Kosta Ríka
Fullkomið jafnvægi milli ævintýra og slökunar
Það sem gerir Costa Rica einstaka er jafnvægið. Þú getur byrjað daginn í göngu í regnskógi, farið í ævintýraferð eftir hádegi og endað daginn í heitum potti eða á rólegri strönd við sólsetur.
Tripical skipuleggur ferðir þar sem þú upplifir landið á þægilegan og vel úthugsaðan hátt – án stress og með áherslu á gæði.

Menning og matur
Í Costa Rica ríkir afslappað og vinalegt andrúmsloft. Heimamenn eru þekktir fyrir gestrisni og jákvæðni. Maturinn er ferskur og einfaldur, oft byggður á hrísgrjónum, baunum, grænmeti, fiski og ávöxtum.
„Pura Vida“ er ekki bara orð – það er lífsstíll sem þú finnur fyrir í öllu ferðalaginu.

Af hverju Costa Rica með Tripical?
- Sérvaldar upplifanir og áfangastaðir
- Fullkomið jafnvægi milli ævintýra og afslöppunar
- Ferðir skipulagðar af sérfræðingum Tripical
- Einstök náttúra, dýralíf og menning
- Tilvalið fyrir ævintýragjarna ferðalanga sem vilja upplifa eitthvað öðruvísi

Almennar upplýsingar – Costa Rica
- Fjöldi fólks: um 5.300.000
- Stærð að flatarmáli: 51.100 km²
- Opinbert tungumál: Spænska
- Gjaldmiðill: Costa Rican Colón (CRC) / 1 CRC ≈ 0,1 ISK
- Hitastig: ca. 20°–30° allt árið (fer eftir svæðum og hæð)
- Tímabelti: 6 tímum á eftir Íslandi

Costa Rica bíður þín
Costa Rica er áfangastaður fyrir þá sem vilja upplifa náttúruna af alvöru, prófa ný ævintýri og njóta lífsins í rólegu og fallegu umhverfi.
Ferð til Costa Rica með Tripical er upplifun sem situr eftir – lengi eftir að heim er komið.