Þessi ferð er algjör tía! Króatía býður upp á kræsingar og konfekt fyrir öll skilningarvitin, og því tilvalin til að vekja þau af værum blundi síðustu mánaða. Hvernig hljómar að liggja undir fagurgrænum furutrjám, synda í kristaltærum sjó, borða ljúfengan mat og njóta ótrúlegs útsýnis við róandi öldunið Adríahafsins? Ekki ýkja slæmt, er það?
Ferðalagið hefst á tveimur nóttum í hinni sögufrægu Dubrovnik, þar sem þér gefst færi á að gíra þig í rólegheitum upp í komandi ævintýri. Borgin er stórbrotin í byggingarstíl og mjög áhugavert og gaman að ganga um hennar hlykkjóttu stíga. Þá er ströndin hrein, sjórinn tær og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og börum sem staðsettir eru við sjávarsíðuna. Einnig má finna dagsferðir af ýmsu tagi, sem þú getur valið og farið á eigin vegum.
Á þriðja degi er haldið af stað í sjö nátta lúxussiglingu um grænar eyjar Adríahafsins á snekkjunni Ambassador, með stoppum og dagstúrum. Afslappaður sólarkokteill af suðrænum ströndum og sögulegum minjum sem er vel þess virði að skála fyrir. Sérhver áningarstaður á leiðinni er uppgötvun útaf fyrir sig; náttúruperlur og faldir fjársjóðir gera siglinguna að guðdómlegum leiðangri með menningarlegu ívafi og dassi af rómans. Athugið að þátttökuframboð er takmarkað í þessa ferð.
Strandlína Króatíu, 2.000 kílómetrar og eyjarnar 1.200 sem henni tilheyra, er óspillt svæði og öllum opið. Hér höfum við alls kyns eyjar: Grænar eyjar, kalksteinseyjar, agnarlitlar smáeyjar – þar sem ekkert er byggt, nema kannski gamall og sjarmerandi viti sem breytt hefur verið í móttöku fyrir ferðafólk, náttúrueyjar þar sem einungis lifa dádýr (og þau þiggja alltaf eitthvað gott að maula), eyjar með seiðandi kokteilbörum sem laða að VIP hópa, eyjar fyrir brimbrettaiðkendur, eyjar fyrir höggmyndalistunnendur, eyjar sem eru nær Ítalíu en tilheyra samt Króatíu, eyjar 120 höfrunga, eyjar fornra fiskveiðihefða, eyjar sem þekktar eru fyrir vínið sitt, osta eða ansjónsubökur. Rúmlega 80% króatísku eyjanna eru alveg mannlausar.
Náttúrufegurð Króatíu er stórbrotin og Adríahafið leggur sannarlega sitt af mörkum til að gera þetta svæði jafn ómótstæðilegt og raunin er. Sjórinn meðfram strandlengju Króatíu er sá tærasti í allri Evrópu (skv. gögnum Evrópuráðs) og um leið mikilvægasta auðlind landsins, bæði vegna sjávarfangs og ferðamannaiðnaðarins.
Kafaðu, snorklaðu, sigldu og skoðaðu! Njóttu þessarar einstöku upplifunar í eigin persónu. Við lofum að þú verður ekki fyrir vonbrigðum!
Hotel Dubrovnik Palace er fimm-stjörnu hótel, frábærlega staðsett á Lapad skaga, umvafið fagurbláu hafi og með stórkostlegt útsýni út á Elaphiti eyjarnar.
Nútímaleg hönnun prýðir hótelið að innan sem utan. Beint aðgengi er að rólegri strönd og tveimur útisundlaugum. Heilsulindin hefur innilaug, eimbað, og líkamsrækt. Að auki er aðgengi að PADI köfunarstöð, tennisvelli, og fjölda hlaupa- og gönguleiða um skógi vaxnar hlíðar og upp á Petka hæðina. Fjórir ólíkir veitingastaðir, þar á meðal einn á ströndinni og sundlaugabar við útilaugarnar.
Herbergin hafa öll svalir, loftkælingu, Wi-Fi, sér baðherbergi, flatskjá og mini-bar. Frábær gististaður á þessum merka stað í Króatíu.
Þessi snekkja mun standast allar þínar væntingar. Hér er hvert smáatriði útpælt og hugsað fyrir öllu sem lætur þér og þínum líða vel, í einstöku umhverfi og yfir spennandi dagskrá. Dagtúrarnir eru sérstaklega skipulagðir til að sýna hinn sanna kjarna Dalmatíu. Verðlaunaðu sjálfan þig og leyfðu þér að njóta einstakrar náttúru og sögulegra mannvirkja um borð í hinni glæsilegu Ambassador.
Lúxusgisting í 19 farþega káetum. Allar káetur hafa rúm 200x80cm eða 200x160cm, loftræstingu, fataskáp og geymslurými undir rúmum, flatskjá, öryggishólf, hárþurrku, auk sér baðherbergis með sturtu. 220V tengi, björgunarvesti og brunavarnarkerfi. Á Ambassador er lounge bar við rúmgóða verönd, glæsilegur veitingastaður með áherslu á miðjarðarhafsmat og vín úr héraði. Stór sólpallur með sólstólum og heitum potti. Sundpallur með tveimur stigum fyrir greiðan aðgang í sjóinn. Möguleiki er á afþreyingu eins og snorkeling, kayak, SUP, jet ski.
Boðið er upp á káetur á þremur mismunandi þilförum. Tvær þeirra eru á efra þilfari (upper deck) og hafa geggjað útsýni út um stóra glugga. Á aðalþilfarinu (main deck) hafa káeturnar glugga og því góða birtu. Aðrar eru á almenna þilfari (standard deck) og hafa tvö kýraugu. Allar káeturnar eru 14-15m2.
Dagskrá *:
Dagur 1: Dubrovnik – Gist verður á 5* Hotel Dubrovnik Palace
Dagur 2: Dubrovnik – Gist verður á 5* Hotel Dubrovnik Palace
Dagur 3: Siglingin hefst! Dubrovnik – Elaphiti eyjar
Dagur 4: Mljet þjóðgarðurinn
Dagur 5: Korcula
Dagur 6: Vis
Dagur 7: Hvar
Dagur 8: Brac – Bol & Pucisca
Dagur 9: Pucisca – Omis – Split
Dagur 10: Heimför frá Split
*með fyrirvara um breytingar
Gestgjafinn er ein af okkar allra bestu. Guðrún Vala Benediktsdóttir hefur sinnt hinum ýmsu ferðum fyrir Tripical og býr yfir mikilli þekkingu og þeirri reynslu sem þarf til að allt gangi að óskum og gestir okkar verði sem ánægðastir. Áreiðanleg, úrræðagóð og stórskemmtileg.
Fyrir utan að vera krónískur ferðalagafíkill og áhugamanneskja um hin fjölbreyttu svæði heimskortsins, hefur Guðrún unnið um áratugaskeið í veitinga- og þjónustugeiranum. Frá árinu 2012 hefur hún séð um rekstur á einum allra vinsælasta veitingastað Reykjavíkur, Snaps. Þar hefur hún staðið í brúnni og stjórnað þessu farsæla veitingahúsi með afar góðum árangri, og veit því sitthvað um að láta hlutina ganga vel og samkvæmt áætlun.
Eins og allir aðrir hefur Guðrún sig lítið getað hreyft út fyrir landsteinana síðustu misseri, og ekki laust við að hennar stóra ferðahjarta sé farið að tifa hraðar, nú þegar aftur má fara út í heim og njóta alls þess sem hann hefur upp á að bjóða.
Dubrovnik er borg í suðurhluta Króatíu sem liggur að Adríahafinu. Dubrovnik er þekkt fyrir gamla bæinn sinn sem er umkringdur 6 metra þykku steinvirki frá 15. öld. Vel varðveittar byggingar borgarinnar þykja einstaklega fallegar og má sjá allt frá 800 ára gömlum kapellum að kastölum sem eiga aldargamla sögu. Götur borgarinnar bjóða upp á mikið af spennandi veitingastöðum sem sérhæfa sig í sjávarréttum. Gaman er að segja frá því að borgin hefur verið mikið notuð við kvikmyndatökur frægra bíómynda og þátta, höfuðborgarsenur Game Of Thrones: King’s Landing hafa t.d. verið teknar upp í Dubrovnik.
Elaphiti eyjarnar eru lítill eyjaklasi sem teygir sig frá norð-vestur Dubvronik út í Adríahafið. Eyjarnar eru þaktar grænum miðjarðarhafsgróðri og laða að sér mikið af ferðamönnum vegna stórkostlegs útsýnis.
Mljet er ein mest aðlaðandi eyja Adríahafsins. Stór hluti hennar er hulin skógi, en inn á milli má finna vínekrur og litlar byggðir. Á vesturhluta eyjunnar er þjóðgarðurinn Mljet, þar sem finna má einstaka skóga og saltvatnslón. Þjóðgarðurinn er ósnert paradís og samkvæmt sögum stoppaði söguhetjan Odyseus á ferðalagi sínu í 7 ár í þjóðgarðinum vegna þeirrar einstöku fegurðar sem þar er að finna.
Korcula er umvafin bæjarvirki og sögufrægu hliði sem er minnisvarði dýrðar og krafts þessa sérstaka miðaldabæjar. Það var aðeins neðar í götunni sem hinn frægi ferðalangur Marco Polo fæddist árið 1254. Hann tilheyrði einni göfugustu ætt Korcula.
Þú getur verslað einstaka minjagripi meðan þú labbar þröngar og skakkar götur bæjarins, þar sem handverks- og skartgripaverslanir eru á hverju strái.
Grikkir stofnuðu sína fyrstu nýlendu á eynni Vis – sem var þá nefnd Issa – þar sem þeir ræktuðu fyrsta vínviðinn á 4.öld. Á eynni er klaustur sem byggt var á 16.öld, úr grískum og rómverskum rústum. Eyjan var oft notuð sem felustaður kafbáta og herbáta og má sjá ummerki þess við ströndina. Ekki má gleyma að kvikmyndin Mama Mia! Here we go again, var tekin upp á eyjunni fögru!
Hvar er talin ein vinsælasta eyja Króatíu, og þú munt fljótlega átta þig á hvers vegna. Strandgatan iðar af mannlífi, kaffi- og veitingahús á hverju horni, vínbúðir, markaðir og barir flæða meðfram hafnargötunni.
Meldaðu þig í kvöldgöngu um bæinn og kynntu þér sögu og menningararfleið Hvar. Komdu síðan og sjáðu kynningu á aldagamalli hefð lavander-ræktunnar um kvöldið.
Hvítir og gjáandi steinar stíga upp úr jörðinni og rísa upp meðfram hæðunum. Þeir gera þennan stað einstakan því steinarnir þykja svo glæsilegir að þeir hafa verið notaðir í byggingu Hvíta Hússins í Washington DC, Alþingishússins í Vín og fleiri þekktar byggingar. Þessi einstaki staður hefur varðveitt ósvikinn arkitektúr Miðjarðarhafsins og hefur að geyma grófa sveitastemmningu í djúpum fjörðum sínum. Bærinn Milna á eynni Brač byggðist upp á 16.öld, þegar byggð var kirkja og virki á svæðinu. Eyjan er þekkt fyrir gæða steinnámur, sumar hverjar frá fornöld. Löng hefð múrara er á eyjunni sem byggingarlistin ber með sér.
Suðupottur menningar: Split – stærsta borg Dalmatíu. Hún er talin vera 1700 ára gömul og íbúafjöldi hennar gerir Split að næst stærstu borg Króatíu. Í sögulegum kjarna Split, og listað á Heimsminjalista Menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) stendur massíf Höll rómverska keisarans Diocletian, og hefur gert síðan á fjórðu öld fyrir Krist. Í gegnum aldirnar hefur gamli bær Split byggst inn í og kringum höllina, þar sem má finna þrjú rómversk musteri og stærðarinnar grafhýsi. Rómverjar byggðu mikið af byggingum Split og má finna fornminjar sem ná aftur til 500 f.kr.
Finndu þinn uppáhalds veitingastað fyrir góðan kvöldverð, fáðu þér vínglas (eða glös), eða veldu þér króatískan kaffibolla úr úrvali kaffihúsa og við göngu- og strandgötu bæjarins: Riva.
Hvernig hljómar að liggja undir furutrjánum, synda í kristaltærum sjónum, borða góðan mat og njóta ótrúlegs útsýnis yfir grænar víkur við róandi öldunið. Nú er rétt að stilla sig inn á komandi frídaga, og slaka á áður en ævintýrið hefst.
Í dag býðst gestum upp á leiðsögn á ensku um gamla bæ Dubrovnik sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Einnig er bærinn heimsfræðgur fyrir að vera einn af tökustöðum þáttanna Game of Thrones. Hópurinn hittist kl 15:00 við Pile hliðið. Þaðan verður farið verður um áhugaverða staði og að því loknu er öllum frjálst að skoða sig um á eigin vegum. Að öðru leiti er þetta frjáls dagur í Dubrovnik.
Frjáls morgun í Dubrovnik áður en haldið verður um borð í lúxussnekkju við höfnina eftir hádegi. Hópurinn verður formlega boðinn velkominn kl. 16:00 og þá verður siglt frá Dubrovnik og leitað af mannlausri vík þar sem hægt verður að njóta hafsins, augabliksins og upphaf þessarar ógleymanlegu ferð. Báturinn fer um Elafiti eyjarnar og síða verður akkeri kastað við Sipan höfn þar sem kvöldverður verður borinn fram. Bátur verður yfir nótt í Sipan höfn.
Njótið morgunverðar um borð áður en siglt verður af stað til móts við hinn einstaka þjóðgarð Mljet. Hann er það svæði Adríahafsins sem er hvað þéttgrónast, þekkt fyrir skóga sína, saltvötn, strandir, góða fiskveiði og dýrategundir í útrýmingarhættu. Heimsækja má tvö saltvötn innan Mljet. Á stærra vatninu er lítil eyja St. Mary sem geymir klaustur frá tímum Rómaveldis sem minnir á kastala úr ævintýrasögum. Báturinn verður yfir nótt í Mljet.
Í dag verður siglt að annarri perlu Adríahafsstrandlínunnar, Korčula eyju. En áður en lagt verður að bryggju þar, verður stoppað við Lumbarda ströndina, þar sem gefst færi á að stinga sér í sjóinn. Hádegisverður um borð. Á Korčula (UNESCO) eyju finnast margar goðsögur og minnisvarðar. Bærinn er fæðingastaður fræga heimshornaflakkarans, Marko Polo. Þar er tilvalið að vafra um þröng strætin og velja sér einhvern góðan veitingastað og horfa á sólsetrið. Báturinn verður yfir nótt í Korcula.
Á Korcula bjóðum við upp á að skrá sig í vín- hunangs- og olíusmökkun (lengd ferðar u.þ.b. 2 klst.). Ferðin hefst kl. 14:00
Siglt verður um morguninn áleiðist til eyjunnar Vis, sundstopp á leiðinni. Vis er þekkt fyrir að hafa verið hernumin yfir 50 ára skeið og var eyjan að þeim sökum lokuð fyrir ferðamönnum og þess vegna haldist vel varðveitt og ósnert. Allt frá strendum eyjunnar til landbúnaðarins og arkitekúrs. Mælt er með því að leigja vespu til að skoða sig um á þessari stórkostlegu eyju. Á toppi eyjunnar er eðal veitingastaður sem vinnur með úrvals hráefni úr héraði. Nóg af náttúrulegum ströndum og afþreygingu s.s. jet ski, köfun, brimbretti o.fl. í tærum sjónum. Þess má geta að kvikmyndin Mamma Mia 2 var tekin á eynni. Báturinn verður yfir nótt í Vis.
Á Vis verður hægt að bóka sig í ítarlega skoðunarferð um eyjuna þar sem verður m.a. skoðað stærsta ferskvatnssvæði eyjunnar Lokva, rústir flugvallar frá seinni Heimsstyrjöldinni og hæsta punkt eyjunnar, Hum, sem er í 587m hæð, þar sem síðasta herstöðin var staðsett. Möguleiki á að enda í kvöldverði á sveitasetri, með vínsmökkun og réttum að hætti heimamanna. Lengd ferðar u.þ.b. 4 klst. Ferðin hefst kl. 18:00.
Dagurinn hefst á því að sigla að eyjunni Bisevo þar sem finna má hinn fræga Bláa Helli. Upprunalega var inngangur í hellinn neðan við sjávarmál sem krafðist þess að forvitnir ferðalangar urðu að kafa til að komast inn í þennan dulúðlega helli. Aðgengi að hellinum fer hins vegar alveg eftir öldugangi svo það skýrist ekki fyrr en á deginum hvort verði hægt að láta verða af þessari heimsókn. Aðgangur í hellinn kostar ca. 8 evrur á mann. Því næst er stefnan er tekin á eyjuna Hvar, sem á sér langa og ríka sögu. Þar gefst frjáls tími til að skoða sig um í landi, eða slaka á um borð. Yfir sumarið er bærinn Hvar mjög vinsæll áfangastaður, sérílagi fyrir skemmtanaglaða sem flykkjast á Carpe Diem næturklúbbinn. Báturinn verður yfir nótt í Hvar.
Á Hvar er tilvalið er að spreyta sig í vatnasportinu, eða bara ráfa um götur bæjarins í ævintýraleit.
Í dag verður siglt til eyjunnar Brač, og stoppað í Bol, þar sem frjáls tími gefst til slökunar. Bol er elsta byggð eyjunnar, staðsett í einangruðu umhverfi við rætur fjallsins Vidova. Strandlengja eyjunnar þykir mjög falleg og þá sérstaklega tanginn Zlatni Rat. Vestan við tangann má sjá Dragon’s Cave þar sem útskorin kapella frá 14. öld dvelur við ströndina.
Njóttu þín í sól- og sjóbaði eða kannaðu bæjarstemningu áður en hádegisverður verður borinn fram um borð.
Snekkjan siglir áfram og leggur við bæinn Pucisca yfir nóttina, sem er fallegur bær sem einkennist af steinhlöðnum hvítum byggingum hennar en byggingarefnið er sótt beint af eyjunni sem hefur ótal steinanámur. Þess má geta að kalksteinssúlur Hvíta Hússins í Washington DC voru unnar úr efnivið frá Pucisca, sama á við um Ráðhúsið í Vín og margar aðrar frægar byggingar heimsins. Báturinn verður yfir nótt við Pucisca.
Síðasti dagur siglingarinnar, svo nú er um að gera að njóta, taka síðustu hoppin í sjóinn í kringum fögru Omis. Borgin er þekkt fyrir miðaldarstíl, borgarmúra og brogarvirki, hlaðnar kirkjur við dásamlega strandlengju. Eftir hádegi verður lagt að landi við höfuðborgina Split. Við mælum með að slást í för með enskumælkandi leiðsögumanni um borgina og svo njóta frjáls tíma í þessari dásamlegu borg. Báturinn verður yfir nótt í Split höfn.
Pakkað og tékkað út af káetunum. Njótið morgunverðar áður en farið er frá borði. Útritun er kl. 09:00. Akstur á Split flugvöll/inn í Split.