Borgarferð til Köben frá Egilsstöðum leiguflugi 22.-26.4.2026 - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastað

Borgarferð til Köben frá Egilsstöðum leiguflugi 22.-26.4.2026

Lengd ferðar:
5 dagar/ 4 nætur
Gjaldmiðill:
Dönsk króna

Áætlaðir flugtímar

22.-26. apríl 2026

Frá Egilsstöðum – Flugáætlun kemur síðar

Frá Köben – Flugáætlun kemur síðar

 

Flogið er með leiguflugið Icelandair 170 sæta vél. Flugtími er um 3 klst.

Ef þú ert með hóp sem er stærri en 9 manns skaltu hafa samband við sölumenn Tripical: hopar@tripical.is til að fá gott tilboð!


Undursamlega Kaupmannahöfn!

Kaupmannahöfn er höfuðborg Danmerkur og þar búa um ein milljón manns. Þessi einstaklega vinalega borg er nógu stór til að teljast stórborg, með fjöldan allan af verslunum, mikið menningarlíf og spennandi næturlíf. Um leið er þetta smáborg, örugg og auðvelt að skoða sig um án þess að týnast. Hinum megin við Eyrarsundið er Svíþjóð og Danmörk liggur því eins og brú á milli Skandinavíu og meginlands Evrópu. Hér blandast gömlu ævintýrin saman við nýtískulegan arkitektúr og hönnun á heimsmælikvarða, heitur jazz blandast við ískalt teknó í kjallaraklúbbi. Þér finnst eins og þú hafir séð allt á einum degi, en gætir auðveldlega skoðað þig um og séð nýja hluti svo mánuðum skipti.

Frá litlum veiðibæ í stórborg

Ef þú hefðir átt leið um Köben á 11. öld, værirðu staddur í rólegum litlum fiskibæ, með latar jórtrandi kýr á víð og dreif í kring. Elstu rituðu heimildir um staðinn eru frá 12. öld, þegar klerkurinn Saxo Grammaticus ritaði örfáar línur um staðinn og kallaði hann þar á dönsku Købmannahavn, sem síðar breyttist í København, en á íslensku helst gamla nafnið og við tölum um Kaupmannahöfn.

Einstaklega fallegur byggingarstíll

Einn frægasti Kaupmannahafnarbúi sögunnar hafði mikil áhrif á flesta gesti borgarinnar í æsku. Ævintýri H. C. Andersen hafa ferðast um allann heim og haft áhrif á menningu hvar sem þau hafa borið niður fæti. Andersen flutti til Kaupmannahafnar sem unglingur og bjó þar allt til æviloka. Sögur hans hafa verið þýddar á yfir 125 tungumál. Finna má þó nokkur söfn tileinkuð þessum merkilega manni í Kaupmannahöfn.

Það er alveg kjörið að byrja heimsókn hingað á því að þramma upp brekkuna að Sívalaturninum, sem er eitt af þekktari kennileitum borgarinnar. Þaðan er mjög gott útsýni um miðborgina. Ef þú vilt meira klifur og enn betra útsýni, þá er bara að rölta niður í Christianshavn og þramma upp hringstigann utanum turn Frelsiskirjunnar sem gnæfir  eina 100 metra í átt til himins. Og fyrst þú ert kominn í þennan bæjarhluta, verðurðu að kíkja í Kristjaníu, með öllum sínum skrýtnu húsum og hippastemmingu. Aðrar fallegar byggingar má nefna, hið tilkomumikla Ráðhús og hin stórglæsilega Friðrikskirkja, eða Marmarakirkjan.

Bjórmenning frá dönsku framleiðendunum Carlsberg og Tuborg

Danir eru eins og allir vita mikil bjórþjóð, með sína heimsþekktu lykilframleiðendur Carlsberg og Tuborg. Bjórkrár eru á hverju strái og hægt að velja á milli margra ólíkra tegunda.

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Rölta um Strikið
  • favorite
    Fara niður á höfn
  • favorite
    Heimsækja litlu hafmeyjuna
  • favorite
    Smørrebrød og Carlsberg
  • favorite
    Jólamarkaðir í miðbænum

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka með leiguflugi (170 sæti)
  • Flogið út kl. xx:xx og lent að staðartíma í Kaupamannahöfn kl. xx:xx
  • Flogið heim kl. xx:xx og lent að staðartíma kl. xx:xx
  • 4 nætur á hóteli miðsvæðis í Malmö (Með morgunmat)
  • 20kg Innritaður farangur
  • 5kg handfarangur

Ekki innifalið

  • Hádegismatur og kvöldmatur
  • Farastjórn

Flug & Hótel

Comfort Hotel Vesterbro 3* eða sambærilegt

Comfort Hotel Malmö er hressilegt og nútímalegt 3-stjörnu hótel staðsett í hjarta Malmö, beint við hliðina á aðallestarstöðinni og Malmöhus kastalanum.

Hótelið stendur fyrir „Lágmarksgjald, hámarksþægindi“ og býður upp á bjart og vinalegt andrúmsloft, með fríu morgunverðarhlaðborði, kaffibar og leikjasal. Það er tilvalið fyrir þá sem vilja vera miðsvæðis og njóta borgarlífsins, verslana og menningarstaða með auðveldum hætti.

Hótelið fær heildareinkunn 8,1 og einkunn 9,3 fyrir staðsetningu á booking.com.

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 199.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 239.990 kr

Flug & Hótel

Radisson Blu Scandinavia Hotel 4* eða sambærilegt

Radisson Blu Scandinavia Hotel er glæsilegt 4-stjörnu hótel sem rís hátt yfir Kaupmannahöfn og býður upp á stórbrotið útsýni yfir borgina og höfnina.

Staðsett við Amager Boulevard, er hótelið tilvalið fyrir bæði ráðstefnugesti og ferðamenn. Gestir geta notið þess að vera í göngufæri frá Tívolíinu og Christianshavn, auk þess að hafa greiðan aðgang að spilavíti og tveimur veitingastöðum. Þetta er fullkominn staður fyrir lúxus og þægindi í hjarta höfuðborgar Danmerkur.

Hótelið fær heildareinkunn 8,4 og einkunn 8,8 fyrir staðsetningu á booking.com.

Verð á mann í tvíbýli með morgunverði 209.990 kr

Verð í einbýli með morgunverði 249.990 kr

Danmörk

Almennar upplýsingar

  • Fjöldi fólks: 5.748.769
  • Stærð að flatamáli: 42,932 km2
  • Opinbert Tungumál: Danska
  • Gjaldmiðill: Dönsk Króna 
  • Hitastig: 4°-25°
  • Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi

Danmörk er oft rómuð fyrir að vera eitt “grænasta” land heims. Á fáum stöðum notar fólk reiðhjól í sama magni og hér. Danir eru mjög duglegir að flokka rusl og hugsa almennt mjög vel um umhverfið. Þetta hafa þeir gert um svo langa hríð að nýjum kynslóðum er þetta í blóð borið.

Einn af þekktari skemmtigörðum heims er miðsvæðis í borginni. Tívolíið er ekki bara vel þekkt víða um heim, það er eitt af elstu skemmtigörðum heims. Sjálfur Walt Disney nefndi eitt sinn að danska Tívolíið væri fyrirmynd að Disney garðinum hans.

Þá er Dýragarðurinn einnig sá elsti í heiminum – skemmtilegur garður sem alltaf er gaman að heimsækja. Álíka heimsfrægt er Legoland í Billund, einstök skemmtun fyrir krakka á öllum aldri.

Kaupmannahöfn Nyhavn

Tenging okkar Íslendinga við Danmörku er sterk, við eigum sögu með þessari merkilegu þjóð, ekki alltaf skemmtilega, og mörgum þykir til dæmis dönskukennsla í grunnskólum óþörf með öllu. En þrátt fyrir grín um kartöflu í kokinu, og fáranlega danska skipulagsþörf (að þurfa að bóka tíma í smá hitting yfir kaffibolla með minnst mánaðar fyrirvara), þá þykir okkur mjög vænt um Danmörku og Dani og höfum alltaf verið dugleg að ferðast þangað til lengri eða skemmri tíma. Af því að í Danmörku er gott að vera. Við elskum huggulegu dejligheitin. Sumrin þar eru oft svo miklu hlýrri en okkar, Kaupmannahöfn er frábær borg að heimsækja og margt fleira má nefna. Þetta er land með mikla og merkilega sögu og  fornar byggingar því til staðfestingar, dásamlega skemmtigarða, og geggjaðan mat!

Við hjá Tripical mælum með heimsókn til Danmerkur, og erum tilbúin að aðstoða og skipuleggja ferðir þangað hvenær sem hentar.

Danmörk samanstendur af Jótlandsskaga og rúmlega 400 eyjum, þar af um 72 í byggð. Stærstu eyjarnar eru Sjáland og Fjón. Danmörk er eitt af minnstu löndum Evrópu, en þar búa þó tæpar 6 milljónir. Það hefur landamæri að Þýskalandi í suðri, en langa strandlengju, með Norðursjó í vestri og Eystrasalt í austri. Hún er lítil og flöt, en býður upp á sérstakt og fjölbreytt landslag með eyjum sínum og strandsvæðum, auk gróðursælla engja og skóglendis.

Snemma á miðöldum varð Danmörk öflugt konungsríki og átti í mörgum átökum við nágranna sína. Landið gegndi einnig mikilvægu hlutverki í Hansabandalaginu, öflugu viðskiptabandalagi borga í Norður-Evrópu. Á 16. öld gekk Danmörk í gegnum tímabil trúarlegra umbóta og tók upp mótmælendatrú. Landið hélt áfram að vaxa að völdum og áhrifum og stofnaði nýlendur í Karíbahafi og Vestur-Afríku. Á 19. öld varð Danmörk stjórnskipulegt konungsveldi og upplifði tímabil efnahagslegs og félagslegs vaxtar. Um leið gegndi landið  lykilhlutverki í þróun nútíma lýðræðis og félagslegrar velferðar.

Ísland var dönsk nýlenda fram á 20. öld. Árið 1874 veitti Danmörk Íslandi stjórnarskrá með þingi, en við vorum þó áfram háð Danmörku. Árið 1944 lýsti Ísland sig sjálfstætt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá og forseta sem þjóðhöfðingja og Danir viðurkenndu sjálfstæði Íslands árið 1945.

Kaupmannahöfn

Kaupmannahöfn er lífleg og heillandi borg, þar sem finna má frábæra hönnun, heimsklassa matargerð, töfrandi arkitektúr og ríkan menningararf. Fyrir áhugafólk um arkitektúr er æði margt að skoða, allt frá gömlum höllum og sögulegum byggingum við Nýhöfn, til módernískrar hönnunar óperuhússins. Og með orðspor sitt sem leiðandi borg í sjálfbæru líferni er í Kaupmannahöfn að finna einn umhverfisvænasta og nýstárlegasta arkitektúr í heimi. Matgæðingar fá nóg af tækifærum til að kæta bragðlaukana, því Kaupmannahöfn státar af heimsþekktri matargerð og nýstárlegri matarsenu. Þar eru fjölmargir Michelin-stjörnu veitingastaðir, auk matarmarkaða og staðbundinna kaffihúsa sem bjóða upp á dýrindis danskt sætabrauð. Þá er Kaupmannahöfn auðvitað frábær fyrir hjólreiðar og gönguferðir, með sína endalausu hjólastíga og gönguvæn svæði.

Aðrir markverðir staðir

Árósar

Þessi líflega háskólaborg er næststærsta borg Danmerkur og þekkt fyrir skemmtilega blöndu af nútíma arkitektúr og sögulegum byggingum. Gestir geta m.a. skoðað ARoS listasafnið í Árósum, útisafnið í gamla bænum og Ráðhúsið.

Hróarskelda

Mest þekkt fyrir tónlistarhátíðina sem þar hefur verið haldin árlega síðan árið 1971 og er ein sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu, með yfir 130.000 gesti. En borgin sjálf er sögulega merkileg og þekkt fyrir glæsilegt Víkingaskipasafn, sem hýsir fimm upprunaleg víkingaskip. Gestir geta einnig skoðað hina töfrandi dómkirkju, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

Óðinsvé

Sögulega merkileg borg á Fjóni og fæðingarstaður hins fræga rithöfundar Hans Christian Andersen. Í borginni er skemmtilegt safn honum til heiðurs, falleg dómkirkja og sjarmerandi gamli bær.

Skagen

Heillandi strandbær, staðsettur í norðurhluta Danmörku,  frægur fyrir stórkostlegt landslag, blómlegt listalíf og einstaklega góða sjávarréttastaði.

Legoland

Þessi vinsæli skemmtigarður, staðsettur í bænum Billund, er tileinkaður Lego byggingarleikfanginu. Gestir geta skoðað mörg þemasvæði garðsins, farið í rússíbana og séð glæsilega Lego skúlptúra.

Møn

Lítil eyja við suð-austurströndina, þekkt fyrir töfrandi hvíta kletta, sem eru með þeim hæstu í Evrópu. Gestir geta  gengið meðfram klettaslóðum og notið friðsæls sveitalandslags eyjarinnar.

Rípar (Ribe)

Sögufrægur bær í vesturhluta Jótlands, elsti bær Danmerkur og þekktur fyrir vel varðveittan miðaldaarkitektúr. Dómkirkjan er mögnuð sem og  heillandi gamla bæinn með steinhlöðnum götum og litríkum húsum.

Verð frá 199.990 kr.
(Á mann í tveggja manna herbergi)

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 4, 4.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT