Flugáætlanir 2025
Ef engin af áætluðum ferðadagsetningum hentar þér skaltu ekki hika við að hafa samband við sölumenn Tripical: hallo@tripical.is svo við getum rætt aðra valkosti.
Rétt eins og Róm er glæstur minnisvarði hinnar gömlu Ítalíu, þá er Mílanó boðberi nýju Ítalíu. Vissulega er hún ein af elstu borgum Evrópu, og hellingur af stórfenglegum fornum byggingum þar að finna, en þessi flotta fjármála- og tískuborg er samt nýtískuleg fram í fingurgóma. Mílanó er stundum kölluð efnahagsstórveldi Ítalíu, um leið og hún er alþjóðleg miðstöð hönnunar og nýsköpunar, og paradís verslunar og næturlífs. Tvisvar á ári, vor og haust, sameinast þar tískuelítan, ásamt ofurfyrirsætum og flassblikkandi papparözzum í allsherjar tískumessu þar sem næstu straumar og stílar eru ákveðnir, hvað er inni og hvað úti. Mílanó er mega töff, og það er mikið ævintýri að sækja hana heim.
Eitt af merkustu kennileitum Mílanó er hin töfrandi gotneska dómkirkja Duomo, sem tók yfir 600 ár að fullgera og er stórkostlegur minnisvarði um sögu borgarinnar. Fleiri eftirtektarverðar byggingar má nefna, eins og Sforzesco virkið frá 15. öld, basiliku di Sant’ Ambrogio og Santa Maria delle Grazie basilíkuna, sem finna má á heimsminjaskrá UNESCO og geymir eitt frægasta málverk heims, Síðustu kvöldmáltíðina eftir Leonardo da Vinci. La Scala er þekktasta óperuhús heims, fyrst opnað 1778, og í hinni mögnuðu verslunaryfirbyggingu Galleria Vittorio Emanuele, sameinast glæst fortíð og nýjustu straumar í tísku og verslun, en þar er að finna þekkt ítölsk og alþjóðleg vörumerki.
Það er sama hvar borið er niður í Mílanó, alls staðar er ákveðna fágun og smekkvísi að finna. Allt er töff. Næturlífið er töff. Eftir myrkur lifnar borgin við með mikið úrval af nýtískulegum börum og skemmtistöðum, gæðakokteilum og góðu andrúmslofti. Fyrir þau sem vilja frekar afslappaðri stemmingu er tilvalið að fara í Navigli hverfið og setjast á eitt af fjölmörgum kaffihúsum við síkin þar. Ef áhugi er á lifandi tónlist er alltaf af nægu að taka, í djassklúbbum og öðrum minni og stærri tónlistarstöðum. Þau skemmtanaþyrstu halda svo á vit villtari ævintýra í einhverjum af næturklúbbum borgarinnar, þeir vinsælustu eru til dæmis Alcatraz, Fabrique Milano, Bobino Milano og Volt.
Sumir vilja meina að Mílanó sé mekka ítalskrar matreiðslu. Þar sameinast þjóðlegar hefðir og það allra nýjasta á fullkominn hátt. Ítalskur matur er auðvitað einstök sæla, og í Mílanó er hann jafnvel enn betri. Sem sérrétti Mílanó má nefna Ossobuco alla Milanese, sem eru kálfaskankar matreiddir að hætti Mílanóbúa, og Risotto alla Milanese. Ekki sakar að hafa ítalskt vín í glösum til að skola hærlegheitunum niður.
Komdu með okkur og njóttu lystisemda, fágunar og flottheita í dásamlegu Mílanó!
B&B Hotel Milano Sant’Ambrogio býður upp á ókeypis WiFi um alla lóðina og gistiaðstöðu sem er gæludýravæn í Mílanó. Sant’ambrogio er í 450 metra fjarlægð frá neðanjarðarlestarstöðinni og aðeins ein neðanjarðarlestarstöð er frá Cadorna lestarstöðinni sem býður upp á tengingar við sýningarmiðstöðina í Rho.
Í hverju herbergi er flatskjár. Í hverju herbergi er sérherbergi með baði eða sturtu og baðkari, ásamt hárþurrku.
Samnýtt setustofa er á lóðinni. Einnig er boðið upp á hjólaleigu. Hægt er að bóka ferðir með leiðsögn um borgina í móttöku.
Sforzesco-kastali er 1,1 km frá B&B Hotel Milano Sant’Ambrogio en Navigli 1,3 km frá húsnæðinu. Næsti flugvöllur er Linate-flugvöllur, 9 km frá húsnæðinu.
Hótelið fær 8.5 í einkunn á booking.com og 8.7 fyrir staðsetningu.
Hótel Bristol er með herbergi með ókeypis aðgangi að þráðlausu neti, aðeins nokkrum skrefum frá aðalstöðinni í Mílanó og neðanjarðarlestarstöðinni sem bjóða upp á tengingar við miðborgina. Öll herbergin eru með minibar, loftkælingu og sjónvarpi.
Sum herbergi Bristols bjóða upp á heilsubað og svalir. Morgunverðurinn er borðhaldur.
Gestir geta fengið sér drykk á barnum og slakað á í setustofunni. Einnig er netpunktur á móttökunni.
Hótelið er í 6 km fjarlægð frá miðborg Mílanó. Strætómiðstöðin með tengingum við flugvellina er í 5 mínútna göngufæri. Bílastæði í bílageymslu eru í nágrenninu á afsláttarkjörum fyrir gesti hótelsins.
Hótelið fær 8.1 í einkunn á booking.com og 9.3 fyrir staðsetningu.
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Það er svipað með menn og staði, þar er misskipt í gæðum og glæsileik. Þegar kemur að Ítalíu, er eins og máttarvöld hafi verið í óvenju góðu skapi, og splæst í helling af hvoru tveggja. Ítalía er drottningin á ballinu, og það vilja allir á það ball til að dást að gestgjafanum.
Þetta er stórt land að flatarmáli, næstum þrisvar sinnum stærra en Ísland, og þar búa um 61 milljónir manna. Ítalía er í laginu eins og stígvél, suðurhlutinn dýfir sér ofan í Miðjarðarhafið, umvafinn sólríkum dögum og þeirri miklu gróðursæld sem Miðjarðarloftslagið býður upp á. Þaðan rís þessi stærsti skór í heimi og endar við hina tignalegu fjallgarða Alpana, með einhver þau flottustu skíðasvæði sem hægt er að hugsa sér.
Um landið þvert og endilangt standa svo stórborgir, hver og ein með sín sérkenni, skraut og töfra. Og Ítalarnir sjálfir svo dásamlega afslappaðir og töff og eldandi þennan ómótstæðilega gómsæta mat… hér er bara einhvern veginn allt svo fullkomið!
Ítalía er nefnd með Grikklandi sem vagga vestrænnar menningar og því til staðfestingar má nefna að flesta staði í Heimsminjaskrá UNESCO er að finna í landinu. Hér eru aldargamlar byggingar og menningarverðmæti hvert sem litið er. Allt blandast þetta svo á skemmtilegan hátt við nútímann, því eins og flestir vita hafa Ítalir tekið sér forystuhlutverk í flestu því sem skilgreinir tísku og töffheit, og er þá sama hvort talað sé um fatnað, tæki eða matseld.
Hér erum við með hvorki meira né minna en Róm, Mílanó, Napólí og Flórens, og þessar stórbrotnu borgir eru bara brot af því besta, því þarna er svo mikið af fjölbreyttum stöðum, stórum og smáum, út um allt.
Ekki er hjá því komist að nefna ,,ríkið“ í ríkinu, sjálft Vatíkanið, sem formlega var stofnað árið 1929, er staðsett í Róm, en starfar eftir eigin lögum og reglum páfagarðs.
Amalfi-ströndin (Costiera Amalfitana) liggur við Miðjarðarhafið, í Campania héraðinu, suðaustur af Napólí á Ítalíu. Meðfram henni standa einstakir og vel varðveittir miðaldabæir og ströndin er einmitt nefnd eftir einum þeirra, sjávarþorpinu Amalfi. Vegna sögulegra minja svæðisins, á það sitt pláss á heimsminjaskrá UNESCO. Við ströndina ríkir milt Miðjarðarhafsloftslag, sumrin eru hlý og vetur mildir.
Hér upplifirðu töfrandi fegurð og stórbrotið útsýni yfir tært og blátt Miðjarðarhafið. Í raun er umhverfið hér allt svo hrífandi að það minnir helst á skáldskap, enda hafa margir rithöfundar og ekki síður kvikmyndaframleiðendur nýtt sér stemmingu og heillandi staðhætti Amalfi-strandarinnar í verkum sínum.
Amalfi-ströndin er þekkt fyrir framleiðslu sína á sítrónulíkjör (sfusato amalfitano), en hráefnið ræktað í stórum og smáum raðhúsagörðum meðfram allri strandlengjunni á milli febrúar og október. Þá er á svæðinu lögð stund á forna tækni í pappírsframleiðslu og útkoman er þykkur pappír, svokallaður bambagina, sem notaður er bæði fyrir ritaða lagasamninga og frímerki. Aðrar þekktar staðbundnar vörur eru sérstök tegund af ansjósum frá bænum Cetara, og litríkt handgert keramik frá Vietri.
Bæirnir við ströndina eru eftirfarandi, og hver öðrum glæsilegri: Amalfi, Atrandi, Cetara, Conca dei Marini, Furore, Maiori, Minori, Positano, Praiano, Ravello, og Vietri sul Mare. Í fjöllum fyrir ofan ströndina er að finna bæina Scala og Tramonti. Svo er bara að ,,ugla sat á kvisti“. Eða bara heimsækja þá alla.
Sikiley er stærsta eyja Miðjarðarhafsins og liggur við tærnar á Ítalíufætinum. Saga hennar einkennist af mörgum valdhöfum í gegnum tíðina, þar áttu sitt skeið bæði Grikkir og Rómverjar, en einnig Arabar og Normandíbúar. Allir skildu þessir eftir sig áhrif sem finna má víða í fjölbreyttu og skemmtilegu menningarlífi eyjunnar.
Þrátt fyrir stærð hennar, eru borgir og bæir þar litlir, og hver þeirra með sinn sérstaka svip, sína eigin menningu. Á eyjunni er líka að finna eitt af hæstu eldfjöllum Evrópu, Mount Etna, sem reglulega minnir á sig með gosum, nú síðast í mars 2017.
Sikileyjaskeggjar þykja afar stoltir og halda fast í sínar hefðir og sérkenni. Þótt ítalska sé nú þjóðartungumálið, eiga þeir þeir sitt eigið tungumál, sikileysku, sem haldið er í heiðri og margir sem nota það frekar. Sikileyskan er nokkuð frábrugðin ítölsku, og skyld bæði rómönskum og arabískum málum.
Íbúar eyjunnar þykja nokkuð íhaldssamir og vanafastir, en um leið afar gestrisnir og þar er tekið hlýlega og vel á móti gestum sem leið eiga um.
Sardinía er vinsæll staður fyrir siglingar og sörf, gönguferðir og fjallabrölt, auk þess sem strendur hennar þykja afar fallegar og sólbaðsvænar. Eyjan er mikil náttúruparadís, og hafa fjölmargir þekktir listamenn leitað þangað að innblæstri. Hún á þó einnig sínar fjörugu djammhliðar, og er svæðið í kringum Costa Smeralda gott dæmi um það.
Sardiníubúar þykja nokkuð ólíkir öðrum Miðjarðarhafsþjóðum, þeir eru frekar feimnir og fámálir og halda sig nokkuð til hlés, ekki síst þegar innar á eyjuna er komið. Um leið eru þeir gríðarlega stoltir af sinni heimaey og tengdir náttúru hennar og menningararfleifð mjög sterkum böndum.
Á eyjunni lifði u.þ.b. árþúsundi fyrir Krist hinn svokallaði Nuragic þjóðflokkur, en venjur þeirra og siðir eru hulin nokkuð mystískum blæ. Hinar sérstöku byggingar þeirra og turnar eru dreifðar um eyjuna, auk þess sem einstaka þorp er þar enn að finna.
Sardinía var áður mjög rík af járngrýti ýmis konar, þar var unnið úr námum bæði blý og sink, en mest er hún þó þekkt af silfrinu sem þar fannst í miklum mæli, og var barist um umráð yfir eyjunni lengi fram eftir öldum af þeim sökum. Í dag felast verðmæti Sardiníu þó í hreinum ströndum, tærum sjó, og dásamlegri náttúrufegurð.
Við hjá Tripical dýrkum Ítalíu, og þá meinum við ALLA Ítalíu, og erum tilbúin að skipuleggja hina fullkomnu ferð hvert þangað sem hugurinn leitar. Það verður enginn svikinn af þeirri heimsókn.
Dagskrár hverrar fræðsluferðar er alltaf háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í fræðsluferðum Tripical eru skólaheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hópsins.
Fræðsluferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið Kennarasambandsins og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.
Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins frá okkur nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!!!