





Hópferð til Dubrovnik
Leiguflug til Dubrovnik fyrir 100 manns eða fleiri✈️
Dulúð og dramatík
Dubrovnik, sem er staðsett á suðurhorni Króatíu, er þekkt fyrir sinn ævaforna miðbæ. Hann er fullur af börum, veitingastöðum og litlum verslunum, og ef þú vilt fara í Game of Thrones leiðangur, gjörðu svo vel!
Hér áður fyrr var Dubrovnik sjálfstætt ríki. Þess vegna er gamli bærinn umkringdur virkisveggjum, sem byggðir voru til þess að vernda landið fyrir árásum Rómverja og margra annarra ríkja í gegnum aldirnar. Í Júgóslavíustríðinu (sem lauk 1995) var borgin nánast eyðilögð en undanfarna áratugi hefur mikil endurbygging átt sér stað. Í dag er hún nánast komin aftur í sitt fyrra horf. Byggingalist Dubrovnik er algjörlega mögnuð og ekki skemmir náttúrufegurð Króatíu og fagurblátt Adríahafið fyrir. Það má í raun segja að umhverfið sé algjört augnakonfekt.
En hvað er hægt að gera í Dubrovnik? Engar áhyggjur. Við erum með svarið.
Þú getur…
- farið í osta- og vínsmökkun
- farið á sjávarkajak
- heimsótt nálægar eyjar…… og nálægar strendur!
- skoðað villta páfugla á eyjunni Lokrum
- farið í köfun og snorklað
- heimsótt hinn magnaða þjóðgarð Krka
- siglt til paradísareyjunnar Mljet
- farið í Game of Thrones leiðsögutúr
- tekið kláfinn upp fjallshlíðina til þess að upplifa magnað útsýnið yfir borgina
- Þetta er ennþá betra í ljósaskiptunum!
- skellt þér á Revelin – næturklúbb í kastala
- fræðst og forvitnast á sögusafni Dubrovnik
Og þetta er bara brotabrot!
Hápunktar ferðar
- favoriteSólin, sjórinn og gamli bærinn
- favoriteNáttúrufegurðin
- favoriteTærasti sjór Evrópu
- favoriteFrábær þjónustulund
- favoriteMögnuð byggingarlist borgarinnar
- favoriteStutt vegalengd frá flugvelli
Innifalið í verði
- Flug fram og til baka
- 3 nætur á hóteli
- Rútur til og frá hóteli fyrir alla
- Aðgangur að líkamsrækt, spa, sundlaug og saunu
- Te og kaffi aðstaða í hverju herbergi
- WiFi aðgangur alls staðar á hótelsvæðinu
Ekki innifalið
- Stress
- Vont veður
- Þjórfé
Tærasti sjór í Evrópu er í Króatíu, skoðaðu sjálfur!
Skemmtileg staðreynd um Dubrovnik
Til þess að byrja með þá er náttúrufegurð Króatíu stórbrotin. En Adríahafið undirstrikar það algjörlega. Sjórinn meðfram strandlengju Króatíu er sá tærasti í allri Evrópu samkvæmt Evrópuráði. Það er því ekki furða að hafið sé þeirra mikilvægasta auðlind, hvort sem það er vegna sjávarafurða eða í gegnum ferðamannaiðnaðinn.
Kafaðu, snorklaðu, sigldu og skoðaðu! Allavega upplifðu þetta í fyrstu persónu. Við lofum þér því að þú verður ekki fyrir vonbrigðum!
Dubrovnik
Dubrovnik er borg í suðurhluta Króatíu sem liggur að Adríahafinu. Dubrovnik er þekkt fyrir gamla bæinn sinn sem er umkringdur með 6 metra þykku steinvirki frá 15. öldinni. Vel varðveittar byggingar borgarinnar þykja einstaklega fallegar og má sjá allt frá 800 ára gömlum kapellum að kastölum sem eiga aldargamla sögu. Götur borgarinnar eru þakktar spennandi veitingastöðum sem sérhæfa sig mest í sjávarréttum. Gaman er að segja frá því að borgin hefur verið mikið notuð við kvikmyndatökur frægra bíómynda og þátta, höfuðborgarsenur Game Of Trones: King’s Landing hafa t.d. verið teknar upp í Dubrovnik.
Króatía
Króatía býr yfir voldugri sögu, gríðarlegri náttúrufegurð og býður upp á fjölbreytta staði fyrir forvitna heimshornaflakkara. Í landinu miðju höfum við Plitvice þjóðgarðinn, sem helst minnir á landslag Pandoru úr kvikmyndinni Avatar. Á strandlengju Dalmatiu héraðs finnurðu bæði stórbrotin klettabjörg og seiðandi gylltar sólarstrendur, ásamt hinum ævarforna og tignarlega borgargimstein Dubrovnik. Á hinum endanum, með landamæri að Slóveníu og í nálægð við Ítalíu, er svo hinn heillandi Istria skagi, svæði sem tilheyrði reyndar Ítalíu um nokkurra áratuga skeið, frá lokum fyrri heimsstyrjaldar til loka þeirrar seinni (1918-1945) og þau tengsl nokkuð greinileg bæði í byggingarstíl og stemmingu. Þá er Adríahafið meðfram Króatíu talið tærasta haf Evrópu, enda mjög vinsælt til köfunar. Þar er að finna yfir þúsund misstórar eyjar sem draga að sér fjölda ferðamanna á hverju ári.
Hér er fátt eitt nefnt úr þeirri miklu flóru spennandi áfangastaða sem þetta fagra land býður uppá. Við hjá Tripical einfaldlega elskum Króatíu og erum viss um að þú munt gera það líka.
Almennar upplýsingar
- Fjöldi íbúa: 4.154.200
- Stærð að flatarmáli: 56.534 km²
- Opinbert tungumál: Króatíska
- Gjaldmiðill: Evra
- Hitastig: 9°-25°
- Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi
Hvar og Split
Eyjan Hvar er einn vinsælasti áfangastaður landsins og ekki að undra, hún er ofboðslega skemmtileg og státar af því að vera sólríkasti staður Króatíu. Á Hvar finnurðu alls konar mannlíf og gesti á öllum aldri, fjölskyldur stórar og smáar, ungt fólk í leit að skemmtilegu næturlífi og stundum líka súperstjörnur úr Hollywood. Eyjan er þekkt fyrir mikla veðursæld, gómsæta matargerð og einstaka náttúrufegurð. Sjávargolan sem blæs yfir bæinn þykir mjög endurnærandi og orkumikil, svo mikið að fyrr á árum voru starfræktar á eyjunni heilsulindir fyrir einstaklinga með öndunarerfiðleika, þar sem hægt var að fara í sérstaka „öndunarhreinsun“.
Nálægt eyjunni er svo að finna næststærstu borg Króatíu, Split. Þetta er afar ferðamannavæn borg, ofboðslega fallegur staður sem býður upp á mjög líflegt og spennandi næturlíf. Þar er margt hægt að gera sér til afþreyingar, og við mælum hiklaust með skoðunarferð um rómversku rústirnar sem borgin er byggð í kringum.
Dubrovnik
Í tveggja klukkustunda fjarlægð suður af Split er Dubrovnik, lítill 40.000 manna bær á syðsta punkti Króatíu. Gamli bærinn í Dubrovnik á sér langa sögu, en hann er umkringdur borgarveggjum sem áttu að verja hann á stríðstímum fyrr á árum en Dubrovnik var sjálfstætt ríki áður en bærinn varð partur af Króatíu. Bærinn á það sameiginlegt með Íslandi að Game of Thrones hafa tekið upp þáttaseríur sínar þar, en fyrir þá sem til þekkja eru allar senur sem gerast í suðrinu teknar þar.
Istria
Á hinum enda strandlengjunnar, nálægt Ítalíu og með landamæri að Slóveníu, liggur Istria skaginn, sem frá árunum 1918-1945 var hluti af Ítalíu, varð síðan partur af kommúnistaríkinu Júgóslavíu en tilheyrir í dag Króatíu. Þar má finna aragrúa lítilla smábæja, bæði við sjávarsíðuna og upp með fjallshlíðum. Þetta eru gömul, rótgróin og einstaklega sjarmerandi þorp, byggingastíllinn er öðruvísi en fyrir sunnan, húsin litrík, og svipa mjög til smábæja á Ítalíu. Hér úir og grúir af sjávarréttastöðum sem bjóða upp á ferskt sjávarfang. Fjölda markaða er að finna á svæðinu og ólívur, trufflur, olíur og ýmis konar ávextir eru fáanlegir út um allt. Neðst á skaganum er bærinn Pula en þar má finna risastórt rómverskt hringleikahús. Við mælum einnig með heimsókn í hinn heillandi bæ Rovinj og skoðunarferð í Basilikkuna í bænum Poreč.
Opatija
Opatija er einstaklega fallegur bær á Istria skaganum, umkringdur fallegum lárviðarskógi við strendur Adríahafsins og um 18 km frá Rijeka, sem er ein af stærri borgum Króatíu. Staðurinn er þekktur fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag og sínar sögulegu byggingar og vinsæll bæði sem sumar- og vetrardvalarstaður, með meðalhita upp á 10 °C á veturna og 32 °C á sumrin.
Opatija á rætur sínar að rekja til klausturs heilags Jakobs sem þar stóð og bærinn óx út frá, en nafnið Opatija þýðir einmitt ,,klaustur“. Dagur Heilags Jakobs, sem er verndardýrlingur ferðalanga (og einnig verndari sútunar og ávaxtaræktenda), er haldinn hátíðlegur á hverju ári 25. júlí, og er um leið almennur hátíðisdagur bæjarins.
Á fyrri tímum var Opatija hluti af feneyska lýðveldinu og í framhaldinu lengi vel eign auðugra austurrísk-ungverskra fjölskyldna sem byggðu þennan fallega griðarstað sinn með miklum glæsileik, mikilfengleg stórhýsi frá tímum þessa ,,háklassasamfélags“ standa meðfram ströndinni og setja sterkan svip á bæinn. Hér eru fagrir garðar, tignarleg lúxushótel og umhverfi sem sómir sér vel á póstkortum, og gera Opatija að töfrandi áfangastað.
Šibenik
Šibenik er ein af elstu borgum Króatíu, sögulegur staður frá 11. öld, í miðju Dalmatíu-héraði, við ána Krka sem rennur í Adríahaf. Þar búa í dag um 35.000 manns. Þar er mikið um einstakar byggingar fyrri alda. Þekktust þeirra má telja Saint James dómkirkjuna, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, en einnig má nefna miðaldaklaustur St. Laurence og afar sjaldgæfan klausturgarð þar við frá 15. öld, og virki heilags Mikaels sem veitir einstakt útsýni yfir borgina og hafið fyrir utan.
Í hinu heiftúðuga sjálfstæðisstríði Króata (1991–95) varð Šibenik fyrir harðri árás frá jógóslavneska þjóðarhernum og serbneskum hersveitum. Þrátt fyrir að vera undirvopnaðir, tókst króatíska hernum og íbúum Šibenik að verja borgina. Bardaginn stóð í sex daga (16.–22. september 1995), oft nefndur „septemberbardaginn“. Sprengjuárásirnar skemmdu fjölmargar byggingar og minnisvarða, þar á meðal hvelfingu Šibenik dómkirkju heilags Jakobs og leikhúsbyggingu sem var byggð árið 1870. Síðan þá hafa skemmdar byggingar borgarinnar verið endurreistar að fullu.
Í dag er Šibenik friðsæl og hrífandi borg full af sögu og sjarma, ekki síst gamli hluti bæjarins, með ævafornu kirkjum, höllum fyrrum aðalsmanna og dæmigerðu aldagömlum dalmatískum steinhúsum.
Til gamans má geta að hér var fallhlífin fundin upp á 17. öld og prófuð í fyrsta skipti af uppfinningamanni hennar Faust Vrancic. Hér er líka fæddur og uppalinn hinn frægi körfuboltamaður Dražen Petrović.
Pag
Um miðja strandlengju Króatíu er eyjan Pag. Við enda hennar er að finna bæinn Novalja, sem er á sumrin yfirfullur af ungu og skemmtanaþyrstu fólki. Bærinn einkennist af smágerðum hvítum húsum með rauðum þökum. Meðfram höfninni er mikið úrval af veitingastöðum og börum en helsta aðdráttaraflið verður þó að teljast Zrcé ströndin rétt hjá bænum. Þar er heldur rólegt um að litast á daginn, en um leið og rökkva fer færist heldur betur líf í staðinn. Zrcé ströndin er pakkfull af skemmtistöðum, börum og skyndibitastöðum, skemmtistaðirnir eru margir þaklausir svo maður fær strandarstemninguna beint í æð og fjöldi þekktra plötusnúða koma og spila þar á ári hverju.
Hótelin okkar
-
add Rixos Libertas 5 ⭐
Rixos Libertas 5 *****
Rixos Libertas er fimm stjörnu hótel sem býður upp á heilsulind ásamt verðlauna veitingastað sem matreiðir ýmsar kræsingar miðjarðarhafsins. Hótelið er byggt á klettarbrún sem stendur alveg við sjóinn og hægt er að skella sér í freskandi sundsprett frá hótelbakkanum.
Herbergin eru vel útbúin og eru öll með svölum, WiFI og nútímalegum húsgögnum. Flatskjár, loftkæling og minibar er á öllum herbergjum.
Sjáðu meira um hótelið hér.
-
add Valamar Argosy 4⭐
Valamar Argosy 4 ****
Valamar Argosy er með beinan aðgangi að sjónum og ströndinni sem auðvellt er að labba í.
Herbergin eru öll með flatskjá, loftkælingu, öryggisskáp og minibar. Flest herbergin eru einnig með svlölum með útsýni yfir garðinn eða sjóinn.
Inni- og útisundlaug eru á hótelinu, ásamt heilsulind, líkamrækt og fallegu útisvæði.Sjáðu meira um hótelið hér.
-
add Hotel Mlini 4⭐
Hotel Mlini 4 ****
Hótel Mlini er fjögurra stjörnu hótel sem er staðsett rétt hjá gamla bænum í Dubrovnik. Á hótelinu má finna flottann veitingastað með “à la carte” matseðli sem býður upp á góða Króatíska þjóðrétti ásamt bestu vínum Króatíu
Nútímaleg herbergi má finna á hótelinu með flatskjár, loftkæling og minibar og WIFI.
Sjáðu meira um hótelið hér.