8 daga ferðalag um Marokkó Kasbahs & Desert - Tripical
Skip to content
  • Umsagnir
  • Áfangastaðir
  • Ferðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Bæklingur 2026
  • Tripical logo
  • Ferðir
  • Áfangastaðir
  • Blogg
  • Um okkur
  • Umsagnir
  • 👤 Mín bókun
Sjá myndir
  • Ferðalýsing
  • Um áfangastaðina
  • Dagskrá

8 daga ferðalag um Marokkó Kasbahs & Desert

Lengd ferðar:
8 dagar / 7 nætur
Land:
Marokkó
Gjaldmiðill:
Marakókst dirham

Casablanca til Marrakech

Þessi ferð er fullkomið ævintýri fyrir þá sem vilja skoða helstu hápunkta Marokkó! Það verður skoðað allt frá Sahara eyðimörkinni til markaðana í Marrakech.

Næststærsta borg Marokkó – oft kölluð rauða borgin, eða Red City – er hin töfrandi Marrakech. Þar búa um það bil 800.000 manns og flest húsin eru rauð á litinn, sem útskýrir gælunafn borgarinnar. Marrakech er virkilega skemmtileg og sannkölluð perla Marokkó. Þar er afar áhugavert að ganga um götur, þetta er staður sem er sannarlega engum öðrum líkur!

Borgin samanstendur af óteljandi litlum götum og torgum, og ávallt eitthvað spennandi að sjá. Litlir markaðir og sölubásar, þar sem innfæddir bjóða fallega muni sem þeir búa til á staðnum, eða heimatilbúin krydd. Hér er gott að týnast og drekka í sig sanna marokkóska menningu.

Spákonur og snákar

Eftir gott ráp um um götur Marrakech er upplagt að fara á Jeema el Fna torgið. Þar finnurðu matarsölubása í miklu magni og  getur smakkað ekta marokkóskan mat og svalað þér á ljúffengu tei. Á meðan hlustarðu á tónlistamenn spila ljúfa tóna, lætur spákonur spá hver er ástin í lífi þínu eða fylgist með snákum dansa lóðrétt upp úr bastkörfunum sínum.

Krydd í tilveruna

Matarmenningin í Marokkó mun koma þér skemmtilega á óvart og mjög víða færðu tækifæri til að smakka hitt og þetta sem heimamenn hafa upp á að bjóða. Þar ráða bragðmikil krydd ferðinni. Kryddað lambakjöt, couscous og rúsínur eru allt hráefni sem eru mjög tíð í matargerð og þú átt ekki eftir að sjá eftir því að fá þér smakk! Við mælum svo eindregið með  matreiðslunámskeiði þar sem þú lærir öll helstu handbrögðin við marokkóska matargerð.

Listin að prútta

Það er svo margt sem hægt er að gera í Marrakech og ógerlegt að telja það allt upp! Við skulum þó nefna nokkra hluti sem þú mátt ekki missa af. Stærsta moska borgarinnar, Koutoubia Mosque, er mögnuð sjón. Hana er auðvelt að finna, þar sem hún gnæfir yfir lágreista borgina. Þá er El Badi höllin afar mögnuð og tilkomumikil. Við mælum svo eindregið með spennunni sem fylgir því að prútta við sölufólk á götum borgarinnar um kryddpoka eða jafnvel eins og eitt teppi. Ekki eru allir jafn spenntir fyrir þeim verslunarmáta, en hér í borg lifa sölumennirnir fyrir gott prútt!

Ef yfir þig leggst letikast, þá er bara að njóta lífsins á sundlaugabakkanum, og sýna six-packið sem þú ert búinn að vinna svo hart að. Eða ekki.

 

Komdu með í ævintýrið!

Hápunktar ferðar

  • favorite
    Framandi menning
  • favorite
    Kryddaður matur
  • favorite
    Spákonur og galdrakarlar
  • favorite
    Fallegar byggingar
  • favorite
    Sól og hiti

Innifalið í verði

  • 7 nátta gisting á mismunandi hótelum
  • Morgunmatur, stundum hádegis og kvöldmatur
  • Allar skoðunarferðir sem eru nefndar hér að ofan
  • Keyrsla á milli áfangastaða
  • Local leiðsögumaður

Ekki innifalið

  • Símtöl og net
  • Spa og meðferðir
  • Dagsferðir aðrar en eru gefnar upp
  • Flug til og frá Marokkó

Marokkó

Marokkó er staðsett í Norður-Afríku og liggur strandlengjan bæði að Norður-Atlandshafi og Miðjarðarhafi. Marokkóþjóðin samanstendur að mestu leyti af Aröbum og aðaltungumál eru arabíska og Tamazight. Þó eiga margir íbúar Marokkó uppruna sinn að rekja til Spánar og Portúgal.

Marokkó er sannkallaður draumastaður. Landið nýtur æ meiri vinsælda hjá ferðamönnum, enda instagramvæn í meira lagi.

Marokkó býður upp á framandi menningarheim, þar er afar margt að upplifa og skoða, því þetta heillandi land með magnaða sögu.

Marrakech

Nafnið Marrakech kemur frá orðinu amur (n) kush sem þýðir ,,Land Guðsins“. Borgin er þriðja stærsta borg Marokkó á eftir Casablanca og Fez, staðsett í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá Sahara eyðimörkinni.

Marrakech er suðupottur menningar og fegurðar, skylduviðkomustaður fyrir alla sem koma til Marokkó. Borgin skiptist í tvo parta, annars vegar Medina, sem er hin sögulega borg,  og hins vegar nýja hverfið sem kallað er Gueliz eða Ville Nouvelle. Medina býður upp á söguupplifun, gamlar byggingar og þröngar götur með lókalbúðum.  Gueliz er aftur á móti með nýtískulegri blæ, veitingastaðakeðjum og stórum verslunum.

Almennar upplýsingar

  • Fjöldi fólks: 32.725. 847
  • Stærð að flatamáli: 446.550 km²
  • Opinbert tungumál: Arabíska og Tamazight
  • Gjaldmiðill: Marokkó Dirham / 1 Dirham = 12 ISK
  • Hitastig: 13°-29°
  • Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi

 

Dagskrá í ferð

  • add Dagur 1: Casablanca
    • Möguleiki á að hitta hópinn í móttökustund
    • Gist á Hotel Campanile Casablanca (eða sambærilegt)

     

  • add Dagur 2: Casablanca/Fès
    • Dagurinn byrjar á Morrokóskum morgunmat á hótelinu
    • Lagt af stað í átt til borgarinnar Fés
    • Fáum Marookóskan hádegismat í Meknès
    • Eftir það fáum við leiðsögn um Volubilis sem er UNESCO World Heritage svæði
    • Gist á Hotel Mounia Fes (eða sambærilegt)

  • add Dagur 3: Fès
    • Dagurinn byrjar á Morrokóskum morgunmat á hótelinu
    • Leiðsögumaður frá svæðinu mun segja okkur frá sögu Fés Medina
    • Fáum leiðsögn um allt sem svæðið hefur upp á að bjóða
    • Frjáls tími restina af deginum
    • Gist á Hotel Mounia Fes (eða sambærilegt)

  • add Dagur 4: Fès/Merzouga
    • Dagurinn byrjar á Morrokóskum morgunmat á hótelinu
    • Keyrum suður í Sahara eyðimörkina
    • Förum í göngu á kameldýrum
    • Morrokóskur kvöldmatur saman
    • Dagurinn endar á öðru hóteli
    • Gist á Auberge Dunes D’Or  (eða sambærilegt)

  • add Dagur 5: Merzouga/Todra Gorge
    • Í dag er möguleiki á að vakna snemma og sjá eina fallegustu sólarupprás í heimi
    • Eftir það förum við í Morrokóskan morgunmat á hótelinu
    • Keyrum afram í gegnum eyðimörkina að Todra Gorge
    • Gist á Hotel Amazir (eða sambærilegt)

  • add Dagur 6: Todra Gorge/Aït Ben Haddou
    • Dagurinn byrjar á Morrokóskum morgunmat á hótelinu
    • Síðan keyrum við veginn sem kallast „Route of 1000 Kasbahs“
    • Stoppað í Ouarzazate bænum, þar hafa frægar bíómyndir eins og Lawrence of Arabia and Gladiator verið teknar upp
    • Við heimsækjum síðan Aït Ben Haddou Kasbah, UNESCO World Heritage svæði
    • Gist á La Rose du Sable Ait Benhaddou (eða sambærilegt)

     

  • add Dagur 7: Aït Ben Haddou/Marrakech
    • Dagurinn byrjar á Morrokóskum morgunmat á hótelinu
    • Í dag keyrum við til Marrakech
    • Á leiðinni keyrum við um Atlas fjöllin Mountains í gegnum Tizi n’Tichka Pass sem er í  2260 metra hæð
    • Leiðsögumaður fer með okkur um Medina í Marrakech
    • Gist á Hotel Oudaya Marrakech (eða sambærilegt)

  • add Dagur 8: Marrakech og heimför
    • Dagurinn byrjar á Morrokóskum morgunmat á hótelinu
    • Í boði er vakna snemma og taka loftbelg!

Verð frá 114.990 kr.
(Á mann í tvíbýli)

Tripical Ísland ehf

Hólmaslóð 4, 3.hæð, 101 Reykjavík

Kt. 490721-0450

Vsk nr. 142741

hallo@tripical.is

+354 519 8900

Gott að vita

Skilmálar

Persónuverndarstefna

Algengar spurningar

Hafa samband

Skemmtitékki

Áfangastaðir

  • Andorra
  • Færeyjar
  • Grikkland
  • Holland
  • Ítalía
  • Króatía
  • Lettland
  • Litháen
  • Mexíkó
  • Pólland
  • Slóvenía
  • Spánn
  • Svartfjallaland
  • Tékkland
  • Ungverjaland

Skráðu þig á póstlistann

Tripical á samfélagsmiðlum

Við notum vafrakökur á þessari vefsíðu
Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Persónuverndarstefna
stillingarsamþykkja allt
Manage consent

Stillingar á vafrakökum

Tripical notar vefkökur (e. cookies) sem eru litlar textaskrár geymdar á tölvu notandans. Með því að samþykkja notkun á vefkökum heimilar þú okkur að safna saman upplýsingum um notkun þína á vef okkar. Einungis við og þú höfum aðgang að skránum.

Vefkökur eru notaðar til að geyma upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefkökur geta innihaldið persónulegar upplýsingar. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Við notum vefkökur til að greina almenna notkun á vefnum. Tilgangur þessa er að þróa vefsíðuna þannig að bæta megi þjónustu við notendur.
Tölfræði
Tölfræðilegar vafrakökur hjálpa okkur að bæta heildarupplifun gesta á vefsvæðinu með því að safna upplýsingum um notkun.
Markaðssetning
Vefkökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingum um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi auglýsingar.
Nauðsynlegar
Sumar vefkökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru þær sjálfkrafa virkar
SAVE & ACCEPT