Hafðu það afslappað!
Það er búið að vera frekar mikið álag á þér undanfarið. Þess vegna viljum við taka þig í fimm stjörnu afslöppun við Svartahafið.
VARÚÐ: Talsverðar líkur á kokteiladrykkju og sólbrúnku!
Skelltu þér til Slanchev Bryag (e. Sunny Beach) í Búlgaríu. Flogið er frá Keflavík til Svartahafsins og gist á fimm stjörnu hótelinu: Galeon Residence and Spa.
Sunny Beach er einn vinsælasti sólaráfangastaður í Evrópu. Það eru margar ástæður sem spila inn í; þær helstu eru mjög ódýrt verðlag, sólríkt veður, fallegar strendur og afslappað andrúmsloft, en Búlgaría er einn ódýrasti ferðamannaáfangastaður í heiminum. Meðfram 8km strandlengjunni er fjöldinn allur af veitingastöðum, börum og skemmtistöðum fyrir ýmis tilefni. Það er mjög mikið af afþreyingu í boði, hvort sem það eru tívolí, vatnsrennibrautargarðar, spa og heilsumeðferðir eða jet-skii leigur.
Á neðsta hluta Sunny Beach er að finna Nessebar, 3000 ára gamalt þorp sem er á lista UNESCO yfir friðlýst svæði. Bærinn er mjög rómantískur og í þröngum götum hans eru fjölmargir sjávarréttarstaðir, minjagripaverslanir og markaðir. Burgas er í 30 mínútna fjarlægð frá ströndinni svo það stutt að fara í borgina og á flugvöllinn. Borgin geymir stærstu höfn Búlgaríu og 250.000 íbúar hennar gera hana að fjórðu stærstu borg Búlgaríu.
Sólríka ströndin
Í stuttri fjarlægð frá tilþrifamiklum fjallagörðum og aldagömlum borgum má finna rúmlega 8 kílómetra strandlengu undir nafninu Sunny Beach, eða Slanchev Bryag, eins og hún heitir á móðurmáli sínu. Þessi vinsæli ferðmannastaðuur ber að geyma fjöldan allan af veitingastöðum, lifandi börum og næturklúbbum og göturnar iða af lífi – frá hótelgörðum efst á svæðinu niður til hins UNESCO vottaða Nessebar.
Sumafrí til Sunny Beach eru ekki ný af nálinni heldur er svæðið einn vinsælasti sumarleyfis staður í Evrópu, og ekki af ástæðulausu; löng sandslengjan, hlýtt veður, iðandi mannlíf og ódýrir kokteilar – svæðið selur sig sjálft.
Nágrannaþjóðir okkar Íslendinga hafa fyrir löngu áttað sig á þessu – enda eru Svíar, Norðmenn og Finnar með þeim þjóðum sem heimsækja Svarthafið hvað mest. Búlgaría er nefnilega með ódýrustu löndum í heiminum, og dansar á toppnum hér í Evrópu.
Fíngerð og leirlituð ströndin býður upp á fjölmarga afþreyingu; jet-skii, bátsferðir, hjólabátar er aðeins hluti af úrvalinu. Víða er hægt að leigja sér sólbekki eða finna sér stað til þess að koma handklæðinu þægilega fyrir. Sunny Beach er bláfána strönd (Blue Flag beach) sem þýðir að hún hefur hlotið viðurkenningu fyrir öryggi, hreinlæti og umhverfisvernd.
Í aðeins 10 mínútna fjarlægð frá Sunny Beach er hinn sægufrægi Nessebar, sem nær yfir 3000 ár aftur í tímann og er einn elsti bær Evrópu. Nessebar var fundinn af Þrakverjum, en hefur í gegnum aldirnar heyrt undir Grikkjum, Rómverska veldinu og Ottoman reglunni. Vegna stórbrotinnar sögu sinnar og aldurs er Nessebar þakin hofum, kirkjum, musterum sem hafa varðveist í gegnum árin, þar er einnig “Ottoman stíleseruð” Bisílíka frá miðöldum. Á milli rómverskra rústa og þeirra 44 kirkna í bænum má finna endalaust úrval girnilegra sjávarréttastaða, litlar bútík- og fornminjaverslanir, matarmarkaði og leður- og handverksbúðir. Það er því ekki að undra að þessi rómantíski bær sé á heimsminjaskrá UNESCO.
Burgas er fjórða stærsta borg Búlgaríu. Hún er aðeins í 30 mínútna keyrslu frá Sunny Beach. Miðbæjarkjarninn er lítill en þar er að finna krúttuð kaffihús og verslanir, en rétt hjá honum er að finna tvær stórar verslunarmiðstöðvar – tilvalið að skella sér þangað þess að endurnýja fataskápinn eða uppfæra fartölvuna. Votlendin í kringum Burgas eru heimsþekkt fyrir stórbrotinn fjölbreytileika dýralífs og náttúru. Burgas vatnið er stærsta stöðuvatn landsins og er staðsett í miðri borginni. Það er mjög mikilvægt fyrir fuglaríkið en yfir 250 tegundir fugla búa á svæðinu, en 61 af þeim eru í útrýmingahættu í landinu. Rétt hjá er Via Pontica, næst stærsti viðkomustaður farfugla í Evrópu, sem er einnig heimili margra sjaldgæfra fiska og hryggleysingja. Atanasovo vatnið er eitt af tveimur saltvatnssvæðum við Svartahafið, en hundruðir þúsunda storka, pelíkana og grátrana fara þar í gegn á hverju ári. Fyrstu ummerki mannsins á svæðinu má rekja aftur um 3000 ár, til brons- og járnaldar. Stærstu ummerkin eru eftir Þrakverkja en þeir gerðu landsvæðið auðugt af fornleifaminjum frá um 400 f.kr.
Búlgaría verður sífellt vinsælli ferðamannastaður og skyldi engan undra. Ásamt því að búa yfir öllu því sem góð frí þurfa, trónir landið ofarlega á lista yfir ódýrustu áfangastaði Evrópu. Hluti Búlgaríu liggur að Svartahafinu, þar sem veðurfar er hlýtt og gott yfir sumartímann, hitastig á milli 25–30 gráður.
Búlgaría á sér landamæri að fimm ríkjum og í landinu blandast saman margir ólíkir menningarheimar. Það státar af fögrum byggingum og stórbrotnum arkitektúr, sólríkum ströndum, gómsætum mat og bjór sem virðist hreinlega alltaf vera á afslætti.
Saga Búlgaríu spannar þúsundir ára. Í gegnum aldirnar hefur landið verið eign Þrakverja, Grikkja, Rómverja og Tyrkja. Plovdiv er elsta borg Búlgaríu, yfir 6000 ára gömul. Margir fræðimanna fullyrða reyndar að um sé að ræða elstu borg Evrópu.
Búlgaría var eftir seinni heimsstyrjöld partur af austurblokk Sovétríkjanna og þar ríkti gallharður kommúnismi um árabil. Eftir hina miklu byltingu, og fall Berlínarmúrsins árið 1989, gaf Kommúnistaflokkurinn eftir völd sín, kosningar voru gefnar frjálsar, og landið hefur síðan verið lýðræðisríki. Búlgaría er aðili að Evrópusambandinu.
Höfuðborgin Sofia er ein ódýrasta borg Evrópu. Þar má gera ráð fyrir að kílómetraakstur með leigubíl kosti undir 100 kr. og hamborgarinn litlu minna. Þá er matarmenning Búlgaríu afskaplega spennandi. Skoðaðu búlgarska matarbloggið okkar hérna!
Búlgaría er oft kallað Land rósanna, en yfir 85% af framleiðslu á rósaolíu í heiminum kemur þaðan. Auk þess eru Búlgarar einnig stórtækir í framleiðslu á lavenderolíu. Þetta sýnir vel hve gróðursælt landið er, loftslagið er hlýtt og náttúran fjölskrúðug.
Burgas er fjórða stærsta borg Búlgaríu, og í nágrenni hennar er að finna hið rómaða strandsvæði Sunny Beach, sem er einn vinsælasti sumarleyfisstaður í allri Evrópu, og laðar að sér fjölda gesta ár hvert. Ströndin er í um 30 mínútna fjarlægð frá Burgas og þar er að finna eitthvað fyrir alla, eins og tívolí, vatnsrennibrautagarða, alls konar sjávarsport, hjólatúra og veitingastaði af ýmsu tagi. Strandlengjan er um átta kílómetra löng og skiptist upp í mismunandi svæði.
Nyrst á strandlengjunni má finna algjöra fjölskylduparadís með fjölda stórra og glæsilegra hótela ásamt fjölskylduvænum útisvæðum.
Neðar við ströndina er svo kjarni svæðisins, og þar ríkir vægast sagt allt önnur, háværari og líflegri stemning. Við Flower Street götuna, sem liggur þvert á strandgötuna er að finna fjölmarga veitingastaði, næturklúbba og bari. Þar safnast fólk saman á kvöldin til að skemmta sér fram á nótt. Fyrir neðan þennan kjarna er bærinn Nessebar, sem skiptist í tvennt, þ.e. gamla og nýja hlutann. Í nýja hlutanum eru mörg kaffihús og litlar götur, en þangað sækja aðallega innfæddir. Gamli bærinn, sem stendur á eyju neðst við strandlengjuna, er yfir 3000 ára gamall og er á heimsminjaskrá UNESCO. Gamli bærinn býður upp á öðruvísu andrúmsloft en ofar á strandlengjunni. Þar er að finna mikið af litlum verslunum, líflegum mörkuðum og handunninni vöru. Gott úrval veitingastaða eru á svæðinu, margir sjávarréttastaðir, sem og margir fínni veitingastaðir. Byggingastíll bæjarins er líka allt annar, göturnar eru hellulagðar með litlum múrsteinum og húsin lágreist. Í miðbænum má finna gamlar rústir frá þeim tíma er svæðið var í eigu Grikkja og Rómverja.
Varna er þriðja stærsta borg Búlgaríu, en Tripical býður upp á ferðir til Albena strandsvæðisins og golfferðir á golfvellina í kringum Varna. Albena strandsvæðið er nokkuð ólíkt Sunny Beach að því leyti að þar er áhersla lögð á að gera vel við fjölskyldufólk. Þar er auðvitað mikið af börum og veitingastöðum en stemmingin allt önnur. Svæðið er minna í sniðum og fyrst og fremst mjög öruggt og barnvænt. Ýmis þjónustu tengd vellíðan er í boði á svæðinu, til dæmis má skella sér í spa eða fara í ýmis konar dekur. Áreiti er lítið og staðurinn því tilvalinn til að baða sig í sólinni og taka lífinu rólega.
Golfvellirnir í kringum Varna eru heimsþekktir og hafa hlotið mjög góða einkunn gesta, þá sérstaklega Thracian Cliffs og Lighthouse golfvellirnir. Thracian Cliffs er 18 holu völlur og var valinn besti golfvollur Evrópu 2014. Hann er staðsettur í Marina Village. Lítil strönd er nálægt vellinum, þar sem hægt er að fara í sólbað og njóta lífsins eftir hring á golfvellinum. Lighthouse Golf and Spa er eins og nafnið gefur til kynna golfvöllur sem einnig býður upp á heilsulind. Hann er staðsettur nálægt Varna. Völlurinn sjálfur er hannaður af Ian Woosnam, einum af færastu kylfingum heims, í samvinnu við EGD (European Gold Design) í Búlgaríu. Frá árinu 2016 hefur Lighthouse verið einn af áfangastöðum Evrópsku mótaraðarinnar. Á svæðinu er svo fimm stjörnu lúxushótel þar sem öll þjónusta innifalin.
Kynntu þér ferðirnar okkar til Búlgaríu í sumar. Við vitum að þú munt elska þær.
Hér eru hugmyndir um dagsferðir sem eru í boði á meðan ferð stendur. Hægt verður að panta dagsferðir hjá fararstjórum á hóteli á auglýstum viðtalstímum.
Dagsferð til Plovdiv
Tripcial verður með dagsferð til Plovdiv. Við tökum rútuna frá hótelinu og höldum afstað. Akstur er um 2 ½ klst hvora leið. Plovdiv er elsta borg Búlgaríu en hún er yfir 6000 ára gömu og fræðimenn deila um hvort hún sé elsta borg Evrópu. Plovdiv er einnig næst stærsta borg Búlgaríu á eftir Sofiu, höfuðborginni. Dagsferðin verður kynnt sérstaklega á hóteli ásamt tímasetningu og verði.
Verslunarferð til Burgas – hálfur dagur
Morgunferð til Burgas – fjórðu stærstu borgar Búlgaríu og höfuðborgar Svartahafsins.
Við kíkjum í miðbæ Burgas og stóra verslunarmiðstöð. Lagt er af stað seinni hluta dags.
Innfalið:
Nessebar Panorama – hálfur dagur
Skoðunarferð eftir hádegi um gamla hluta Nessebar – 3000 ára gömul fornbyggð og verndarsvæði UNESCO. Við göngum um götur bæjarins, skoðum kirkjur sem ná aftur til 6. – 18. aldar og förum í vínsmökkun. Haldið er til baka um kvöldið.
Innfalið:
Rívería Svartahafsins: Varna og klaustur Aladzha – heill dagur
Brottför um morguninn, útsýnisferð niður með norðurhluta strandlengju Svartahafsins meðfram hryggjum Balkan fjallanna, heimsókn til klaustur Aladzha sem nær aftur til 13. aldar, höldum áfram til Varna – sjávarhöfuðborgar Búlgaríu, borðum hádegismat og göngum um miðbæinn og förum heim seinni part dags.
Innifalið:
Borg hjálpræðis: Sozopol – heill dagur
Við leggjum af stað um morguninn og keyrum meðfram syðri hluta strandlengju Svartahafsins til Sozopil – hinnar forngrísku nýlendu – kölluð Apollonia eða Borg Hjálpræðis. Við göngum um hellulagðar götur gamla bæjarins og heimsækjum Kirkju heilagrar móður guðs sem er þekkt fyrir sinn ósvikna arkitektú og myndaskreytta veggi. Síðan er farið í rómantíska siglingu kringum bæinn áður en við borðum hádegismat. Síðan höldum við til Burgas þar sem hægt að fara í verslunarmiðstöðina áður en haldið að kvöldi til.
Innifalið:
Kvöld að búlgörskum hætti – hálfur dagur
Brottför seinni hluta dags, keyrt er um sveitirnar og borðað á þaklausum veitingastað. Fjögurra rétta máltíð að búlgörskum sið, vín og bjór úr tunnum er í í boði. Þjóðdansar og nestinarski elddansar og leikir verða í gangi fyrir fjölskyldu fólkið. Haldið er til baka seint um kvöld.
Strandzha enduruppgötvaður: Jeppa safari – heill dagur
Brottför að morgni og keyrt í gegnum fjalllendi Búlgaríu á fjórhjóladrifnum bíl. Leiðin liggur meðfram fjallavegum niður að Strandzha fjalla-þjóðgarði þar sem þið fáið tækifæri til þess að skoða fossa, og hella í dásamlegri nátturú, þar fáið þið einnig tækifæri til þess að fara í sólbað áður meðan hádegismatur í picnic þema við árbakka Veleka. Seinni hluta dags fáið þið að heimsækja ekta Strandzha þorpin, og þar á meðal Brashlyean þorpið – sögulegt svæði þekkt fyrir bygginalist sína – áður en farið til baka um kvöldið.
Innifalið: