Aðventuferð til Gdańsk frá Akureyri

  • Áfangastaður Pólland
  • Lengd ferðar 4 dagar / 3 nætur
  • Gjaldmiðill Pólsk Slot
Sjá myndir

Um ferðina

20.-23. nóvember 2026 | Akureyri-Gdansk kl. 12:55 |Gdansk-Akureyri kl.10:40

Gdańsk er einstaklega falleg hafnarborg við Eystrasaltið – og þegar jólaljósin kvikna verður borgin hreint út sagt ævintýraleg. Litríku húsin, steinlagðar göturnar og fallegi árbakkinn við Motława fá enn meiri sjarma á aðventunni þegar borgin fyllist af ljósum, jólaskrauti og notalegri stemningu.

Jólamarkaðurinn í Gdańsk er einn af hápunktum ferðarinnar. Þar má rölta á milli fallegra jólakofa, smakka á pólskum kræsingum, fá sér eitthvað heitt í glas og kíkja á handverk og jólagjafir – allt í sannkallaðri jólastemningu.

Skoða jólamarkaðinn í Gdańsk 2026 →

Gamli bærinn er svo upplifun út af fyrir sig. Þar er dásamlegt að rölta um þröngar göturnar, kíkja í verslanir og kaffihús og ganga niður að árbakkanum þar sem veitingastaðir og barir skapa líflega stemningu fram á kvöld.

Gdańsk á líka ótrúlega merkilega sögu. Skammt frá borginni er Westerplatte, þar sem innrás Þýskalands í Pólland hófst 1. september 1939 og þar með síðari heimsstyrjöldin í Evrópu. Söfn borgarinnar og sögulegir staðir gera Gdańsk því að miklu meira en bara fallegri jólaborg.



Jólaljós, góður matur, verslun, saga og notaleg aðventustemning – Gdańsk er algjörlega þess virði að heimsækja fyrir jólin! 🎄

*Ferðin er háð lágmarksþátttöku.

Hápunktar ferðar

  • Líf við árbakkann
  • Stemning í gamla bænum
  • Saga við hvert fótmál
  • Jólaljós og aðventugleði

Innifalið

  • Beint flug frá Akureyri til Gdańsk kl. 13:00
  • Flug heim til Akureyrar kl. 11:00
  • Þrjár nætur á hóteli miðsvæðis með morgunverði
  • 20 kg innritaður farangur fyrir jólainnkaupin
  • 10 kg handfarangur fyrir það allra nauðsynlegasta
  • Rútuferðir til og frá flugvellinum
  • Íslenskur fararstjóri sem heldur utan um gleðina

Ekki innifalið

  • Hádegis- og kvöldverður
  • Borgarskattur, sem greiðist beint á hótelinu
  • Drykkir, dekur og annað sem freistar
  • Jólagjafirnar sem rata óvart í ferðatöskuna
  • Valfrjálsar skoðunarferðir og önnur ævintýri

Verð frá: 154.990kr.- á mann í tvíbýli | 169.990kr.- í einbýli

Hotel Sadova ****

Hotel Sadova er stílhreint 4 stjörnu hótel í Gdańsk, staðsett í stuttu göngufæri frá gamla bænum, Crane-hliðinu og lífinu við Motława-ána.
Hótelið býður upp á björt og nútímaleg herbergi, góða þjónustu og heilsulindaraðstöðu með innisundlaug, gufubaði og líkamsrækt. Morgunverðurinn fær einnig mjög góðar umsagnir.
Á Booking.com fær hótelið 9,1 í heildareinkunn og 9,5 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Mjög góður valkostur fyrir hóp sem vill nútímalegt hótel, góða staðsetningu og spa-aðstöðu nálægt gamla bænum í Gdańsk.

Verð frá: 156.990kr.- á mann í tvíbýli | 188.990kr.- í einbýli

Qubus Hotel Gdańsk ****

Qubus Hotel Gdańsk er 4 stjörnu hótel við Chmielna-götu í Gdańsk, í um 5 mínútna göngufæri frá gamla bænum og um 500 metra frá Długi Targ.
Herbergin eru loftkæld með ókeypis WiFi, hljóðeinangrun og skrifborði og sum eru með útsýni yfir Motława-ána. Á hótelinu er veitingastaður, bar, líkamsrækt og heilsulind með gufubaði og nuddi (gegn aukagjaldi), auk fjölbreytts morgunverðarhlaðborðs.
Á Booking.com fær hótelið 8,9 í heildareinkunn og 9,5 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Hagstæður valkostur fyrir hóp sem vill 4 stjörnu hótel með góðri staðsetningu í göngufæri við gamla bæinn í Gdańsk.

Verð frá: 159.990kr.- á mann í tvíbýli | 199.990kr.- í einbýli

Q Hotel Grand Cru Gdańsk ****

Q Hotel Grand Cru Gdańsk er 4 stjörnu hótel við Motława-ána, alveg við gamla bæinn í Gdańsk. Hótelið sameinar nútímalega hönnun og söguleg smáatriði og í herbergjunum eru berir múrsteinsveggir sem gefa þeim sérstakan karakter.
Í kjallara hótelsins er veitingastaður sem býður upp á Miðjarðarhafsrétti og nútímalega pólska matargerð, auk þess sem á hótelinu er bar, gufubað og líkamsrækt. Kraninn frægi við Motława er í um 600 metra fjarlægð. Á Booking.com fær hótelið 8,9 í heildareinkunn og 9,6 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Góður valkostur fyrir hóp sem vill stílhreint hótel með karakter, góða staðsetningu við ána og stutt í gamla bæinn í Gdańsk.

Verð frá: 159.990kr.- á mann í tvíbýli | 189.990kr.- í einbýli

The Cloud One Gdańsk ***

The Cloud One Gdańsk er hönnunarhótel frá Motel One-keðjunni, staðsett í miðbæ Gdańsk, aðeins um 200 metra frá Græna hliðinu og örstutt frá árbakkanum við Motława.
Herbergin eru nútímaleg og loftkæld og á hótelinu er bar, kaffihús og fjölbreyttur morgunverður með grænmetis-, vegan- og glútenlausum valkostum. Á Booking.com fær hótelið 9,2 í heildareinkunn og 9,9 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Frábær valkostur fyrir hóp sem vill nútímalegt hótel á einni bestu staðsetningu borgarinnar, í göngufæri við allt það helsta í gamla bænum.

Verð frá: 169.990kr.- á mann í tvíbýli | 209.990kr.- í einbýli

Radisson Hotel & Apartments Gdańsk ****

Radisson Hotel & Apartments Gdańsk er 4 stjörnu hótel við Motława-ána í miðbæ Gdańsk, í um þriggja mínútna göngufæri frá árbakkanum Długie Pobrzeże.
Herbergin eru loftkæld og sum með svölum og útsýni yfir ána. Á hótelinu er nútímalegur veitingastaður með pólskri og alþjóðlegri matargerð, heilsulind með gufubaði og nuddi, auk líkamsræktar.
Á Booking.com fær hótelið 8,5 í heildareinkunn og 9,7 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Góður valkostur fyrir hóp sem vill vel búið hótel með heilsulind og útsýni yfir ána, í stuttu göngufæri frá gamla bænum.

Verð frá: 177.990kr.- á mann í tvíbýli | 169.990kr.- á mann í þríbýli

Radisson Blu Hotel Gdańsk *****

Radisson Blu Hotel Gdańsk er glæsilegt 5 stjörnu hótel í sögulegri gotneskri byggingu við Długi Targ, í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk.
Hótelið býður upp á stílhrein herbergi með fallegu útsýni yfir borgina, franska veitingastaðinn Verres en Vers með góðu vínúrvali og heilsuaðstöðu með gufubaði og eimbaði.
Á Booking.com fær hótelið 8,8 í heildareinkunn og 9,8 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Frábær valkostur fyrir hóp sem vill 5 stjörnu lúxus á aðalgötu gamla bæjarins, með allt það helsta í Gdańsk beint fyrir utan dyrnar.

Verð frá: 149.990kr.- á mann í tvíbýli

Mercure Gdansk Stare Miasto **** (UPPSELT)

Mercure Gdańsk Stare Miasto er vel staðsett hótel í miðbæ Gdańsk, í einni hæstu byggingu borgarinnar með fallegu útsýni yfir gamla bæinn og hafnarsvæðið.
Hótelið býður upp á nútímaleg herbergi, góða þjónustu og Winestone veitingastað og bar, þar sem lögð er áhersla á góða rétti og vínúrval. Helstu kennileiti, eins og Maríukirkjan og Long Market, eru í stuttu göngufæri.
Á Booking.com fær hótelið 8,8 í heildareinkunn og 9,5 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Góður valkostur fyrir hóp sem vill miðlæga staðsetningu, fallegt útsýni og þægilegt aðgengi að gamla bænum í Gdańsk.

Verð frá: 154.990kr.- á mann í tvíbýli

Scandic Gdańsk **** (UPPSELT)

Scandic Gdańsk er með svansvottun, staðsett nálægt gamla bænum í Gdańsk. Hótelið er í um 800 metra fjarlægð frá fræga krananum við Motława-ána og aðallestarstöðin er beint á móti hótelinu.
Herbergin eru hljóðeinangruð og með baðherbergi, sjónvarpi og ókeypis WiFi. Á hótelinu er líkamsrækt sem er opin allan sólarhringinn, gufubað, Senso Restaurant & Bar og anddyrisbar með léttum veitingum og drykkjum.
Á Booking.com fær hótelið 8,7 í heildareinkunn og 9,4 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Góður valkostur fyrir hóp sem vill góða staðsetningu, umhverfisvottun og frábært aðgengi að lestarstöð, flugvelli og gamla bænum í Gdańsk.

Verð frá: 157.990kr.- á mann í tvíbýli

Hampton By Hilton Gdansk Old Town *** (UPPSELT)

Hampton by Hilton Gdańsk Old Town er þægilegt 3 stjörnu hótel í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk, með frábæra staðsetningu nálægt helstu kennileitum, verslunum, veitingastöðum og borgarlífi.
Hótelið býður upp á nútímaleg og þægileg herbergi, veitingastað og bar. Staðsetningin hentar sérstaklega vel fyrir hópa sem vilja vera miðsvæðis og hafa allt það helsta í göngufæri.
Á Booking.com fær hótelið 9,0 í heildareinkunn og 9,8 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Mjög góður valkostur fyrir hóp sem vill öruggt hótel, frábæra staðsetningu og þægilegt aðgengi að gamla bænum í Gdańsk.

Verð frá: 159.990kr.- á mann í tvíbýli

PURO Gdansk Stare Miasto **** (UPPSELT)

PURO Gdańsk Stare Miasto er stílhreint hönnunarhótel á Granary Island, í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk.
Hótelið sameinar nútímalega hönnun, list og þægindi í fallegu umhverfi. Á staðnum er þakbarinn Inka, heilsulind og nútímaleg herbergi með góðri tækni og þægindum.
Crane-hliðið, gamla höfnin og helstu götur gamla bæjarins eru í örstuttu göngufæri.
Á Booking.com fær hótelið 9,2 í heildareinkunn og 9,8 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Sterkur valkostur fyrir hóp sem vill frábæra staðsetningu, stílhreint hönnunarhótel, þakbar og nútímalega upplifun í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk.

Verð frá: 169.990kr.- á mann í tvíbýli

Hilton Gdansk ***** (UPPSELT)

Hilton Gdańsk er glæsilegt 5 stjörnu hótel við Motława-ána, í hjarta sögulega miðbæjarins í Gdańsk.
Hótelið býður upp á nútímalegan lúxus, rúmgóð herbergi og fallegt útsýni yfir ána og gamla bæinn. Á hótelinu er Mercato veitingastaðurinn, heilsulind með innisundlaug á efstu hæð og High 5 Terrace Bar, vinsæll þakbar með útsýni yfir borgina.
Á Booking.com fær hótelið 8,8 í heildareinkunn og 9,7 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Mjög sterkur valkostur fyrir hóp sem vill 5 stjörnu hótel, frábæra staðsetningu, þakbar og lúxusupplifun við ána í Gdańsk.

Frítt skemmtiatriði með í ferðina!🎉

Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.

Skoða frítt skemmtiatriði!

Umsagnir fyrri hópa

Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!

Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:

Umsagnir fyrri hópa Tripical

Umsagnir

Skoða allar umsagnir
Frábær ferð hópsins okkar til Wroclaw, góð skipulagning varðandi flug og rútuferðir hjá Tripical, stóðst væntingar. Skemmtum okkur konunglega!

Ísloft

Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir – Pólland

Lesa umsögn frá Ísloft
★★★★★
SoftwareOne – Wroclaw, Pólland Við hjá SoftwareOne áttum frábæra ferð til Wroclaw í Póllandi og getum svo sannarlega mælt með þessum áfangastað. Borgin er falleg, með ríka sögu, glæsilegan arkitektúr,…

Fyrirtæki

Árshátíðar- og fyrirtækjaferðir – Pólland

Lesa umsögn frá Fyrirtæki

Um áfangastað

Pólland er einn af lykiláfangastöðum Tripical fyrir hópa, með góðu verðlagi og sterkum valkostum á borð við Kraká og Gdansk.

Skoða Pólland

Tilboð í ógleymanlega ferð?

Hafðu samband og við sendum þér sérsniðið tilboð fyrir þinn hóp.

Fá tilboð fyrir þinn hóp