Fræðsluferð til Helsinki - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Fræðsludagskrá

Fræðsluferð til Helsinki

Lengd ferðar:
5 dagar / 4 nætur
Land:
Finnland
Gjaldmiðill:
Evra

Flugáætlanir 2025

  • 3.-7. september 2025
  • 10.-14. september 2025
  • 17.-21. september 2025
  • 22.-26. október 2025
  • 23.-27. október 2025

Flugáætlanir 2026

  • 22.-26. apríl 2026
  • 29. apríl -3. maí 2026
  • 21.-25. maí 2026
  • 3.-8. júní 2026

Ath. Hægt er að biðja um að Tallinn verði bætt við ferðaáætlunina.

Ef engin af áætluðum ferðadagsetningum hentar þér skaltu ekki hika við að hafa samband við sölumenn Tripical: hallo@tripical.is svo við getum rætt aðra valkosti.


Helsinki er nútímaleg stórborg umlukin hafi, vötnum og fallegri náttúru. Helsinki er borg hönnunar og nýsköpunar með sérstakri samsuðu byggingarstíla. Hljóðlát og vingjarnleg með ýmsum furðulegheitum, finnskri gufu og eitt besta og framsæknasta skólakerfi heims.

Tripical býður kennurum og öðru starfsfólki skóla upp á fræðandi og skemmtilega kennaraferð og skólaheimsókn til hönnunarborgarinnar Helskinki. Þar munum við kynnast frábrugðnu skólakerfi í glæsilegu umhverfi og fræðast um áhugaverða sögu og menningu ásamt góðum skammti af skemmtun. Í skólaheimsóknum okkar leggjum við alltaf áherslu á að heimsækja áhugaverða skóla sem eru leiðandi í kennslu, hver á sínu sviði.

Við bjóðum upp á margar fræðandi kynnisferðir um borgina og erum alltaf tilbúin til að skipuleggja skemmtilega viðbótardagskrá og kynnisferðir eftir séróskum hvers hóps. Við hjá Tripical viljum einnig að makar séu velkomnir með í kennaraferðir okkar og því bjóðum við mökum upp á sérstaka skemmtidagskrá meðan á skólaheimsóknum stendur svo allir geti notið ferðarinnar sem mest.

Hönnunarsena

Finnland er frægt fyrir glæsilega og hagnýta nútímahönnun og vörumerki Marimekko og Iittala eru heimsþekkt. Frumkvöðlar hönnunar á 20. öld, á borð við Alvar og Aino Aalto, lögðu grunninn að þessu orðspori Finna og enn í dag er höfuðborgin miðstöð finnskrar sköpunargáfu. Hönnunarsena Helsinki er ein sú líflegasta í heiminum í dag og hefur áhrif víða um heim. Í hönnunarhverfi Helsinki er gnægð verslana og vinnustofa, og þar er einnig að finna hönnunarsafn borgarinnar.

Byggingarfræðileg nýbreytni

Nýstárlegur byggingarstíll Helsinki dró lærdóm sinn af hönnunarsenu borgarinnar og fjöldinn allur af perlum nútímahönnunar prýða borgina, eins og Kiasma nýlistasafnið og tónleikahöllin Musiikkitalo. Í Helsinki náði módernisminn nýjum hæðum með byggingarfræðilegri hönnun Alvar Aalto sem sést vel í Akateeminen Kirjakauppa og tónleikahöllinni Finlandia Talo ásamt hinni stórbrotnu klettakirkju Temppeliaukio, sem er hönnun Timo og Tuomo Suomalainen. Í heildarsýn borgarinnar gætir fjölda áhrifa fyrri tíma þar sem byggingar nýlistar, klassíkur og fúnktíónalisma blandast saman við áhrif ný-endurreisnar og ný-klassíkur með býzönskum áherslum.

 

Finnsk matargerð

Í matargerð leggja Finnar áherslu á staðbundnar afurður og sjálfbærni í landbúnaði þar sem árstíðarbundnar afurðir njóta sín best. Í Finnlandi er nóg framboð af villibráð og ferskum sjávarafurðum ásamt villtum berjum og skógarsveppum sem finnsk matargerð nýtir á fjölbreyttan hátt. Í Helsinki er fjöldi sælkeraveitingastaða, hefðbundinna veitingastaða og nýstárlegra bistróa og þar er einnig markaðshúsið Kauppahalli sem býður upp á fjölbreytni af finnskum sælkeravörum og árstíðabundinni uppskeru.

Náttúrulegt umhverfi

Helsinki er sannarlega nútímaleg stórborg en umhverfi hennar er stórbrotin náttúrufegurð sem auðvelt er að nálgast hvaðanæva úr borginni. Náttúran í kringum Helsinki býður upp á fjölmarga möguleika til náttúruskoðunar og afþreyingar allan ársins hring. Hvort sem það er að sigla um eyjar umhverfis borgina, ganga um strendur, fallega garða eða villt skóglendi þá er ósnortin náttúru ávallt steinsnar frá borginni. Á veturna þegar hafið frýs og snjórinn tekur yfir er tilvalið að skella sér á skíði, skauta eða veiða í gegnum ísilagt hafið umhverfis borgina og hlýja sér í finnskri gufu með reglulegu ísbaði.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Hönnun á heimsmælikvarða
  • favorite
    Æðislegur miðbær
  • favorite
    Vellíðan í sánu
  • favorite
    Finnsk matargerð

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • 4 nætur á hóteli í miðbæ Helsinki (Með morgunmat)
  • 20 kg innritaður farangur
  • Rútur til og frá flugvelli

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Fararstjórn (óska ​eftir sérstaklega)
  • Fræðsluheimsóknir og námskeið (óska ​eftir sérstaklega)
  • City Tax er ekki innifalinn í verðinu og greiðist á hótelinu

Verð frá: 125.900kr.- á mann í tvíbýli

Hotel Arthur 3 * eða sambærilegt

Þetta 3 stjörnu hótel er staðsett í Rotermanni-hverfinu í miðborg Tallinn, aðeins 300 metrum frá Gamla bænum. Herbergin á Hotel Metropol eru með minibar, gólfhiti og frítt Wi-Fi.

Herbergin í Metropolinu eru glæsileg og innréttuð. Öll eru þau með sjónvarpi með gervihnattarásum. Í hverju einkabaði er sturta og hárþurrka.

Einnig er snyrtistofa á staðnum. Þar er hárgreiðslustofa, rakari og snyrtifræðingur. Þar er einnig hægt að fá handsnyrti- og fótsnyrtiþjónustu.

Daglegur morgunverður og úrval af eistneskum og alþjóðlegum réttum er á veitingastaðnum Pizzanaut. Á hótelinu er einnig bar í anddyri.

Reakoja Plats, hjarta gamla bæjarins, er í 800 metra fjarlægð frá stórborginni. Kanuti Aed garðurinn er í 50 metra fjarlægð. Farþegahöfnin er í 900 metra fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 7,8 og einkunn 9,4 fyrir staðsetningu á booking.com.

Verð frá: 145.900kr.- á mann í tvíbýli

Holiday Inn Helsinki West - Ruoholahti 4* eða sambærilegt

Þetta hótel er staðsett nálægt sjávarsíðunni í Helsinki, 1,5 km frá Bulevardi-verslunargötunni.

Það er með loftkæld herbergi með flatskjásjónvarpi, te/kaffivél og ókeypis WiFi. Öll herbergin á Holiday Inn Helsinki West – Ruoholahti eru með nútímalegar innréttingar, gervihnattasjónvarpsrásir og öryggishólf fyrir fartölvu. Gestir hafa aðgang að lítilli líkamsræktarstöð og geta slakað á í gufubaðinu.

Holiday Inn Open Lobby er með afslappað rými í stofustíl þar sem gestir geta borðað, slakað á eða unnið. Hressandi drykkir eru bornir fram á barnum og To Go Café býður upp á drykki, kaffi og snarl allan sólarhringinn.

Ruoholahti-neðanjarðarlestarstöðin er 300 metrum frá Holiday Inn Ruoholahti og í 5 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Helsinki. Finnska þjóðaróperan er í 10 mínútna akstursfjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunn 8,5 og einkunn 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com.

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Dagskrár hverrar fræðsluferðar er háð ferðadagsetningum hverju sinni. Dagskrá sem er innifalin í starfsferðum Tripical eru vinnustaðarheimsóknir/fræðsla sem er sniðin að þörfum hvers hóps.

Starfsferðir eru hálfgert dómínó og ekki alltaf ljóst hvað er hænan og hvað er eggið. Að því sögðu þá þekkjum við viðmið til að fá styrk og hvaða gögn þið þurfið. Það getur tekið okkur tíma að fá fullnægjandi gögn en við höfum fengið A+ í kladdann hjá sjóðunum og komið öllum út sem hafa tekið tilboði frá okkur. Við leggjum alltaf mikið upp úr fræðsluhlutanum og reynum að gera ferðina ykkar gefandi, áhugaverða sem og skemmtilega.

Áður en fræðslufúsir ferðalangar leggja í hann, fær forsvarsmanneskja hópsins nákvæma dagskrá og öll nauðsynlegum gögn sem tengjast ferðinni. Svo bara læra, lifa og njóta!

Verð frá 125.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Fyrirspurn um ferð

  • DD slash MM slash YYYY

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 4, 4.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT