Þýskaland - Tripical

Þýskaland

Sjá myndir

Þýskaland

Almennar upplýsingar

  • Fjöldi fólks: 83.166.711
  • Stærð að flatamáli: 357.022 km²
  • Opinbert Tungumál: Þýska
  • Gjaldmiðill: Evra
  • Hitastig: 5°-30°
  • Tímabelti: 1-2 tímum á undan Íslandi

Þýskaland stendur stórt og víðfeðmt í Evrópu miðri, miðpuntur álfunnar sem teygir sig þaðan í allar áttir með sínum stærri og smærri ríkjum. Staðsetningin hefur ugglaust mikið að segja um mikilvægi landsins, bæði innan álfunnar og á alþjóðlegum vettvangi. Þýskaland er áhrifaríkt stórveldi. 

Um atgöngu Þjóðverja í styrjöldum síðustu aldar og þær óhugnanlegu afleiðingar sem af því hlutust, þarf ekki að fjölyrða hér. Sagan geymir staðreyndir sem aldrei mega gleymast. Sama er að segja um skiptingu landsins í austur og vestur eftir seinna stríð, þær rótæku breytingar mótuðu þjóðina mikið allt til ársins 1989 þegar Berlínarmúrinn féll, og enn má finna ríkan keim af þeim víða um landið. Þjóðverjar hafa gengið í gegnum nauðsynlega og síendurtekna sjálfskoðun og Þýskaland nútímans er friðsamt og blómstrandi velferðarríki sem býr yfir gríðarlegri fegurð í borgum, skógum og sveit. Möguleikar fyrir forvitna ferðalanga eru óteljandi!

Vegna stærðar sinnar og staðsetningar býr Þýskaland yfir mjög fjölbreyttu landslagi og náttúru. Í norðurhlutanum, með strandlengju að Norðursjó og Eystrasalti,  finnurðu svalara loftslag, þar er flatlendi talsvert og gróðurfar nokkuð lágstemmdara en syðra. Þar má finna áhugaverða staði, jafnvel falda fjársjóði, eins og hinar mjög svo fallegu Frísísku eyjar (The Frisian Islands) með sína hvítu sanda og fögru byggingar, en þær eru aðallega heimsóttar af Þjóðverjum sjálfum. Stærsta borg Norður-Þýskalands er hafnarborgin Hamburg, næst stærsta borg landsins, sem býður upp á alls kyns áhugaverða og skemmtilega afþreyingu, fornar glæsibyggingar og flottar krár, veitinga- og skemmtistaði. 

Mið-Þýskaland er skemmtileg blanda af tignarlegum fjallshlíðum, grösugum engjum og þéttvöxnum skógum sem tengja saman stórborgir og minni bæi. Hér eru margir vinsælir áfangastaðir sem vert er að skoða. Fyrir náttúruunnendur má sem dæmi nefna Svartaskóg, Þjóðgarðinn í Harz og Rínardalinn sem er eitt mikilvægasta ávaxta- og vínræktarsvæði landsins. Þá er hér líka að finna helstu stórborgir landsins, eins og fjármála-stórborgina Frankfurt (sem heitir fullu nafni Frankfurt am Main og af gárungum stundum kölluð “Mainhattan”). Dusseldorf, Köln, Bonn, Leipzig tilheyra allar þessum landshluta og þar austast, nærri landamærum Póllands, stendur borgin sem margir vilja meina að sé sú skemmtilegasta í Evrópu allri, sjálf Berlín.

Í suður-hlutanum er hálendið mest. Á landamærunum við Austurríki gægjast Alparnir inn í landið, lítill en afar fallegur hluti þeirra tilheyra Þýskalandi. Þarna er Bæjaraland, heimsþekkt fyrir bjórmenningu og ekki síður sjálfan einkennisbúning allra alvöru bjórhátíða, þ.e. Lederhosen og kjólana sem kallast því óþjála nafni Dirndl. Rétt er að nefna eina stórborg í viðbót. Í Suður-Þýskalandi er nefnilega höfuðborg Bæjaralands, Munchen. Fjölbreytt og ótrúlega skemmtileg, og hún er að sjálfsögðu sjálf Octoberfest borgin!   

Við stiklum hér að sjálfsögðu á stóru, því eins og fram hefur komið er Þýskaland stóóóórt og svo sannarlega af mörgu að taka.

Þýskaland

Fræðsluferð til Berlínar ⛵️

Borgin þar sem allir finna eitthvað sér til hæfis. Berlín er höfuðborg Þýskalands og þar búa tæplega fjórar milljónir manna. Borgin er suðupottur af menningu og listum og endalaust margt hægt að sjá og gera. Hvort sem heillar þig frekar,...
Þýskaland

Hópferð til Berlínar

Fjölskrúðuga Berlínarborg! Borgin þar sem allir finna eitthvað sér til hæfis. Berlín er höfuðborg Þýskalands og þar búa tæplega fjórar milljónir manna. Borgin er suðupottur af menningu og listum og endalaust margt hægt að sjá og gera, hvort sem heillar...