Þessi ferð er algjör tía! Króatía býður upp á kræsingar og konfekt fyrir öll skilningarvitin, og því tilvalin til að vekja þau af værum blundi síðustu missera. Hvernig hljómar að liggja undir fagurgrænum furutrjám, synda í kristaltærum sjó, borða ljúfengan mat og njóta ótrúlegs útsýnis við róandi öldunið Adríahafsins? Ekki ýkja slæmt?
Ef þú ert með hóp (10 manns eða fleiri) sendu okkur fyrirspurn í gegnum fyrirspurnarformið hér til hliðar, með áætluðum fjölda og dagsetningum og við könnum hvað gæti verið laust fyrir ykkur. Ef þú ert með hóp sem er 30 manns eða fleiri getum við kannað möguleika á prívat brottför fyrir ykkur.
Vikulegar brottfarir frá lok apríl fram í miðjan október 2023!
Ferðalagið hefst í hinni sögufrægu Dubrovnik, þar sem þér gefst færi á að gíra þig upp í komandi ævintýri. Borgin er stórbrotin í byggingarstíl og mjög áhugavert og gaman að ganga um hennar hlykkjóttu stíga. Þá er ströndin hrein, sjórinn tær og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og börum sem staðsettir eru við sjávarsíðuna.
Frá Dubrovnik er haldið af stað í sjö nátta lúxussiglingu um grænar eyjar Adríahafsins, um borð í bát í deluxe superior gæðaflokki, með stoppum og dagstúrum. Afslappaður sólarkokteill af suðrænum ströndum og sögulegum minjum sem er vel þess virði að skála fyrir. Sérhver áningarstaður á leiðinni er uppgötvun útaf fyrir sig; náttúruperlur og faldir fjársjóðir gera siglinguna að guðdómlegum leiðangri með menningarlegu ívafi og dassi af rómans.
Strandlína Króatíu, 2.000 kílómetrar og eyjarnar 1.200 sem henni tilheyra, er óspillt svæði og öllum opið. Hér höfum við alls kyns eyjar: Grænar eyjar, kalksteinseyjar, agnarlitlar smáeyjar – þar sem ekkert er byggt, nema kannski gamall og sjarmerandi viti sem breytt hefur verið í móttöku fyrir ferðafólk, náttúrueyjar þar sem einungis lifa dádýr (og þau þiggja alltaf eitthvað gott að maula), eyjar með seiðandi kokteilbörum sem laða að VIP hópa, eyjar fyrir brimbrettaiðkendur, eyjar fyrir höggmyndalistunnendur, eyjar sem eru nær Ítalíu en tilheyra samt Króatíu, eyjar 120 höfrunga, eyjar fornra fiskveiðihefða, eyjar sem þekktar eru fyrir vínið sitt, osta eða ansjónsubökur. Rúmlega 80% króatísku eyjanna eru alveg mannlausar.
Náttúrufegurð Króatíu er stórbrotin og Adríahafið leggur sannarlega sitt af mörkum til að gera þetta svæði jafn ómótstæðilegt og raunin er. Sjórinn meðfram strandlengju Króatíu er sá tærasti í allri Evrópu (skv. gögnum Evrópuráðs) og um leið mikilvægasta auðlind landsins, bæði vegna sjávarfangs og ferðamannaiðnaðarins.
Kafaðu, snorklaðu, sigldu og skoðaðu! Njóttu þessarar einstöku upplifunar í eigin persónu. Við lofum að þú verður ekki fyrir vonbrigðum!
Þessi bátur mun standast allar þínar væntingar. Hér er hvert smáatriði útpælt og hugsað fyrir öllu sem lætur þér og þínum líða vel, í einstöku umhverfi. Boðið er upp á valkvæðar dagsferðir sem eru sérstaklega hannaðar til að sýna hinn sanna kjarna Dalmatíu. Verðlaunaðu sjálfan þig og leyfðu þér að njóta einstakrar náttúru og sögulegra mannvirkja um borð í hinum glæsilega MS Oscar.
Lúxusgisting í 19 farþega káetum. Allar káetur eru búin rúmum 200×80 cm eða 200×160 cm, loftræstingu, fataskáp og geymslurými undir rúmum, flatskjá, öryggishólf, hárþurrku, auk sér baðherbergis með sturtu. 220V tengi, björgunarvesti og brunavarnarkerfi. Á MS Oscar er lounge bar við rúmgóða verönd, glæsilegur veitingastaður með áherslu á miðjarðarhafsmat og vín úr héraði. Stór sólpallur með sólbekkjum, stólum og heitum potti. Sundpallur með tveimur stigum fyrir greiðan aðgang í sjóinn. Möguleiki er á afþreyingu eins og snorkeling, kayak, SUP, jet ski gegn aukagjaldi.
Boðið er upp á káetur á þremur mismunandi þilförum. Tvær þeirra eru á efra þilfari (upper deck) og hafa geggjað útsýni út um stóra glugga. Á aðalþilfarinu (main deck) hafa káeturnar opnanlega glugga og veita góða birtu. Aðrar eru á almenna þilfari (standard deck) og hafa tvö kýraugu (ekki opnanlegir) svo birtan er dempaðri en hugguleg. Allar káeturnar eru 13-16m2.
Annar gæsilegur bátur er MS Ambassador, en hann er í nákvæmlega sama gæðaflokki og MS Oscar og býr því yfir öllum sömu eiginleikum. Lúxusgisting í 19 farþega káetum með rúmum 200×80 cm eða 200×160 cm, loftræstingu, fataskáp og geymslurými undir rúmum, flatskjá, öryggishólf, hárþurrku, auk sér baðherbergis með sturtu. 220V tengi, björgunarvesti og brunavarnarkerfi. Lounge bar við rúmgóða verönd, glæsilegur veitingastaður með áherslu á miðjarðarhafsmat og vín úr héraði. Stór sólpallur með sólbekkjum, stólum og heitum potti. Sundpallur með tveimur stigum fyrir greiðan aðgang í sjóinn. Möguleiki er á afþreyingu eins og snorkeling, kayak, SUP, jet ski gegn aukagjaldi. Einnig er þar boðið upp á káetur á þremur mismunandi þilförum. Tvær þeirra eru á efra þilfari (upper deck) og hafa geggjað útsýni út um stóra glugga. Á aðalþilfarinu (main deck) hafa káeturnar opnanlega glugga og góða birtu. Aðrar eru á almenna þilfari (standard deck) og hafa tvö kýraugu (ekki opnanlegir) svo birtan er dempaðri en hugguleg. Allar káeturnar eru á bilinu 13-16m2.
Dagskrá siglingar Dubrovnik – Split*:
Dagur 1: Siglingin hefst frá Dubrovnik –
Dagur 2: Dubrovnik – Sipan/Slano
Dagur 3: Sipan/Slano – Mljet – Korcula
Dagur 4: Korcula – Vis
Dagur 5: Vis – Bisevo – Hvar
Dagur 6: Hvar – Bol – Trogir
Dagur 7: Trogir – Split
Dagur 8: Heimför frá Split
*með fyrirvara um breytingar
Til að sjá ítarlega lýsingu á dagskrá hvers dags fyrir sig má fara á Dagskrár flipann ofarlega hér á síðunni til hægri við Ferðalýsingu og Áfangastaði:
Brottfarir eru alla laugardaga, annað hvort frá Dubrovnik og endað í Split, eða frá Split og endað í Dubrovnik. Fyrsta brottför er 29.apríl 2023 frá Dubrovnik til Split og síðan koll af kolli. Síðasta brottför tímabilsins er 14.október 2023. Verð ræðst af dagsetningu ferðar og káetutýpu en hagstæðast er að fara í upphafi og lok tímabilsins og velja káetu á standard þilfari.
Dubrovnik er borg í suðurhluta Króatíu sem liggur að Adríahafinu. Dubrovnik er þekkt fyrir gamla bæinn sinn sem er umkringdur 6 metra þykku steinvirki frá 15. öld. Vel varðveittar byggingar borgarinnar þykja einstaklega fallegar og má sjá allt frá 800 ára gömlum kapellum að kastölum sem eiga sér ríka sögu. Götur borgarinnar bjóða upp á ótal spennandi veitingastaði sem sérhæfa sig í sjávarréttum. Gaman er að segja frá því að borgin hefur verið mikið notuð við kvikmyndatökur frægra bíómynda og þátta, höfuðborgarsenur Game Of Thrones: King’s Landing hafa t.d. verið teknar upp í Dubrovnik.
Mljet er ein mest aðlaðandi eyja Adríahafsins. Stór hluti hennar er hulin skógi, en hér og þar eru vínekrur og litlar byggðir. Á vesturhluta eyjunnar er þjóðgarðurinn Mljet, þar sem finna má einstaka skóga og saltvatnslón. Þjóðgarðurinn er ósnert paradís þar sem sögum samkvæmt söguhetjan Odyseus stoppaði á ferðalagi sínu í 7 ár í þjóðgarðinum vegna þeirrar einstöku fegurðar sem þar er að finna.
Korcula er umvafin bæjarvirki og sögufrægu hliði sem er minnisvarði dýrðar og krafts þessa sérstaka miðaldabæjar. Það var aðeins neðar í götunni sem hinn frægi ferðalangur Marco Polo fæddist árið 1254. Hann tilheyrði einni göfugustu ætt Korcula.
Þú getur verslað einstaka minjagripi á leið þinni um þröngar og skakkar götur bæjarins, þar sem handverks- og skartgripaverslanir eru á hverju strái.
Grikkir stofnuðu sína fyrstu nýlendu á eynni Vis – sem var þá nefnd Issa – þar sem þeir ræktuðu fyrsta vínviðinn á 4.öld. Á eynni er klaustur sem byggt var á 16.öld, úr grískum og rómverskum rústum. Eyjan var oft notuð sem felustaður kafbáta og herbáta og má sjá ummerki þess við ströndina. Ekki má gleyma að kvikmyndin Mama Mia! Here we go again, var tekin upp á eyjunni fögru!
Hvar er talin ein vinsælasta eyja Króatíu, og þú munt fljótlega átta þig á hvers vegna. Strandgatan iðar af mannlífi, kaffi- og veitingahús á hverju horni, vínbúðir, markaðir og barir flæða meðfram hafnargötunni.
Meldaðu þig í kvöldgöngu um bæinn og kynntu þér sögu og menningararfleið Hvar. Hvar er oft kölluð lavander eyjan þar sem jurtin hefur verið ræktuð þar um áraraðir.
Hvítir og gjáandi steinar stíga upp úr jörðinni og rísa upp meðfram hæðunum. Þeir gera þennan stað einstakan því steinarnir þykja svo glæsilegir að þeir hafa verið notaðir í byggingu Hvíta Hússins í Washington DC, Alþingishússins í Vín og fleiri þekktar byggingar. Þessi einstaki staður hefur varðveitt ósvikinn arkitektúr Miðjarðarhafsins og hefur að geyma grófa sveitastemmningu í djúpum fjörðum sínum. Bærinn Milna á eynni Brač byggðist upp á 16.öld, þegar byggð var kirkja og virki á svæðinu. Eyjan er þekkt fyrir gæða steinnámur, sumar hverjar frá fornöld. Löng hefð múrara er á eyjunni sem byggingarlistin ber með sér.
Suðupottur menningar: Split – stærsta borg Dalmatíu. Hún er talin vera 1700 ára gömul og íbúafjöldi hennar gerir Split að næst stærstu borg Króatíu. Í sögulegum kjarna Split, sem er á listað á Heimsminjaskrá Menningarmálastofnunnar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) stendur massíf Höll rómverska keisarans Diocletian, og hefur gert síðan á fjórðu öld fyrir Krist. Í gegnum aldirnar hefur gamli bær Split byggst inn í og kringum höllina, þar sem finna má þrjú rómversk musteri og stærðarinnar grafhýsi. Rómverjar byggðu mikið af byggingum Split og því má þar skoða fornminjar sem ná aftur til 500 f.kr.
Finndu þinn uppáhalds veitingastað fyrir góðan kvöldverð, fáðu þér vínglas (eða glös), eða veldu þér króatískan kaffibolla úr úrvali kaffihúsa og við göngu- og strandgötu bæjarins: Riva.
Velkomin til Dubrovnik – Perlu Adríahafsins!
Báturinn ykkar verður í Gruz höfn í Dubrovnik og geta gestir gengið um borð hvenær sem er frá kl. 14:00. Ef einhverjir gestir koma til borgarinnar mjög snemma er hægt að fá að geyma farangurinn sinn um borð, og spóka sig í borginni þar til formleg innritun á káetur hefst. Gestir siglingarinnar verða formlega boðnir velkomnir við litla athöfn kl. 19:00 þegar enskumælandi fararstjóri siglingarinnar kynnir ykkur fyrir áhöfninni og öðrum gestum. Formlegur kvöldverður til að bjóða alla velkomna borinn fram kl. 19:30. Bátur verður yfir nótt í Gruz höfn.
Ef einhverjir gestir koma seint til Dubrovnik þennan dag, þá má láta vita af því með fyrivara og mun áhöfn sjá til þess að viðkomandi fái kvöldverð þegar um borð er komið.
Njótið morgunverðar um borð áður en þið fáið tækifæri til að fara með enskumælandi fararstjóra í ferð dagsins (innifalin). Gengið er frá borði og um beint í rútu sem ekur ykkur að Gamla Bæ Dubrovnik. Heimsóttur verður þessi sögulegi miðpunktur borgarinnar sem nú er orðinn heimsfrægur og er einnig á heimsminjaskrá UNESCO. Þar fáið þið leiðsögn um áhugaverðustu staði Gamla Bæjarins og eftir það hafið þið frjálsan tíma til að spóka ykkur um á eigin vegum. Mælt er með því að fara á og ganga um borgarmúrana eða fara í útsýniskláf upp á Mount Srđ þar sem á toppnum má upplifa 360° útsýni umhverfis borgina eða gæða sér á dýrindis máltíð á veitingastað sem þar er að finna (þarf að bóka). Akstur til baka á höfnina seinnipart dags (nákvæm tímsetning staðfest á deginum sjálfum).
Þegar aftur um borð er komið verður siglt af stað frá Dubrovnik og annað hvort verður stefnan tekin á eyjuna Sipan, þar sem akkeri verða látin síga við lítið, rólegt veiðiþorp Luka, eða við Slano á meginlandinu (ræðst af veðri og vindum). Slano þykir eitt myndarlegasta þorp rivíerunnar með fallegar strandir, þétta furuskóga og ólífurunna, rík af menningararfi og ótal sögulegum minjum. Ef farið verður til Slano verður boðið upp á að skrá sig í valkvæða ferð til Ston, sem er bær sem er byggður innan 5 km langra borgarmúra, heimsóttar saltnámur og ostruræktun – en þá er farið um borð í gamaldags viðarbyggðan bát, þar sem smakka má ferskar ostrur og vín úr héraði. Skráning og greiðsla á staðnum.
Báturinn verður yfir nótt í Sipan við Luka, eða Slano.
Í dag verður siglt af stað til móts við hinn einstaka þjóðgarð Mljet. Hann er það svæði Adríahafsins sem er hvað þéttgrónast, þekkt fyrir skóga sína, saltvötn, strandir, góða fiskveiði og dýrategundir í útrýmingarhættu. Nægur tími verður til að skoða saltvötnin tvö innan Mljet og litla eyju St. Mary, í öðru vatninu, sem geymir klaustur frá tímum Rómaveldis sem minnir á kastala úr ævintýrasögum. Hádegisverður um borð og siglt áfarm að annarri perlu Adríahafsstrandlínunnar, Korčula eyju. Á Korčula (UNESCO) eyju finnast margar goðsögur og minnisvarðar. Bærinn er fæðingastaður fræga heimshornaflakkarans, Marko Polo. Þar er tilvalið að vafra um þröng strætin og velja sér einhvern góðan veitingastað (þar er marga slíka að finna) og horfa á sólsetrið. Báturinn verður yfir nótt í Korcula.
Siglt verður um morguninn áleiðist til eyjunnar Vis, sundstopp á leiðinni. Vis er þekkt fyrir að hafa verið hernumin yfir 50 ára skeið og var eyjan að þeim sökum lokuð fyrir ferðamönnum og þess vegna haldist vel varðveitt og ósnert. Allt frá ströndum eyjunnar til landbúnaðarins og arkitekúrs. Mælt er með því að leigja vespu til að skoða sig um á þessari stórkostlegu eyju. Á toppi eyjunnar er eðal veitingastaður sem vinnur með úrvals hráefni úr héraði. Nóg af náttúrulegum ströndum og afþreygingu s.s. jet ski, köfun, brimbretti o.fl. í tærum sjónum. Þess má geta að kvikmyndin Mamma Mia 2 var tekin á eynni. Báturinn verður yfir nótt í Vis.
Boðið er upp á valkvæða dagsferð á Vis: Farið verður með rútu upp í hæðir Vis þar sem útsýni er stórkostlegt og stoppað verður til að njóta sólsetursins á víkinni. Síðan er leðinni haldið áfram í gegnum vínekrur og ólífulundi, framhjá flugvelli frá Seinni Heimsstyrjöldinni og endað í veiðmannabænum Komiza – þar verður frjáls tími og tilvalið að fá sér kvöldverð áður en farið er tilbaka í bátinn. Skráning í ferð og greiðsla á staðnum.
Dagurinn hefst á því að sigla að eyjunni Bisevo þar sem finna má hinn fræga Bláa Helli. Upprunalega var inngangur í hellinn neðan við sjávarmál sem krafðist þess að forvitnir ferðalangar urðu að kafa til að komast inn í þennan dulúðlega helli. Aðgengi að hellinum fer hins vegar alveg eftir öldugangi svo það skýrist ekki fyrr en á deginum hvort verði hægt að láta verða af þessari heimsókn. Aðgangur í hellinn er innifalinn (endurgreitt ef ekki verður af því). Áfram siglt og sundstopp á leiðinni, ásamt hádegisverði. Stefnan er tekin á eyjuna Hvar, sem á sér langa og ríka sögu. Lagt að höfn í bæn um Hvar, þar sem boðið er upp á enskumælandi leiðsögn. Þið fáið að kynnast aldalangri sögu, menningu og lífstíl ábúenda eyjunnar. Hvar er ekki kölluð lavender eyjan af ástæðulausu – jurtin fræga vex þar villt og er hægt að festa kaup á ýmsum dýrindis varningi sem framleiddur á Hvar úr henni.
Yfir sumarið er bærinn Hvar ákaflega vinsæll áfangastaður, sérílagi fyrir skemmtanaglaða sem flykkjast á Carpe Diem næturklúbbinn. Báturinn verður yfir nótt í Hvar.
Á Hvar er tilvalið er að spreyta sig í vatnasportinu, eða bara ráfa um götur bæjarins í ævintýraleit. Vekjum athygli á því að bóka þarf veitingastaði með fyrirvara.
Í dag verður siglt til eyjunnar Brač, og stoppað í Bol, þar sem frjáls tími gefst til slökunar. Bol er elsta byggð eyjunnar, staðsett í einangruðu umhverfi við rætur fjallsins Vidova. Strandlengja eyjunnar þykir mjög falleg og þá sérstaklega tanginn Zlatni Rat. Vestan við tangann má sjá Dragon’s Cave þar sem útskorin kapella frá 14. öld dvelur við ströndina.
Njóttu þín í sól- og sjóbaði eða kannaðu bæjarstemningu áður en hádegisverður verður borinn fram um borð.
Siglir er áleiðis og lagt við höfn í Trogir, önnur borg á heimsminjaskrá UNESCO enda má þar finna ógrynni af höllum, kirkjum, klaustrum og turnum. Þið fáið en skumælandi leiðsögn um Trogir og síðan frjálsan tíma. áeigin vegum. Báturinn verður yfir nótt í Trogir. Um kvöldið verður slegið upp í veislu, snæddur kvöldverður ásamt skipstjóranum við lifandi tónlist um borð.
Síðasti dagur siglingarinnar, svo nú er um að gera að njóta, taka síðustu hoppin í sjóinn á leið til Split. þar sem lagt verður að landi í eftirmiðdaginn. Hádegisverður um borð. Síðan eskumælandi leiðsögn um borgina sem leiðir ykkur um fornaldrar höll Diocleitan. Split er önnur stærsta borg landsins og nær saga hennar aftur um 1700 ár. Full af sögu, minjum, áhugaverðum stöðum að skoða, margir hverjir innan kjarna borgarinnar sem hefur verið á minjaskrá UNESO síðan 1979.
Báturinn verður yfir nótt í Split höfn.
Pakkað og tékkað út af káetunum. Njótið morgunverðar áður en farið er frá borði. Útritun er kl. 09:00.