

Gdańsk er einstaklega falleg hafnarborg við Eystrasaltið – og þegar jólaljósin kvikna verður borgin hreint út sagt ævintýraleg. Litríku húsin, steinlagðar göturnar og fallegi árbakkinn við Motława fá enn meiri sjarma á aðventunni þegar borgin fyllist af ljósum, jólaskrauti og notalegri stemningu.
Jólamarkaðurinn í Gdańsk er einn af hápunktum ferðarinnar. Þar má rölta á milli fallegra jólakofa, smakka á pólskum kræsingum, fá sér eitthvað heitt í glas og kíkja á handverk og jólagjafir – allt í sannkallaðri jólastemningu.
Skoða jólamarkaðinn í Gdańsk 2026 →

Gamli bærinn er svo upplifun út af fyrir sig. Þar er dásamlegt að rölta um þröngar göturnar, kíkja í verslanir og kaffihús og ganga niður að árbakkanum þar sem veitingastaðir og barir skapa líflega stemningu fram á kvöld.

Gdańsk á líka ótrúlega merkilega sögu. Skammt frá borginni er Westerplatte, þar sem innrás Þýskalands í Pólland hófst 1. september 1939 og þar með síðari heimsstyrjöldin í Evrópu. Söfn borgarinnar og sögulegir staðir gera Gdańsk því að miklu meira en bara fallegri jólaborg.

Jólaljós, góður matur, verslun, saga og notaleg aðventustemning – Gdańsk er algjörlega þess virði að heimsækja fyrir jólin! 🎄
*Ferðin er háð lágmarksþátttöku.
Mercure Gdańsk Stare Miasto er vel staðsett hótel í miðbæ Gdańsk, í einni hæstu byggingu borgarinnar með fallegu útsýni yfir gamla bæinn og hafnarsvæðið.
Hótelið býður upp á nútímaleg herbergi, góða þjónustu og Winestone veitingastað og bar, þar sem lögð er áhersla á góða rétti og vínúrval. Helstu kennileiti, eins og Maríukirkjan og Long Market, eru í stuttu göngufæri.
Á Booking.com fær hótelið 8,8 í heildareinkunn og 9,5 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Góður valkostur fyrir hóp sem vill miðlæga staðsetningu, fallegt útsýni og þægilegt aðgengi að gamla bænum í Gdańsk.
Hotel Sadova er stílhreint 4 stjörnu hótel í Gdańsk, staðsett í stuttu göngufæri frá gamla bænum, Crane-hliðinu og lífinu við Motława-ána.
Hótelið býður upp á björt og nútímaleg herbergi, góða þjónustu og heilsulindaraðstöðu með innisundlaug, gufubaði og líkamsrækt. Morgunverðurinn fær einnig mjög góðar umsagnir.
Á Booking.com fær hótelið 9,1 í heildareinkunn og 9,5 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Mjög góður valkostur fyrir hóp sem vill nútímalegt hótel, góða staðsetningu og spa-aðstöðu nálægt gamla bænum í Gdańsk.
Scandic Gdańsk er með svansvottun, staðsett nálægt gamla bænum í Gdańsk. Hótelið er í um 800 metra fjarlægð frá fræga krananum við Motława-ána og aðallestarstöðin er beint á móti hótelinu.
Herbergin eru hljóðeinangruð og með baðherbergi, sjónvarpi og ókeypis WiFi. Á hótelinu er líkamsrækt sem er opin allan sólarhringinn, gufubað, Senso Restaurant & Bar og anddyrisbar með léttum veitingum og drykkjum.
Á Booking.com fær hótelið 8,7 í heildareinkunn og 9,4 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Góður valkostur fyrir hóp sem vill góða staðsetningu, umhverfisvottun og frábært aðgengi að lestarstöð, flugvelli og gamla bænum í Gdańsk.
Hampton by Hilton Gdańsk Old Town er þægilegt 3 stjörnu hótel í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk, með frábæra staðsetningu nálægt helstu kennileitum, verslunum, veitingastöðum og borgarlífi.
Hótelið býður upp á nútímaleg og þægileg herbergi, veitingastað og bar. Staðsetningin hentar sérstaklega vel fyrir hópa sem vilja vera miðsvæðis og hafa allt það helsta í göngufæri.
Á Booking.com fær hótelið 9,0 í heildareinkunn og 9,8 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Mjög góður valkostur fyrir hóp sem vill öruggt hótel, frábæra staðsetningu og þægilegt aðgengi að gamla bænum í Gdańsk.
PURO Gdańsk Stare Miasto er stílhreint hönnunarhótel á Granary Island, í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk.
Hótelið sameinar nútímalega hönnun, list og þægindi í fallegu umhverfi. Á staðnum er þakbarinn Inka, heilsulind og nútímaleg herbergi með góðri tækni og þægindum.
Crane-hliðið, gamla höfnin og helstu götur gamla bæjarins eru í örstuttu göngufæri.
Á Booking.com fær hótelið 9,2 í heildareinkunn og 9,8 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Sterkur valkostur fyrir hóp sem vill frábæra staðsetningu, stílhreint hönnunarhótel, þakbar og nútímalega upplifun í hjarta gamla bæjarins í Gdańsk.
Hilton Gdańsk er glæsilegt 5 stjörnu hótel við Motława-ána, í hjarta sögulega miðbæjarins í Gdańsk.
Hótelið býður upp á nútímalegan lúxus, rúmgóð herbergi og fallegt útsýni yfir ána og gamla bæinn. Á hótelinu er Mercato veitingastaðurinn, heilsulind með innisundlaug á efstu hæð og High 5 Terrace Bar, vinsæll þakbar með útsýni yfir borgina.
Á Booking.com fær hótelið 8,8 í heildareinkunn og 9,7 fyrir staðsetningu.
—
Tripical mat
Mjög sterkur valkostur fyrir hóp sem vill 5 stjörnu hótel, frábæra staðsetningu, þakbar og lúxusupplifun við ána í Gdańsk.
Hópar sem telja 75 og fleiri og eru með skipulagt árshátíðarkvöld á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni frítt og hann fylgir með í árshátíðarferðina. Einnig er hægt að velja ljósmyndara í stað skemmtikrafts sem tekur myndir og myndbönd alla ferðina og skilar af sér fyrir hópinn að ferð lokinni.
Við hjá Tripical leggjum okkur mikið fram við að gera ferðina þína sem eftirminnilegasta!
Við erum afar stolt og ánægð yfir þeim frábæru umsögnum sem viðskiptavinir hafa gefið okkur:
Flestir Íslendingar þekkja eitthvað til Póllands, en við hjá Tripical viljum þar bæta um betur og hvetjum fólk til að ferðast og skoða þetta fallega land, ásamt því að kynna sér magnaða sögu þess. Pólland er sjötta fjölmennasta ríki Evrópu og með landamæri að Þýskalandi, Tékklandi, Litháen og Rússlandi. Landið á strönd að Eystrasalti, þar sem árnar Odra og Visla renna í sjó.
Árið 1795 var Póllandi skipt á milli Prússlands, Rússlands og Austurríkis. Það fékk sjálfstæði að nýju sem lýðveldi árið 1918, en í september 1939 var landið hernumið af Þjóðverjum og Sovétmönnum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar, þar sem yfir sex milljónir Pólverja féllu í valinn. Eftir stríð lenti Pólland á áhrifasvæði Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldið Pólland var stofnað. Landamæri þess voru þá töluvert frábrugðin frá því fyrir stríð, fyrrum pólsk svæði í austri tilheyrðu nú Sovétríkjunum og í staðinn fékk Pólland stór landssvæði frá hinu fallna Þýskalandi. Stjórn kommúnista ríkti allt þar til henni var bolað frá árið 1989 og þriðja pólska lýðveldið stofnað.
Á norðurhluta landsins, við Eystasaltið, tengjast þrjár pólskar borgir, og eru oft nefndar Þríborgin (e. Tricity). Þetta eru Sopot, Gdynia, og Gdansk sem er þeirra stærst og þekktust. Gdansk er fjórða stærsta borg landsins og staðsett við upptök árinnar Motlawa, sem rennur meðfram litríkum hafnarhúsum bæjarins. Saga Gdansk er afar merkileg, en 1. september árið 1939 hófst orrustan við Westerplatte milli Póllands og Þýskalands í upphafi seinni heimstyraldarinnar. Pólland varð einnig fyrir miklum áhrifum frá Kalda stríðinu svokallaða. Einræðishyggja kommúnista varð til þess að í skipasmíðastöðvum þríborgarinnar kviknaði hin svonefnda Solidarity hreyfing, en hún átti sinn þátt í falli kommúnismans í Austurblokkinni, falli Berlínarmúrsins og endaloka Sóvétríkjanna.

Afar öflugt menningar- og listalíf er að finna í Gdansk, en götur borgarinnar bjóða upp á fjölbreytta markaði, listasýningar og aðra skemmtilega viðburði stóran hluta sumarsins.
Sopot er vinsæll áfangastaður, ekki síst fyrir strendur sínar, en bærinn er staðsettur sunnan við Eystrasaltið, milli Gdynia og Gdansk og með íbúafjölda í kringum 40.000. Þar er mikið úrval af ýmis konar heilsulindum sem bjóða upp á fjölbreyttar spa meðferðir og dekur. Lengsta trébryggja í Evrópu er í Sopot, en hún nær um 515 metra út á haf. Borgin er einnig þekkt fyrir alþjóðlega söngvakeppni sína, Sopot International Song Festial, sem er einn stærsti söngviðburður Evrópu á eftir Júróvisjon.

Um aldir var Gdynia lítið þorp við Eystrasaltið, þar sem lögð var stund bæði á landbúnað og sjávarútveg. Í byrjun 20. aldar tók ferðamannastraumur þangað að aukast til muna, og íbúafjöldi jókst í kjölfarið. Þegar Pólland öðlaðist sjálfstæði 1918 var ákvörðun tekin um að byggja þar höfn og í dag hefur Gdynia þróast úr litlum sjávarbæ í mikilvæga hafnarborg, með heimsborgar yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Þessi þróun stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar hafnarsvæði og skipasmíðastöð urðu fyrir sprengingu og eyðulögðust. Í stríðslok hófst endurbygging á ný. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og lúxussnekkja. Borgin hýsir auk þess stærstu kvimyndahátíð landsins, Gdynia Film Festival.
Höfuðborg Póllands og jafnframt stærsta þéttbýli landsins. Varsjá stendur við ánna Vistula í mið-austur Póllandi, í um 260 km fjarlægð frá Eystrasaltinu. Þar búa um 1,75 milljónir, sem gerir hana að níundu fjölmennustu borg Evrópusambandsins. Varsjá er líflegur staður og hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem menningar-, stjórnmála- og efnahagsmiðstöð í Evrópu, auk þess sem hún hefur stimplað sig inn sem menningarhöfuðborg Austur-Evrópu, með öflugu listalífi, spennandi klúbbasenu og hágæða veitingastöðum.

Vegna sögu sinnar hefur Varsjá verið nefnd Fönixarborgin, en í gegnum aldirnar hefur hún gengið í gegnum mikil átök, stríðsdeilur og innrásir. Eftir síðari heimsstyrjöldina fór borgin í gagngerar endurbætur og uppbyggingu en stríðið jafnaði um 85% hennar við jörðu. Gamli miðbæjarkjarninn er afar glæsilegur og býr yfir mikilli sögu, en hann var listaður á heimsminjaskrá UNESCO árið 1980. Aðrir merkir staðir eru t.a.m. Kastalatorgið (Plac Zamkowy), dómkirkjan (St. John’s Archcathedral), markaðstorgið (Old Town Market Square – Rynek Starego Miasta), sem og aðrar litríkar hallir og kirkjur.
Næststærsta og jafnframt elsta borg Póllands. Kraká stendur einnig við árbakka Vistula, en saga borgarinnar nær aftur til sjöundu aldar. Hún var höfuðborg landsins til ársins 1589, þegar Varsjá tók við því kefli. Kraká gegnir mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir Pólland og slavnesku nágrannalöndin. Íbúafjöldi er um 760.000, en u.þ.b. 8 milljónir búa í 100km radíus við borgina. Þá hefur Kraká endurheimt stöðu sína sem akademískur miðpunktur landsins, eftir stofnun nýrra háskóla og menningarmiðstöðva.

Eftir innrásina í Pólland í upphafi seinni heimstyraldarinnar varð Kraká gerð að höfuðborg þýsku nasistastjórnarinnar. Gyðingar sem þar bjuggu voru neyddir inn á svæði afgirt steinveggjum, þaðan sem þeir voru fluttir í nálægar úrýmingabúðir, þeirra þekktust er Auschwitz. Gamli bærinn í Kraká er friðlýstur af UNESCO. Borgin er oft nefnd sem ein sú fallegasta í Evrópu, og situr víða á toppi lista yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum. Byggingastíll endurreisnarinnar í bland við gotneskan barokk arkitektúr gerir Kraká afar sérstaka, en ólíkt Varsjá varð borgin ekki fyrir teljandi skemmdum í stríðinu. Árið 2000 var Kraká valin menningarhöfuðborg Evrópu.