Átta daga endurmenntunarferð til Barcelóna á Spáni sem hentar fjölbreyttum hópum tungumálakennara á öllum skólastigum. Námskeiðið sjálft stendur yfir í sex daga frá mánudegi til laugardags. Innifalið í námskeiðinu er kynnisferð um borgina ásamt dagslangri vettvangsferð. Námskeiðið er á vegum Europass Teacher Academy og er haldið reglulega í hverjum mánuði yfir árið. Námskeiðið er styrkhæft.
Á námskeiðinu er fjallað um vísindin að baki tungumálanámi þar sem stuðst er við nýjustu rannsóknir á sviði málvísinda. Þátttakendur munu læra um samtímakenningar málvísinda, taugamálvísinda og sálfræði málvísinda og hvernig unnt er að beita þeim í tungumálakennslu og námi. Áhersla er lögð á að þátttakendur öðlist hagnýta reynslu og sjálfsöryggi við notkun á rannsóknarbyggðum lausnum til þess að auka virkni nemenda sinna. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti tileinkað sér fjölbreyttar aðferðir til þess að styðja við ólíka námstækni nemenda sinna á grundvelli fjölgreindarkenningarinnar.
Barcelóna er stærsta borg Katalóníu og næst stærsta borg Spánar. Hún var undir Rómaveldi og fjölda annara ríkja áður en að hún öðlaðist sjálfstæði. Þetta hafði þau áhrif að borgin hefur lotið byggingarstíl fjölda mismunandi ríkja og hún er því mjög framandi hvað byggingastíl og arkitektúr snertir. Í Barcelóna má finna mikið af nútíma byggingalist en í borginni eru líka margar ævagamlar og mjög frægar byggingar.
Arkitektúr Barcelóna spannar tvær aldir aftur í tímann. Turnar úr gömlum hofum, gamlir veggir og steinarústir sýna sögu borgarinnar allt frá tímum Rómverja. Gotneska hverfið er 1000 ára gamalt og margar kirkjunar eru frá 15. öld. Það er einnig mikið af nýbyggingum í borginni eftir fræga hönnuði eins og Gaudí. Það má því segja að borgin sé hlaðin sögu og menningu.
Göngugötur Barcelóna eru vinsælar til að rölta um. Frægasta gatan er La Rambla, á henni má finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum. Í þessari fallegu borg eru útimarkaðir, veitingastaðir, söfn og fallegar kirkjur svo til á hverju strái. Barcelóna er frábær borg fyrir ferðalanga sem hafa gaman af því að rölta um og skoða mismunandi byggingarstíl og upplifa lifandi menningu. Kjarni borgarinnar er í kringum “Ciutat Vella” sem þýðir gamla borgin.
Hotel Cram is set in
’s central Eixample district, a 10-minute walk from Plaza Catalunya. It features a with city views and Michelin-starred Angle Barcelona restaurant. All rooms have free WiFi and large flat-screen TVs.The Cram Hotel is located in a building that dates back to 1892 and features a modernist façade, and a
, elegant interior. Rooms boast advanced lighting and access control technology.The air-conditioned rooms at Cram Hotel feature a private bathroom with a hairdryer. A bathrobe and slippers are available upon request. Rooms feature beds by Treca de Paris, and elegant curtains by Gastón y Daniela. Some rooms have a private balcony.
Skoða heimasíðu hótels hér.
Námskeiðið er á vegum Europass Teacher Academy og er haldið reglulega í hverjum mánuði yfir árið. Námskeiðið sjálft stendur yfir í sex daga frá mánudegi til laugardags. Innifalið í námskeiðinu er kynnisferð um borgina ásamt dagslangri vettvangsferð. Námskeiðið í Barcelóna er haldið í samstarfsskóla Europass Teacher Academy að Carrer del Rector Triadó í tíu mínútna göngufjarlægð frá Plaza España. Námskeiðið er haldið á ensku.
Á námskeiðinu er fjallað um vísindin að baki tungumálanámi þar sem stuðst er við nýjustu rannsóknir á sviði málvísinda. Þátttakendur munu læra um samtímakenningar málvísinda, taugamálvísinda og sálfræði málvísinda og hvernig unnt er að beita þeim í tungumálakennslu og námi. Áhersla er lögð á að þátttakendur öðlist hagnýta reynslu og sjálföryggi við notkun á rannsóknarbyggðum lausnum til þess að auka virkni nemenda sinna. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti tileinkað sér fjölbreyttar aðferðir til þess að styðja við ólíka námstækni nemenda sinna á grundvelli fjölgreindarkenningarinnar.
Ensk lýsing á námskeiði:
This course has been specifically designed for language teachers who want to integrate the science of language learning into their methodology, practicing the latest research-based teaching approaches.
Participants will learn about some of the most relevant current theories in Linguistics, Psycholinguistics and Neurolinguistics, applied to language teaching and language learning, gaining practical experience in the best hacks to achieve student engagement. Moreover, the course will provide participants with the necessary knowledge to properly integrate various educational tools to support each student’s learning style, applying the Multiple Intelligence Theory.
Besides, the course will also focus on both traditional and digital tools that help to develop students language skills through arts and creativity. By the end of the training, participants will be able to confidently integrate a variety of research-based strategies into their lesson plans and maintain an effective learning environment in their language class.
Upplýsingar um námskeiðshaldara:
Europass Srl
Via Sant’Egidio 12
50122 Florence, Italy
Netfang: info@teacheracademy.eu
Sími: +39 055 247 9995
Nánari upplýsingar um námskeiðið á vefsíðu Europass Teacher Academy:
https://www.teacheracademy.eu/course/research-based-hacks-arts-creativity-for-language-teachers/