Litháen - Tripical

Litháen

Sjá myndir

Litháen

Litháen má með réttu kalla einn af földum gimsteinum Evrópu. Tenging Íslands við landið er allnokkur, en eins og þekkt er áttu íslensk stjórnvöld mikilvægan þátt í að Litháen öðlaðist sjálfstæði árið 1991. Landið er staðsett syðst af Eystrasaltsríkjunum og á landamæri að Lettlandi í norðri, Hvíta-Rússlandi í austri og Póllandi og Rússlandi í suðri. Litháen býður upp á hina fallegu og sögufrægu höfuðborg Vilníus, en einnig stórbrotna náttúru, skóga og vötn víða um land. Síðast en ekki síst má nefna eitt helsta aðdráttarafl Litháens, glæsilega strandlengjuna, með sínum hvíta sandi sem liggur eins og teppi við Eystrasaltið.

Almennar upplýsingar

  • Fjöldi íbúa: 2.900.787
  • Stærð að flatarmáli:  65.300 km²
  • Opinbert tungumál: Litháíska
  • Gjaldmiðill: Evra
  • Hitastig: Yfir sumar 17°C að meðaltali. Veturnir eru um 0°C að meðaltali
  • Tímabelti: 2 klukkutímum á undan Íslandi, 3 yfir sumartímann

Vilníus

Höfuðborg Litháen er næststærsta borg Eystrasaltsríkjanna. Hún er í senn afar falleg og skemmtileg, hér og þar rísa tignarlegar kirkjur í barokkstíl og á milli þeirra eru hin ýmsu hverfi – sum aldargömul, önnur ný. Þar má finna glæsilega veitingastaði, líflegar krár og skemmtistaði sem halda stemmingunni gangandi langt inn í nóttina. Vilníus er vönduð nútímaborg, byggð á gömlum grunni. Gamli bærinn er friðaður og skrásettur á heimsminjaskrá UNESCO, og hiklaust hægt að mæla með skoðunarferð um hann.

Litháen var hluti af Sovétríkjunum frá lokum seinni heimsstyrjaldar og allt þar til landið varð fyrst ríkja til að krefjast sjálfstæðis í aðdragandanum á falli kommúnismans. Til eru merkilegar leifar frá þessum tíma. Í Plokstine er meðal annars að finna yfirgefið fyrrum kjarnorkuvopnasvæði, sem nú hýsir safn tileinkað Kalda stríðinu. Safnið er staðsett í hinum fallega Zemaitija þjóðgarði sem er vinsælt göngusvæði og þangað er boðið upp á dagsferðir frá Vilníus, sem mæla má með.

Heimsókn í Grūtas Park (einnig þekktur sem Stalin’s World) er afar sérstök upplifun, en þar er að finna alls kyns styttur og skúlptúra frá Sovéttímanum. Garðurinn er staðsettur í um 130 km fjarlægð frá höfuðborginni.

Einnig er rétt að nefna þá staðreynd að Vilníus var lengi vel ein stærsta gyðingamiðstöð Evrópu og oft nefnd ,,Jerúsalem Litháen“. Vilnius Choral Synagogue er starfrækt í byggingu frá 1903 sem slapp merkilega vel frá ógnum stríðsins og áhugavert er að heimsækja, sem og hið sögulega Jewish Quarter í gamla bænum.

Tökum aðeins saman hluti til að sjá og upplifa í Vilníus

Gamli bærinn: Frábær staður til þess að kynna sér forna menningu þessa svæðis. Þar eru byggingar frá 13. öld og hverfi gyðinga frá þeim tíma þegar vegur þeirra var sem mestur í borginni. Heillandi miðborg sem gaman er að rölta um.

Uzupis: Hverfi innan borgarinnar sem að stórum hluta er byggt af skapandi listafólki, og merkilegt fyrir þær sakir að íbúar Uzupis lýstu yfir stofnun sjálfstæðs lýðveldis árið 1998 og eiga sinn eigin fána og þjóðsöng!

Rölt meðfram ánni: Í gegnum borgina rennur fallega áin Vilnia, með sína grasivöxnu bakka sem gaman er að rölta um, og jafnvel fara í góða lautarferð í skógunum í kring.

Gediminas turninn: Farðu upp á hæðina og skoðaðu leifarnar af þessum virðulega kastala frá 14. öld. Ef þú tekur þrepin upp í toppinn á turninum færðu stórkostlegt útsýni yfir borgina.

Vilnius Cathedral: Þessi skínandi hvíta klassíska kirkja er fallegur staður með áberandi stóru torgi sem gaman er að heimsækja.

Three Crosses Hill: Hæðin er reyndar í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá Vilníus, nálægt bænum Siauliai, en við höfum hana með í þessari upptalningu því þetta er áhrifaríkur staður sem geymir mikla fortíð. Þar stendur minnisvarði um samfléttaða sögu Litháens og Sovétríkjanna, og hættuleg mótmæli og baráttu Litháa fyrir sjálfstæði sínu. Svæðið hefur nokkrum sinnum orðið fyrir skemmdun, en ávallt endurbyggt á nýjan leik. Hæðin býður upp á afar fallegt útsýni yfir landið í kring.

Fjöldinn allur af söfnum er í borginni þar sem skoða má allt frá sögu landsins, til hinnar fjölbreyttu listsköpunar sem landið hefur að geyma.

Litháen

Fræðsluferð til Vilnius í Litháen

Sagnir af upphafi Vilniusborgar eru sveipaðar mystískum ljóma. Þar sem stórhertoginn Gediminas (um 1275-1341) lá og hvíldist með flokki sínum eftir velheppnaða veiðiferð nálægt Vilniafljóti, dreymdi hann draum um risavaxinn járnúlf sem stóð á hæð einni og ýlfraði jafn hátt...
Litháen

Hópferðir til Vilníus

Falinn demantur í austri Höfuðborg Litháen, Vilníus, er athyglisverð borg með fjölbreytt menningarlíf og fjörugt næturlíf. Barokk kirkjur standa víðsvegar um borgina, þar er mikið af fallegum gömlum húsum sem mynda þröngar götur og torg þar sem finna má gott úrval...