

Berlín fer sínar eigin leiðir – og það er einmitt það sem gerir borgina svona skemmtilega! Hér blandast mögnuð saga, skapandi menning, spennandi veitingastaðir og fjörugt næturlíf. Borg með endalausa möguleika og alveg sinn eigin takt.
Brussel er borg sem bragðast einstaklega vel! Hér fara glæsilegar byggingar, söguleg torg og líflegt borgarlíf saman við belgískt súkkulaði, stökkar vöfflur og heimsfrægan bjór. Fullkomin blanda af menningu, stemningu og smá sælkeradekri!
Dublin er borg sem slær taktinn með tónlist, hlátri og ósvikinni írskri stemningu. Notalegir pöbbar leynast víða og þegar líður á kvöldið fyllast þeir af lifandi tónlist, skemmtilegum sögum og góðu stuði. Sláinte!
Haag kemur skemmtilega á óvart! Fáguð borg með flottum söfnum, fallegum götum og spennandi veitingastöðum – og þegar strandlöngunin kallar er Scheveningen rétt handan við hornið. Borg og strönd í einni og sömu ferð!
Reims er frönsk perla í hjarta Champagne-héraðsins. Hér bíða glæsileg kampavínshús, fallegar götur og franskar kræsingar – allt í notalegri borg sem er upplagt að njóta á rólegum hraða.
Riga er falleg og lífleg borg sem kemur skemmtilega á óvart! Þar blandast litríkur sögulegur miðbær, glæsilegar byggingar, notaleg kaffihús og góðir veitingastaðir við afslappaða borgarstemningu – fullkomin blanda fyrir góða helgarferð.
Frankfurt er miklu meira en skýjakljúfar og viðskipti! Fallegi gamli bærinn, notalegar gönguleiðir meðfram Main-ánni, flott söfn og spennandi veitingastaðir sýna allt aðra hlið á borginni. Kraftmikil borg með skemmtilega blöndu af stórborgarbrag og sjarma.
Heidelberg er eins og lifandi ævintýri! Rómantískar kastalarústir vaka yfir litríkum gamla bænum þar sem notaleg kaffihús, fallegar götur og líflegt stúdentalíf skapa einstaka stemningu. Lítil borg með stóran sjarma!
Gdańsk er litrík og lífleg borg við Eystrasalt þar sem fallegar göngugötur, söguleg hús og skemmtilegt mannlíf við Motława-ána skapa frábæra stemningu. Bætið við góðum veitingastöðum og hagstæðu verðlagi – og þið eruð komin með fullkomna borgarferð!
Gdańsk er litrík og lífleg borg við Eystrasalt þar sem fallegar göngugötur, söguleg hús og skemmtilegt mannlíf við Motława-ána skapa frábæra stemningu. Bætið við góðum veitingastöðum og hagstæðu verðlagi – og þið eruð komin með fullkomna borgarferð!
Í Kraká er auðvelt að láta tímann líða! Stórbrotna aðaltorgið, fallegar miðaldagötur og sögulegar byggingar skapa einstakan sjarma – en lífleg kaffihús, góðir veitingastaðir og skemmtilegt mannlíf sjá um stemninguna.
Sopot er líflegur strandbær við Eystrasalt þar sem gullin strönd, fallegar göngugötur og lengsta viðarbryggja Evrópu skapa einstaka stemningu. Hér blandast notalegt strandlíf, góðir veitingastaðir og skemmtilegt mannlíf – algjörlega besta blandan!
Sopot er líflegur strandbær við Eystrasalt þar sem gullin strönd, fallegar göngugötur og lengsta viðarbryggja Evrópu skapa einstaka stemningu. Hér blandast notalegt strandlíf, góðir veitingastaðir og skemmtilegt mannlíf – algjörlega besta blandan!
Sitges er sólrík strandperla rétt utan við Barcelona þar sem lífið gengur á notalegum hraða. Byrjið daginn á ströndinni, röltuð um fallegar götur og endið á góðum veitingastað við sjóinn. Afslappað, líflegt og með sannkallaðan Miðjarðarhafssjarma!
Hópar með 75 þátttakendur eða fleiri, sem bóka skipulagt árshátíðarkvöld hjá Tripical, fá skemmtitékka Tripical með í ferðina – skemmtilegan bónus sem setur punktinn yfir i-ið!
Þið getið til dæmis valið skemmtikraft, DJ eða ljósmyndara. Skemmtikrafturinn stígur á svið með skemmtiatriði og DJ-inn sér um tónlistina og heldur stuðinu gangandi á árshátíðarkvöldinu. Ef ljósmyndari verður fyrir valinu fangar hann bestu augnablik árshátíðarinnar í myndum og myndböndum og skilar fullunnu efni til hópsins að ferð lokinni.
Hjá Tripical snýst þetta ekki bara um að komast á áfangastað – heldur að skapa ferð sem hópurinn nýtur frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
Við erum ótrúlega stolt af fallegu orðunum og frábæru umsögnunum sem við höfum fengið frá hópunum okkar.