Fræðsluferð til Alicante ☀️ - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Spánn
  • Fræðsludagskrá

Fræðsluferð til Alicante ☀️

Lengd ferðar:
5 dagar / 4 nætur
Land:
Spánn

Flugáætlanir 2026

  • 14.-19. maí 2026
  • 4.-9. júní 2026
  • 6.-11. júní 2026
  • 9.-13. júní 2026
  • 11.-16. júní 2026

Ef engin af áætluðum ferðadagsetningum hentar þér skaltu ekki hika við að hafa samband við sölumenn Tripical: hallo@tripical.is svo við getum rætt aðra valkosti.


ALICANTE

Alicante er lítil og sjarmerandi borg, staðsett á austurströnd Spánar og þekkt fyrir fallegar strendur, ríka sögu og fjörmikið mannlíf. Þar búa um 340.000 manns. Rætur borgarinnar ná langt aftur í aldir, hér bjuggu Fönikíumenn árþúsundum fyrir Krist, og eftir það Grikkir og Rómverjar. Víða má sjá og skoða fornar menjar og rústir, sumar allvel varðveittar. Þau sem þyrstir í meira af slíku má einnig benda á hið vandaða fornminjasafn MARQ – Archaeological Museum of Alicante.

Glæstar byggingar

Helsta kennileiti Alicante er Santa Bárbara kastalinn (frá 9. öld), sem rís efst á Benacantil hæðinni, og veitir víðáttumikið útsýni yfir næsta nágrenni. Þau sprækustu geta gert sér góða göngu þangað, en þeim sem ekki eru alveg nógu hress fyrir þess háttar púl má benda á að hægt er að taka kláf upp að kastalanum. Í bænum sjálfum eru líka margar fallegar gamlar byggingar, til dæmis gotneska Santa Maria kirkjan frá 16. öld, og 17. aldar safnið Casa de l’Asegurada. Gamli bærinn (El Barrio) býður upp á þröngar götur, litrík hús og heilan helling af  tapasbörum og veitingastöðum, þar sem heima- og ferðafólk blandast saman og gæða sér á ljúfengri spænskri matargerð.

Strendur og verslunargötur

Strandlengja Alicante er auðvitað eitt helsta aðdráttarafl staðarins. Ár eftir ár fá strendur hér viðurkenningu fyrir hreinlæti og gæði. Þær vinsælustu eru San Juan og Postiguet, en einnig má nefna Almadraba, La Albufereta og Saladares-Urbanova. Fyrir ofan þær er svo göngusvæðið Explanada de España, með sínum mósaíkskreyttu stígum, pálmatrjám og ýmis konar skemmtitækjum og afþreyingu, ásamt fjölda veitingastaða og kráa.

Hér er líka aldeilis hægt að sjoppa heil ósköp, ef sá gállinn er á. Borgin á sína eigin Römblu, Rambla de Méndez Núñez, þar sem finna má öll helstu vörumerki og verslanir. Einnig er talsvert af skemmtilegum búðum í gamla bænum. Fyrir þau sem finnst gaman að heimsækja verslunarmiðstöðvar má benda á Centro Comercial Plaza Mar 2, sem er stærst og vinsælust, en einnig Centro Comercial Gran Vía, en hún er í um 10 mín. akstursfjarlægð frá miðbænum.

Næturgleðin

,,La marcha alicantina“ er hún kölluð, stemmingin sem vaknar í borginni þegar kvölda fer. Það er gaman að skemmta sér og djamma í Alicante. Mikið er af börum og skemmtistöðum í kringum gamla bæinn, sem og Calle Castaños og nærliggjandi götur. Þá eru líka skemmtilegir barir við smábátahöfnina, og við San Juan ströndina. Hvert sem leiðin liggur er ljóst að nóttin helst ung langt frameftir, gleðin tekur öll völd og þú getur skemmt þér fram undir morgun.

 

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Gott veður
  • favorite
    Fallegar strendur
  • favorite
    Miðbærinn
  • favorite
    Flottir veitingarstaðir

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • 4 nætur á hóteli í miðbæ Alicante (Með morgunmat)
  • 20 kg innritaður farangur
  • Rútur til og frá flugvelli

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Fararstjórn (óska ​eftir sérstaklega)
  • Fræðsluheimsóknir og námskeið (óska ​eftir sérstaklega)

Verð frá: 139.900kr.- á mann í tvíbýli

Hotel Maya Alicante 3* eða sambærilegt

Hotel Maya er staðsett við rætur Santa Barbara-kastalans, í 5 mínútna göngufjarlægð frá Alicante-ströndinni og í 10 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum. Boðið er upp á árstíðabundna útisundlaug, ókeypis Wi-Fi Internet og líkamsræktaraðstöðu með víðáttumiklu útsýni.

Öll loftkældu herbergin á Maya eru með gervihnattasjónvarpi og minibar. Það er hárblásari á sérbaðherberginu. Maya er með greiðan aðgang að Postiguet-ströndinni sem er í 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu. Hótelið býður upp á skemmtidagskrá fyrir fullorðna og börn í júlí og ágúst.

Veitingastaðurinn býður upp á rétti frá svæðinu og alþjóðlega rétti sem og hrísgrjónasérrétti. Einnig er kaffihús á staðnum. Herbergisþjónusta og nestispakkar eru í boði en einnig eru sjálfsalar með drykkjum og snarli til staðar. Plaza Mar 2-verslunarmiðstöðin er í 100 metra fjarlægð. Lestin til Terra Mítica-skemmtigarðsins og Benidorm stoppar beint á móti Maya. C6-flugrútan stoppar í aðeins 50 metra fjarlægð frá hótelinu.

Hótelið fær 8.3 í einkunn á booking.com og 8.4 í einkunn fyrir staðsetningu.

Verð frá: 157.900kr.- á mann í tvíbýli

Dormirdcine Alicante 4* eða sambærilegt

Í hjarta Alicante er hann í 50 metra fjarlægð frá viðkomustað flugvélarinnar C-6. Postiguet Beach og smábátahöfnin eru í minna en 200 metra fjarlægð.

Loftræst herbergi á Dormirdcine Alicante eru öll útbúin með gervihnattarsjónvarpi, peningaskáp og vinnuborði. Minnibar er í boði gegn aukagjaldi. Hægt er að fá nuddmeðferðir í herbergjunum eða í nálægum heilsulindum.

Boðið er upp á fjölbreyttan morgunverð á morgunverði á hlaðborði. Bæði er hægt að flýta inn- og útritun og fá aðgang að 24 klukkustunda móttöku.

Hótelið fær 8.6 í einkunn á booking.com og 9.7 í einkunn fyrir staðsetningu.

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Spánn

Y Viva España!

Spánn hefur um árabil verið eitt vinsælasta land Evrópu meðal ferðafólks og þangað drífur að mikill fjöldi gesta alls staðar úr heiminum allan ársins hring. Ástæðan er langt frá því að vera ,,af því bara“ – á Spáni er svo margt að sjá og upplifa, fjölbreytileiki landsins er gríðarlegur, auk þess sem þar er auðvitað nóg til af því sem allir elska og þrá, nefnilega sól og blíðu!

Konungsríkið Spánn telur um 46 milljónir íbúa. Það er um það bil 5 sinnum stærra en Ísland að flatarmáli og staðsett á Íberíuskaga (stundum nefndur Pýreneaskagi) syðst í Evrópu, með landamæri að Portúgal til vesturs og Frakklands og smáríkisins Andorra til norðurs. Löng austurströnd landsins snýr að Miðjarjarðahafi, og syðsti oddi Spánar er um leið syðsti oddi meginlands Evrópu.

sitges spánn

Æðislegar strendur, eldhresst næturlíf, sprúðlandi fjölmenning og borgir með afar áhugaverðan bakgrunn og sögu, og stórbrotnar byggingar því til sönnunar – allt þetta hefurðu á Spáni. En landið býr einnig yfir miklum fjölbreytileika í landfræðilegum skilningi, enda æði stórt og mikið. Þar hefurðu fjöll og snjó í norðri, risavaxin mýrlendi og sandflæmi í suðri. Sumrin eru vissulega háannatími í ferðaiðnaði landsins, en þeir sem heldur kjósa minna fjölmenni eða vetrarferðir hafa sannarlega úr mörgu að moða.

Á Spáni eru margar fallegar og spennandi borgir. Fyrst má nefna þær þekktustu, höfuðborgina Madrid með sínum heillandi arkitektúr, fjölbreyttu söfnum og sýningum, og hina mögnuðu Barcelona með sín fjölmörgu ólíku hverfi, stórbrotnu byggingar, blómstrandi menningarlíf, iðandi næturlíf og fyrirtaks sólbaðsstrendur. En þá er langt í frá allt upptalið, því hér höfum við líka borgir eins og Sevilla, Valencia, Granada og Bilbao og fleiri, allt staðir með sína einstöku sérstöðu sem fyllilega má mæla með. Þess utan eru svo minni bæir og þorp, við ströndina eða uppi á landi, sem með sjarma sínum og fegurð draga til sín sólþyrsta gesti í leit að afslöppun og ánægju.

Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.

Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.

Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!

Verð frá 139.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Fyrirspurn um ferð

  • DD slash MM slash YYYY

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 4, 3.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Svartfjallaland
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT