




Langar þig að lengja sumarið aðeins? ☀️ Svartfjallaland er frábær kostur í lok september með fallegri strandlengju, stórbrotnu landslagi, notalegum strandbæjum og afslappaðri Miðjarðarhafsstemningu.
Nú eru örfá sæti eftir í beinu flugi frá Keflavík 24.–28. september 2026, svo þetta er kjörið tækifæri til að skella sér í 5 daga haustferð og njóta sólar, góðs matar og fallegs umhverfis.
Hvort sem planið er að slaka á, skoða fallega bæi eða einfaldlega hafa það gott í sólinni, þá er Svartfjallaland frábær staður fyrir smá haustdekur.
Montenegro er lítið en ótrúlega fjölbreytt land á Balkanskaga við kristaltært Adríahafið. Hér mætast tignarleg fjöll, fallegir strandbæir, gamlir miðaldakjarnar og strendur sem eiga auðvelt með að koma manni í sumarstuð.
Landið liggur á milli Króatíu, Bosníu og Hersegóvínu, Serbíu, Kosovo og Albaníu og hefur á síðustu árum orðið sífellt vinsælli áfangastaður ferðamanna. Það er auðvelt að sjá hvers vegna Svartfjallaland nýtur sífellt meiri vinsælda – stuttar vegalengdir, fjölbreytt upplifun og ótrúlega margt að sjá og gera.


Svartfjallaland stendur sannarlega undir nafni. Fjöllin rísa nánast beint upp úr sjónum og útsýnið getur verið stórkostlegt hvert sem litið er.
Inni í landi má meðal annars finna Skadar-vatn, Durmitor-þjóðgarðinn, Tara-gljúfrið og Black Lake. Hér er því nóg að gera fyrir þá sem vilja blanda strandlífinu saman við bátsferðir, gönguferðir og smá ævintýri.

Lok september eru frábær tími til að heimsækja Svartfjallaland. Sumarið er ekki alveg búið, en mesti annatíminn liðinn hjá. Það er því tilvalið að pakka sundfötunum og sandölunum og skella sér í smá haustsól við Adríahafið.
Haustsól, kristaltær sjór, stórbrotið landslag, góður matur og afslöppuð Miðjarðarhafsstemning – Svartfjallaland kann þetta.
Maestral Resort & Casino er glæsilegt fimm stjörnu strandhótel í Przno á Svartfjallalandi, rétt hjá Sveti Stefan. Hótelið stendur við fallega einkaströnd og er með innisundlaug, útisundlaug, stóra heilsulind, nokkra veitingastaði, bari og glæsilegt spilavíti. Flest herbergin eru með svölum og mörg þeirra með stórkostlegu sjávarútsýni.
Á Booking.com fær hótelið heildareinkunn 9,2 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Tripical mat: Hér er farið alla leið – einkaströnd, sundlaugar, spa, góðir veitingastaðir og spilavíti undir sama þaki. Glæsilegt val fyrir þá sem vilja alvöru resort-stemningu með Adríahafið beint fyrir framan sig.
Tvíbýli með morgunverði 219.990 á mann – eða einbýli á 264.990 fyrir þá sem vilja aðeins meira pláss og næði!
Splendid Conference & Spa Resort er glæsilegt fimm stjörnu strandhótel í Becicxi, aðeins um 2 km frá gamla bænum í Budva. Hótelið stendur beint við ströndina og er með einkaströnd, fimm sundlaugar, stóra spa- og heilsulind, veitingastaði, bari og spilavíti.
Á Booking.com fær hótelið heildareinkunn 9,1 og 9,3 fyrir staðsetningu.
Tripical mat: Hér er alvöru resort-stemning – ströndin við dyrnar, sundlaugar, spa og nóg að gera án þess að þurfa nokkurn tímann að yfirgefa hótelið. Glæsilegur kostur fyrir þá sem vilja slökun, smá lúxus og gott líf við Adríahafið.
Tvíbýli með morgunverði 224.990 á mann – eða einbýli á 274.990 fyrir þá sem vilja aðeins meira pláss og næði!
Almennar upplýsingar
Það er nánast ómögulegt að skoða ferðasíður, þar sem Svartfjallaland er ekki nefnt sem eitt af heitustu stöðunum þessi misserin. Og þrátt fyrir að heimsóknum hafi vissulega fjölgað, halda íbúar landsins ró sinni og koma fram við gesti sína fullir einlægri gestrisni og sjarma.
Strandlína landsins er um 300 km löng og þar er að finna einhvert stórkostlegasta strandútsýni sem finna má í Evrópu. Ofan við strandirnar hvíla svo tignarleg fjöllin og vofa yfir landinu. Gömul þorp hanga í hlíðunum og renna niður að sjónum, rétt eins og þau séu að dífa tánni ofan í tæran sjóinn. Yfir sumartímann bætist svo fjölskrúðugur gróðurinn við þessa dásamlega fallegu mynd, sem ekki er stærri en tveir þriðju hlutar af Wales svo dæmi sé tekið.
Þegar strendurnar eru fullar af fólki er hægt að ganga af stað upp hina fjölmörgu stíga fjallana, heimsækja til dæmi Biogradska Gora skóginn og heimsækja dæmigert þorp, og fylgjast með daglegu hversdagslífi hins venjulega Svarfjallabúa. Farðu í reiðtúr, fjallahjólatúr eða í kayakferð og þú átt mögulega von á að hafa landslagið í kringum þig alveg útaf fyrir þig.

Allt frá því að rómverska stórveldið leið undir lok og skiptist í tvennt fyrir um 1600 árum síðan, hefur Svartfjallaland legið á landamærum austurs og vesturs. Ever since the Roman Empire split in two 1600 years ago, Montenegro has sat on the borderline between east and west. Hina fjölbreyttu menningarsögu er að finna glæsilegum mósaík byggingum, skrautlega máluðum Orthodox klaustrum, kaþólskum kirkjum og fallegum moskum. Ofan á þetta bætist 50 ára saga þar sem svæðið var hlutlaust kommúnistaríki, óháð bæði austur og vesturblokkinni. Þetta er því sérstaklega áhugaverður staður fyrir fróðleiksfúsa söguunnendur að heimsækja.
