hér
Eins og sjá má á myndum ægir hér saman hinum ýmsu byggingarstílum, allt eftir því hvenær í sögunni húsin risu. Eftir seinni heimsstyrjöld varð Pólland um árabil nokkurs konar hluti af Sovétríkjunum, með þeim einræðiskennda stalínska kommúnisma sem þar ríkti allt til ársins 1989. Þetta sést vel sums staðar í Varsjá, þar sem yfirbragð er allt nokkuð ,,austantjaldslegt“, og minnir á þann kalda tíma sem nú er á bak og burt.
Fyrri tíma byggingar standa um alla borg með sínum mikla sjarma, tignarlegar kirkjur og hallir, og þar á milli rísa nýstárlegir skýjakljúfar til himins. Gamli miðbærinn er vinsælasti hluti borgarinnar, en þar má sjá falleg hús máluð í pastellitum, kaffihús og veitingastaði, að ógleymdu minnismerkinu af hafmeyjunni, sem er tákn borgarinnar.
Göngum, göngum
Það er vinsælt að fá sér göngu um eldri götur borgarinnar, skoða í búðir og bása þar sem ýmislegur varningur fæst til sölu. Fyrir þá sem hafa gaman af antíkvörum, gömlum húsgögnum og húsmunum er margt spennandi að sjá. Hér má til dæmis finna glæsilegar kristalljósakrónur og svo ótalmargt fleira.
Flottir almenningsgarðar
Í Varsjá eru margir gróðursælir almenningsgarðar og sumir þeirra rekja aldur sinn langt aftur í tímann. Garðarnir eru staðsettir víðs vegar um borgina, og finna má nokkra slíka miðsvæðis. Sjón er sögu ríkari.
Hápunktar ferðar
- favoriteFjölbreyttar byggingar
- favoriteÆðislegur miðbær
- favoriteMenning og saga Varsjár
- favoriteFramandi veitingastaðir
Innifalið í verði
- Flug fram og til baka
- 3 nætur á hóteli í miðbæ Varsjár
- 20kg innritaður farangur
- Morgunmatur
Ekki innifalið
- Kommúnistaávarpið
- Okurverð
- Útskýring á algengasta orði pólskrar tungu: Kurva!
Miðbærinn var endurbggður eftir 300 ára málverkum
Skemmtileg staðreynd um Varsjá
Pólland
Hafnarbakki menningar og lista!
Flestir Íslendingar þekkja ágætlega til Póllands, en það er skoðun okkar hjá Tripical, að við það megi hiklaust bæta og að Íslendingar ættu að ferðast meira og skoða þetta fallega land og hina mögnuðu sögu þess. Pólland er sjötta fjölmennasta ríki Evrópu og með landamæri að Þýskalandi, Tékklandi, Litháen og Rússlandi. Landið á strönd að Eystrasalti, þar sem árnar Odra og Visla renna út í sjó.
Árið 1795 var Póllandi skipt á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Það fékk sjálfstæði að nýju sem lýðveldi árið 1918 en í september 1939 var landið hernumið af Þjóðverjum og Sovétmönnum, sem leiddi til heimsstyrjaldarinnar síðari, þar sem yfir sex milljónir Pólverja féllu. Eftir stríð lenti Pólland á áhrifasvæði Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldið Pólland var stofnað. Landamæri þess voru töluvert frábrugðin þeim sem voru fyrir stríð, og voru pólsk svæði tekin af Sovétríkjunum í austri en Pólland fékk í staðinn mjög stór landssvæði af hinu fallna Þýskalandi. Stjórn kommúnista var bolað frá árið 1989 og þriðja pólska lýðveldið stofnað.
Almennar Upplýsingar:
- Fjöldi fólks: 38.634.007
- Stærð að flatamáli: 312.679 km²
- Opinbert Tungumál: Pólska
- Gjaldmiðill: Pólskt Slot / 1zł = 29,29kr
- Hitastig: 19°-30° yfir sumartímann
- Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi
Þríborgin: Gdansk, Sopot og Gdynia
Gdansk
Á norðurhluta landsins, við Eystasaltið, er samvafningur þriggja borga sem oft kallast Þríborgin (e. Tricity). Stærst og jafnframt þekktust þeirra er Gdansk, sem jafnframt er fjórða stærsta borg landsins. Borgin liggur við upptök árinnar Motlawa sem rennur á milli litríkra hafnarhúsanna í bænum. Saga bæjarins er afar merkileg, en 1. september árið 1939 hófst orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands sem leiddi til seinni heimstyraldarinnar. Pólland varð einnig fyrir miklum áhrifum kalda stríðsins en Solidarity hreyfingin varð til í skipasmíðastöðvum þríborgarinnar sem leiddi til falls kommúnismans í Austurblokkinni, falls Berlínarmúrsins og endaloka Sóvétríkjanna.
Afar öflugt menningar- og listalíf á heima í Gdansk en götur bæjarins eru skreyttar mörkuðum, listasýningum og öðrum viðburðum stóran hluta sumarsins.
Sopot
Sopot er vinsæll strandaráfangastaður sunnan við Eystrasaltið. Staðsett á milli Gdynia og Gdansk með íbúafjölda í kringum 40.000. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður vegna mikils úrvals af heilsulindum og spa meðferðum. Lengsta trébryggja í Evrópu er í Sopot, en hún nær um 515 metra út á hafið. Borgin er einnig þekkt fyrir alþjóðlega söngvakeppni sína, Sopot International Song Festial, sem er einn stærsti söngviðburður Evrópu á eftir Júróvisjon.
Gdynia
Í margar aldir var Gdynia lítið landbúnaðar- og sjávarþorp við Eystrasaltið. Í byrjun 20. aldar varð borgin sífellt vinsælli áfangastaður ferðamanna, sem ýtti undir frekari fólksfjölgun í bænum. Eftir að Pólland öðlaðist sjálfstæði 1918 var tekin ákvörðun um að byggja pólska höfn í Gdynia. Í dag hefur borgin þróast úr litlu sjávarþorpi í mikilvæga hafnarborg með heimsborgarlegu yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Hröð þróun borgarinnar stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar nýbyggð höfn ásamt skipasmíðastöð eyðulögðust. Eftir stríð hófst hæg endurbygging. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og og lúxussnekkja. Gdynia hýsir stærstu kvimyndahátíð landsins Gdynia Film Festival.
Varsjá
Höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta borg landsins. Hún stendur við ánna Vistula í mið-austur Póllandi, í um 260 km fjarlægð frá Eystrasaltinu. 1,75 milljónir íbúa borgarinnar gera hana að níundu fjölmennustu borg Evrópusambandsins. Varsjá er mjög lífleg og hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem menningar-, stjórnmála- og efnahagsmiðstöð í Evrópu. Varsjá er ein hávaxnasta borg Evrópu og hefur stimplað sig inn sem menningarhöfuðborg Austur-Evrópu, með öflugu listalífi, spennandi klúbbasenu og hágæða veitingastöðum á hverju horni.
Varsjá fékk titilinn Fönixarborgin vegna sögu sinnar, en í gegnum aldirnar hefur hún gengið í gegnum mikil stríðsátök, ádeilur og innrásir. Eftir síðari heimsstyrjöldina þurfti borgin að fara í gagngerða enduruppbyggingu en stríðið jafnaði um 85% borgarinnar við jörðu. Sögulegur miðbæjarkjarninn, með hinum glæsilega gamla bæ, var listaður á heimsminja skrá UNESCO árið 1980. Aðrir merkir staðir eru t.a.m. Kastalatorgið hjá Konungskastalanum, dómkirkjan, markaðstorgið, og litríkar hallir og kirkjur bæjarsins.
Kraká
Næst stærsta og jafnframt elsta borg Póllands. Kraká stendur einnig við árbakka Vistula, en saga borgarinnar nær aftur til sjöundu aldar. Til ársins 1589 var hún höfuðborg landsins, áður en að Varsjá tók við því hlutverki. Kraká gegnir mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku löndin. Íbúafjöldi er um 760.000, en u.þ.b. 8 milljónir búa í 100km radíus við borgina. Kraká hefur endurheimt stöðu sína sem akademískur miðpunktur landsins eftir stofnun nýrra háskóla og menningarmiðstöðva.
Eftir innrásina í Pólland í byrjun seinni heimstyraldarinnar varð Kraká höfuðborg almennu þýsku ríkisstjórnarinnar. Gyðingar sem þar bjuggu voru neyddir inn á svæði afgirt steinveggjum, þaðan sem þeir voru fluttir í nálægar úrýmingabúðir, eins og Auschwitz. Gamli bærinn í Kraká er friðarsvæði UNESCO. Borgin er oft verið talin ein sú fallegasta í Evrópu, og situr oft á toppnum sem áhugaverðasti áfangastaður í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan barrokskan arkitektúr gerir Kraká afar sérstaka, en borgin varð ekki fyrir eyðileggingu heimstyraldarinnar síðari. Árið 2000 var Kraká valin menningarhöfuðborg Evrópu.
Hótelin okkar
-
add Hilton Warsaw Hotel 5 🌟
Hilton Warsaw Hotel *****
Sönn 5 stjörnu upplifun. Hótelið er staðsett í fjármálahluta borgarinnar og nálægt fjölda safna, búða og veitingastaða. Það er um 20-25 mínútna ganga að kjarna miðbæjarins frá hótelinu.
Í öllum herbergum er flatskjár, wi-fi, sturta og bað.
Sjáðu meira um hótelið hér.
-
add Novotel Warszawa Centrum 4 🌟
Novotel Warszawa Centrum ****
Hótelið býður upp á 360 gráðu útsýni yfir Varsjá. Það er staðsett í hjarta borgarinnar, þar sem finna má fjölda búða og veitingastaða.
Öll herbergin hafa flatskjá, wi-fi, bað með sturtu eða baði og hárblásara.
Sjáðu meira um hótelið hér.
-
add Hampton by Hilton Warsaw City Center 3 🌟
Hampton by Hilton Warsaw City Center ***
Hótelið er staðsett í hjarta Varsjá. Verslunarmiðstöðin Tarasy er örskammt frá hótelinu.
Öll herbergin hafa flatskjá, wi-fi og bað með sturtu eða baði.
Sjáðu meira um hótelið hér.