Skotland - Tripical

Skotland

Sjá myndir

Skotland

Land sem leynir á sér!

Sekkjapípan sigrar kannski aldrei keppnina um hljómbesta hljóðfærið. En skoska þjóðin kemst  langt í keppninni um skemmtilegustu og vinalegustu gestgjafana. Eru Skotar allsberir undir pilsunum? Þarftu ekki bara að kíkja í heimsókn og tékka á því?

Njóttu textans með skoskum “ljúfum tónum” á uppáhalds hljóðfæri okkar allra


Almennar upplýsingar:

  • Fjöldi fólks: 5,404,700
  • Stærð að flatamáli: 77,933 km2
  • Opinbert Tungumál: Enska
  • Gjaldmiðill: Breskt Pund
  • Hitastig: Yfir sumar 9-16°C að meðaltali. Veturnir eru um 5-8°C að meðaltali
  • Tímabelti: 0 klukkutímum á undan Íslandi, 1 á undan yfir sumartímann

Úti er ævintýri

Skosk náttura er ævintýri líkust. Stundum ekki ósvipuð Íslandi, en gróðurfar er sælla, Skotland er grænt, tré eru há, víðáttan mikil. Hér svífa gylltir ernir yfir vötnum og otrar busla á ám. Svæði þar sem þú sérð gyllta örnin svífa yfir vötn og fjöll á norðursvæði landsins og Otra sulla og busla í ám. Og svo auðvitað Loch Ness skrýmslið…

Í Skotlandi eru kastalar mjög margir og allir hafa þeir sín sérkenni og yfir þeim hvílir mikil saga.

Bragðaðu á Skotlandi

Einhvern tíma var hlegið að breskri matargerð og hún kölluð ýmsum miður smekklegum nöfnum. En þess háttar heyrir fortíðinni til! Veitingastaðir í Skotlandi hafa hrist af sér gamalt leiðindarorðspor, þar er víða boðið upp á ferskt staðbundið hráefni, nýveiddan fisk, og kjöt og grænmeti beint frá býli. Ekki er verra að skella í sig eins og einum einföldum viskí til að bæta meltinguna.

Edinborg

Edinborg, höfuðborg Skotlands, er líflegur og heillandi áfangastaður sem laðar að sér gesti alls staðar að úr heiminum. Með sína ríku sögu, töfrandi byggingarlist og fjölskrúðugt menningarlíf hefur Edinborg eitthvað fyrir alla.

Eitt vinsælasta aðdráttarafl hennar verður að teljast Edinborgarkastali, sögulegt virki sem á rætur sínar að rekja til 12. aldar. Gestir geta skoðað kastalann og fræðst um heillandi fortíð hans, þar á meðal hlutverk hans í sjálfstæðisstríðum Skotlands og uppreisn Jakobíta.

En Edinborg státar einnig af fjölmörgum söfnum og galleríum, svo sem Skoska þjóðlistasafninu, Þjóðminjasafni Skotlands og Konunglega grasagarðinum.

Þar að auki er borgin fræg fyrir hátíðir sínar, þar á meðal Edinburgh International Festival, Edinburgh Fringe Festival og Royal Edinburgh Military Tattoo. Þessir viðburðir draga til sín listamenn og áhorfendur alls staðar að úr heiminum, og gera Edinborg að heljarinnar suðupotti sköpunar og skemmtunar.

Hvort sem þú hefur áhuga á sögu, menningu eða skemmtun þá er Edinborg frábær áfangastaður sem er vel þess virði að heimsækja.

Skíð (e. Isle of Skye)

Stærsta eyjan við Skotlandsstrendur og þriðji vinsælasti ferðamannastaður landsins (á eftir Edinborg og Loch Ness vatninu). Þar hefur haldist byggð allt frá miðri steinöld og í dag búa þar rúmlega 9 þúsund manns.

Hér finnurðu töfrandi landslag, og einstakt dýralíf, en gullernir, krónhirtir og lax eru meðal dýra sem búa á og við eynna. Það má þó alveg gera ráð fyrir að skoska þokan láti sjá sig og bregði hulu yfir útsýnið. Það er allt í lagi, þú ferð bara og skoðar einhvern af fjölmörgum kastölum eyjunnar og færð þér svo mat og drykk á góðum veitingastað í bænum.

Aberdeen

Aberdeen er orkuborg og þekkt undir nafninu Granítborgin, eftir undirstöðu borgarinnar og svæðinu í kring. Ekki langt frá er hin yfirgefna Rubislaw Quarry náman, sem eitt sinn var dýpsta manngerða hola í Evrópu. Á björtum sumardegi má sjá borgina glitra af endurkasti granítsins. Aftur á móti geta dagarnir verið heldur lágskýjaðir og stundum erfitt að átta sig á hvar byggingarnar enda og himininn tekur við. Viðurnefni borgarinnar á þó líka að nokkru leyti við um íbúanna, sem þykja grjótharðir.

 Snilldar blanda af nýju og gömlu

Aberdeen hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu ár, ekki síst vegna stórfellds olíuiðnaðar í Norðursjó. Fjármagnið sem honum fylgir hefur hækkað verðlag, sem þykir nú jafn hátt þar og í Lundúnum.

Aberdeen er orðin lúxusborg. Nýtísku hótel, veitingastaðir og klúbbar hafa risið upp, sem og fjölbreyttari afþreying og skemmtun. Hér eru líka að sjálfsögðu söfn sem vert er að skoða, og aldagamlar byggingar. Og það sem mörgum finnst mikilvægast af öllu: Risamoll! Hér er hægt að versla vel og mikið!

Skotland

Beint leiguflug með leiguflugi Icelandair til Aberdeen frá Akureyri og Egilsstöðum í haust

Ævintýraferð til Aberdeen frá Akureyri og Egilsstöðum í haust! Dagsetningar frá Akureyri: 16.-20. Okt. 2024 -Aðeins 34 sæti laus! 23.-27. Okt. 2024 -Aðeins 13 sæti laus! Dagsetningar frá Egilsstöðum: 17.-21 Okt. 2024 -Aðeins 55 sæti laus! 24.-28. Okt. 2024 -Aðeins...
Skotland

Fræðsluferð – Beint leiguflug með leiguflugi Icelandair til Aberdeen frá Akureyri og Egilsstöðum í haust

Fræðsluferð til Aberdeen frá Akureyri og Egilsstöðum í haust! Dagsetningar frá Akureyri: 16.-20. Okt. 2024 -Aðeins 34 sæti laus! 23.-27. Okt. 2024 -Aðeins 13 sæti laus! Dagsetningar frá Egilsstöðum: 17.-21 Okt. 2024 -Aðeins 55 sæti laus! 24.-28. Okt. 2024 -Aðeins...
Skotland

Fræðsluferð til Glasgow

Skemmtileg skotagleði! Stærsta borg Skotlands og ein helsta verslunarborg Bretlands. Töfrandi arkitektúr fyrri alda, frábærir veitingastaðir og krár, og afar hressandi næturlíf, enda Skotar annálaðir fyrir almenn skemmtilegheit. Glasgow er meiriháttar, og sannarlega þess virði að kíkja í heimsókn. Tilkomumiklar...
Skotland

Aðventuferð fyrir hópa til Glasgow 24. – 27. nóv & 31.nóv – 3.des & 7. – 10.des 2024

Skemmtileg skotagleði! Verðin má sjá undir “Dæmi um hótel” flipanum hér að ofan. Fáðu tilboð í þinn hóp með að hafa samband við sölumenn Tripical í fyrirspurnarformi hér til hliðar eða í hallo@tripical.is Stærsta borg Skotlands og ein helsta verslunarborg Bretlands....
Skotland

Hópferð til Glasgow

Skemmtileg skotagleði! Stærsta borg Skotlands og ein helsta verslunarborg Bretlands. Töfrandi arkitektúr fyrri alda, frábærir veitingastaðir og krár, og afar hressandi næturlíf, enda Skotar annálaðir fyrir almenn skemmtilegheit. Glasgow er meiriháttar, og sannarlega þess virði að kíkja í heimsókn. Tilkomumiklar...
Skotland

Fræðsluferð til Edinborgar

Æðislega Edinborg! Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar búa í kringum 450.000 manns, en hátt í 1 milljón í héraðinu öllu. Auld Reekie eins og borgin heitir á skosku (og þýðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt...
Skotland

Hópferð til Edinborgar

Æðislega Edinborg! Edinborg er höfuðborg Skotlands. Þar búa í kringum 450.000 manns, en hátt í 1 milljón í héraðinu öllu. Auld Reekie eins og borgin heitir á skosku (og þýðir Old Smoky), sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt...
Skotland

Hópferð til Aberdeen

Granítharða orkuborgin í norðri Kannski ertu að hugsa, "af hverju Aberdeen?". Góð spurning! Við ætlum að svara þeirri spurningu, og ekki nóg með það, þá ætlum við að kynna borgina fyrir þér þannig að þú getur ekki staðist freistingu að...