Búdapest er paradís hinna ferðaglöðu. Stórbrotin borg, mótuð af menningarstraumum liðinna alda. Mögnuð saga, töfrandi arkitektúr og merkileg menning. Á milli þess sem þú dásamar fagrar byggingarnar, geturðu skellt þér í tyrknest baðhús og pústað aðeins, en hitauppstreymi frá jörðu er vinsæll orkugjafi fyrir fjölmargar heilsulindir borgarinnar. Þá þykir sólsetur í Búdapest eitt það fegursta í allri Evrópu og margir sem leggja ýmislegt á sig til að verða vitni að því. Með öðrum orðum, hér er í boði algjör fjársjóður. Við köllum Búdapest ekki París austursins að ástæðulausu!
Ungverjar segja sjálfir að fortíðin geymi í raun sögu annarar þjóðar. Það hefur gengið á ýmsu í Ungverjalandi í gegnum tíðina. Sjáðu byssukúluörin og ummerki eftir sprengjur seinni heimstyrjaldarinnar og frá uppreisninni 1956, sem finna má víða um borgina. Það er í raun eins og að fara í litla Evrópureisu þegar maður sekkur sér í ævisögu borgarinnar. Ekki skemmir fyrir að árið 1987 var Búdapest bætt á heimsminjaskrá UNESCO fyrir menningar- og byggingarsögu sína.
Það eru fleiri en ein leið til að uppgötva Búdapest. Hvort sem þú ert að koma í fyrsta skipti eða ekki, þá bjóðum við upp á topplista yfir hluti til að skoða og gera!
Taktu dýfu í einu af frægu böðum borgarinnar, bragðaðu á matnum, skoðaðu nokkrar flottar, fönkí verslanir, labbaðu yfir keðjubrúnna eða sestu niður, slakaðu á og horfðu á mannlífið á einhverju kósý kaffihúsi.
Leonardo Hotel Budapest er staðsett í Ferencvaros viðskiptahverfinu, aðeins 3 metra frá miðborg Búdapest. Þar er veitingasala, bistro og frítt Wi-Fi.
Herbergin á Leonardo hótelinu eru með loftkælingu, peningaskápum og LCD-sjónvarpi með gervihnattasjónvarpi auk vinnuborða og smáfrysta. Boðið er upp á sódavatn í herberginu við komu.
Gestir geta einnig notið þess að vera í íþróttasal hótelsins. Veitingasalurinn og barinn bjóða upp á alþjóðlega og innlenda matargerð. Á Hummus Bar & Bistro er boðið upp á sérrétti frá Mið-Austurlöndum og ungverska rétti. Á sumrin geta gestir einnig borðað á sumartertunni.
Hótelið fær heildareinkunn 8,3 og einkunn 8,5 fyrir staðsetningu á booking.com
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Ungverjaland á sér stóra og mikla sögu, og þjóðin hefur gengið í gegnum tímana tvenna. Þetta má sjá í töfrandi arkitektúr, höllum, kirkjum og öðrum stórbrotnum gömlum byggingum víða um landið. Þannig er höfuðborgin Búdapest sannkölluð nautn fyrir augað.
Landið býr yfir jarðhita, og þar má finna heilsulindir og böð sem nýta sér náttúrulegt hitauppstreymi. Það er ekki alls staðar sem sundglaðir Íslendingar geta fundið aðstöðu í líkingu við það sem þeir eiga að venjast hér heima, en í Ungverjalandi eru hinar fínustu útilaugar, með heitum pottum og alles.
Höfuðborgin Búdapest er sérstakur staður og af mörgum talin einhver mest spennandi og fallegasta borg heims.
Það er vel þess virði að fara út fyrir borg og bæi og njóta sín í landslaginu sem þar bíður. Iðjagræn og skógivaxin náttúra, sem róar þandar og þreyttar taugar.
Borgir landsins skrúfa svo VÁ! áhrifin upp í hæsta styrk. Þar eru magnaðar byggingar, allt frá rómverskum rústum til barrokk kirkja, glæsilegar opinberar byggingar, baðhús og skólar. Umhverfi sem gerir þig agndofa. Við erum ekki eingöngu að tala um sjálfa Búdapest. Þú getur heimsótt staði eins og Szeged eða Kecskemét, Debrecen og Sopron. Þarna mæta þér alls kyns byggingagimsteinar, hvert sem þú snýrð þér. Það er líka mjög gaman að kíkja í minni þorp og bæi, þar eru víða eins og maður hreinlega stígi úr tímavél inn í miðaldir.
Ungverjar elska heita vatnið sitt og nota það í lækninga- og heilsumeðferðir af ýmsu tagi, og auðvitað líka bara í einfalda slökun og afþreyingu. Það er tilvalið að skella á „to do“ listann heimsókn í tyrkneskt baðhús, mörg þeirra eru byggð snemma á 16. öld.
Ungverjar eru einnig afar stoltir af matarmenningu sinni. Þar stendur ofarlega gúllasið, sem löngu er orðið frægt um allan heim. Heimamenn hika ekki við að halda því fram að það sé hverjum manni nauðsyn að smakka þrenns konar matargerð um ævina: franskan mat, kínverskan og síðast en alls ekki síst þann ungverska.
Höfuðborg Ungverja er sannkölluð paradís. Búdapest að kvöldi til er hreinlega eins og af annarri veröld, svo mikil er fegurðin. Upplýstar hallir, brýr og byggingar. Borgin hefur stundum verið kölluð París Austursins, og stendur fyllilega undir því nafni.
Árið 1987 var Búdapest sett á heimsminjaskrá UNESCO fyrir óumdeilda menningarlega þýðingu sína og gildi í byggingarsögu heimsins.
Það hefur ekki alltaf ríkt sátt og friður í þessu einstaka landi. Búdapest og aðrir staðir bera þess merki og víða má finna holur eftir byssukúlur og ummerki eftir sprengjur, bæði frá seinni heimsstyrjöldinni og uppreisninni 1956. Stórbrotin saga í hverju skrefi.
Það eru margar leiðir að því að uppgötva Búdapest. Hvort sem þú kemur einu sinni eða oftar er alltaf eitthvað nýtt að skoða og upplifa. Böðin, maturinn, byggingarnar, brýrnar, eða komstu aðallega til að versla? Hér er nóg af verslunum, bæði þekktustu merkin og minni búðir, flottar og fönký. Svo er líka bara hægt að slaka, setjast niður á góðu kaffihúsi eða skemmtilegum bar og skoða mannlífið. Þetta er góður kostur bæði á ungversku sumri, eða köldum kósý vetrardegi.
Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.
Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.
Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!