

Búdapest er borg sem kann að gera góða helgi enn betri! Fallegar brýr, glæsilegar byggingar, notaleg heilsulindarböð og líflegt mannlíf skapa einstaka stemningu. Bætið við góðum mat, skemmtilegu næturlífi og útsýni yfir Dóná – og borgarferðin er komin í hús.
Dublin er borg sem slær taktinn með tónlist, hlátri og ósvikinni írskri stemningu. Notalegir pöbbar leynast víða og þegar líður á kvöldið fyllast þeir af lifandi tónlist, skemmtilegum sögum og góðu stuði. Sláinte! ☘️
Edinborg er ævintýraleg borg þar sem sagan mætir líflegu borgarlífi. Tignarlegur kastalinn, heillandi göturnar og útsýnið frá Arthur’s Seat gera borgina að algjörri upplifun – og notalegu pöbbarnir skemma svo sannarlega ekki fyrir! 🏰
Gdańsk er litrík og lífleg borg við Eystrasalt þar sem fallegar göngugötur, söguleg hús og skemmtilegt mannlíf við Motława-ána skapa frábæra stemningu. Bætið við góðum veitingastöðum og hagstæðu verðlagi – og þið eruð komin með fullkomna borgarferð!
Sopot er líflegur strandbær við Eystrasalt þar sem gullin strönd, fallegar göngugötur og lengsta viðarbryggja Evrópu skapa einstaka stemningu. Hér blandast afslöppun við gott mannlíf, skemmtilega veitingastaði og notalegt strandlíf – algjörlega besta blandan!
Gdańsk er litrík og lífleg borg við Eystrasalt þar sem fallegar göngugötur, söguleg hús og skemmtilegt mannlíf við Motława-ána skapa frábæra stemningu. Bætið við góðum veitingastöðum og hagstæðu verðlagi – og þið eruð komin með fullkomna borgarferð!
Haag er fáguð og spennandi borg þar sem menning, flott söfn og fallegt borgarlíf fara fullkomlega saman. Bætið við notalegum veitingastöðum og ströndinni í Scheveningen – og þið eruð komin með borgarferð sem hefur allt!
Reims er glæsileg borg í hjarta Champagne-héraðsins þar sem fallegar byggingar, frábær matur og frönsk stemning fara fullkomlega saman. Hér má heimsækja þekkt kampavínshús, rölta um notalegar götur og að sjálfsögðu skála í ekta kampavíni! 🥂
Riga er falleg og lífleg borg sem kemur skemmtilega á óvart! Þar blandast litríkur sögulegur miðbær, glæsilegar byggingar, notaleg kaffihús og góðir veitingastaðir við afslappaða borgarstemningu – fullkomin blanda fyrir góða helgarferð.
Brighton er litrík og lífleg strandborg með skapandi karakter og afslappaða stemningu. Þar bíða skemmtilegar verslanir, góðir veitingastaðir, fjörugt mannlíf og hin fræga Brighton-bryggja – borgarferð með skemmtilegu strandívafi!
Prag er eins og klippt út úr ævintýri. Röltu yfir Karlsbrúna, villstu um þröngar götur gamla bæjarins og sestu inn á notalegan veitingastað eða líflegan bjórbar. Hér er alltaf eitthvað fallegt handan við hornið!
Hópar með 75 þátttakendur eða fleiri, sem bóka skipulagt árshátíðarkvöld hjá Tripical, fá skemmtitékka Tripical með í ferðina – skemmtilegan bónus sem setur punktinn yfir i-ið!
Þið getið til dæmis valið skemmtikraft, DJ eða ljósmyndara. Skemmtikrafturinn stígur á svið með skemmtiatriði og DJ-inn sér um tónlistina og heldur stuðinu gangandi á árshátíðarkvöldinu. Ef ljósmyndari verður fyrir valinu fangar hann bestu augnablik árshátíðarinnar í myndum og myndböndum og skilar fullunnu efni til hópsins að ferð lokinni.
Hjá Tripical snýst þetta ekki bara um að komast á áfangastað – heldur að skapa ferð sem hópurinn nýtur frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
Við erum ótrúlega stolt af fallegu orðunum og frábæru umsögnunum sem við höfum fengið frá hópunum okkar 💛